Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 30
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
„Þetta var ótrúlega skemmti-
legur og merkilegur tími,“ rifjar
hún upp. „Það var hægt að sjá utan
á fólki hvers konar tónlist það hlust-
aði á, sérstaklega á hipphoppur-
unum í sínum víðu buxum, skæru
litum og stóru dúnúlpum. Stundum
skammast ég mín pínulítið þegar
ég sé myndir frá þessu tímabili, en
þetta var gaman og þá var mikil sér-
staða fólgin í því að vera rappari.“
Rapptónlistinni úti í heimi virðast
stundum fylgja einhvers konar deil-
ur manna á milli og í verstu tilvik-
unum slagsmál og klíkustríð. Ragna
histir höfuðið þegar slíkt ber á góma
varðandi sokkabandsár íslenska
hipphoppsins.
„Það voru aðallega fjölmiðlarnir
sem bjuggu til deilur milli okkar og
Quarashi, en sú sveit varð til á svip-
uðum tíma og við en var mun rokk-
aðri. Fjölmiðlarnir vildu stilla þessu
upp eins og við værum að deila, „þið
eruð bara R&B!“, og „Þið eruð bara
rokkarar!“, og líklega tókum við
þátt í því í einhverjum barnaskap,
en þessar svokölluðu deilur ristu
aldrei djúpt. Þetta var aðallega
fyndið, en ég held að röppurum finn-
ist þeir þurfa að láta líta út fyrir að
þeir eigi í deilum við einhvern. Ann-
ars er ekkert stuð,“ segir Ragna og
skellir upp úr.
Beitir almennri skynsemi
Eins og áður sagði fluttist Ragna
til New York í nám eftir að Subterr-
anean lagði upp laupana um alda-
mótin. Skyldi það ekki hafa verið
upplifun fyrir einlægan aðdáanda
rapptónlistar að vera skyndilega
stödd í hringiðunni í sjálfri fæðing-
arborg hipphoppsins?
„Þetta var algjör draumur að því
leytinu til að ég þurfti að velja úr
hverja af hetjunum mínum ég vildi
sjá á tónleikum þá og þá vikuna.
Sem bláfátækur námsmaður með
sífelldar áhyggjur af gengi krón-
unnar, sem sveiflaðist upp og niður,
og skólagjöldunum neyddist ég auð-
vitað til að velja tómstundirnar vel,
en ég fór til dæmis á sex tónleika
með Erykuh Badu sem ég hef alltaf
haldið mikið upp á,“ segir Ragna,
sem bjó til að byrja með á Long Isl-
and, höfuðvígi rapp-frumkvöðlanna
í Public Enemy, en færði sig svo yfir
til Brooklyn, í Bedford–Stuyvesant-
hverfið sem meðal annars er sögu-
svið kvikmyndarinnar Do the Right
Thing eftir Spike Lee.
„Ég bjó á landamærum gettós-
ins og efristéttarhverfisins og var
því með sjoppuna sem var rænd á
kvöldin vinstra megin og svo vel
setta Cosby-liðið hægra megin,“
segir Ragna. „Það kom fyrir að
ég heyrði um skotbardaga í hverf-
inu, en í þannig aðstæðum verður
maður að beita almennri skynsemi
og passa sig að vera ekki að þvæl-
ast á hættulegum stöðum eftir að
skyggja tekur. Um helgar sá ég líka
heilu fjölskyldurnar grilla saman
og hafa það gott í görðunum og það
kom mér í raun á óvart hversu mikið
samfélag þetta er.“
Merkilegast við dvölina í New
York þótti Rögnu þó hversu sam-
gróin rapptónlistin er íbúum borg-
RAGNA RAPPARI
Mamma Rögnu er
frá Filippseyjum
þar sem orðið
hafa miklar nátt-
úruhamfarir upp
á síðkastið. Hún
hefur lítið sem
ekkert samband
við mjög fjarskylda
ættingja sína á
Filippseyjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
arinnar. „Einn daginn var ég að
labba niður götu þegar ég heyrði lag
með Notorious BIG spilað hátt út um
glugga á bíl. Á móti mér kom kona
labbandi sem söng með textanum í
laginu, svo heyrði ég í manni fyrir
aftan mig sem rappaði líka með og
svo uppgötvaði ég skyndilega að
allt fólkið í götunni kunni textann
við lagið. Þetta var eins og ég væri
stödd í súrrealísku myndbandi, en
svona er bara kúltúrinn þarna.“
Með svarta beltið í karate
Eftir hljóðmannsnámið í Five Towns
College á Long Island var Ragna
lærlingur í hinu fræga Chung King-
hljóðveri á Manhattan um skeið, en
starfið reis ekki undir væntingum
hennar nema síður sé.
„Það besta við þessa vinnu var
að á næturnar, þegar enginn var að
taka upp, fékk ég að laumast í græj-
urnar og prófa mig áfram með mitt
eigið efni. Annars fékk ég í raun-
inni í mesta lagi að hlaupa eftir Mc-
Donald‘s-hamborgurum klukkan
fjögur á næturnar eða þrífa upp-
tökutækin með eyrnapinna. Þetta
var ekki sá skóli sem ég hafði
ímyndað mér,“ rifjar Ragna upp og
bætir við að launin fyrir byrjendur
í þessum harða bransa í Bandaríkj-
unum séu nær engin.
„Þeir borga ekki einu sinni fyrir
neðanjarðarlestarmiðann þinn til að
komast í vinnuna og er alveg sama
þótt þú hættir því þeir geta allt-
af fengið einhverja aðra í staðinn.
Auðvitað var gaman að hitta margt
af þessu liði sem tók upp þarna eins
og til dæmis Foxy Brown, en allar
reglur um vinnutíma fuku út í veður
og vind og ég sá ekki fram á að geta
lifað þetta af nema búa heima hjá
foreldrum mínum, eins og er víst
mjög algengt að fólk geri.“
Ragna sá sér því þann kost vænst-
an að flytja aftur til Íslands og býr
nú í Vesturbænum í Reykjavík,
þar sem hún ólst upp, ásamt manni
sínum, Ingvari Björnssyni, teymis-
stjóra á velferðarsviði Reykjavík-
urborgar, og Bjarna Emil, fjögurra
ára gömlum syni þeirra.
„Einu sinni sagðist ég aldrei ætla
að flytja aftur í Vesturbæinn því ég
er eins og gömul kelling og læt rokið
þar fara alveg óskaplega í taugarnar
á mér. En Ingvar er svo mikill Vest-
urbæingur að hann heimtaði að við
flyttum þangað. Við fengum mjög
góða íbúð þar svo ég er sátt,“ segir
Ragna og viðurkennir að henni
þyki þægilegt að vera nálægt mið-
bænum. „Ég hef nánast alltaf verið
í miðbænum eða í kringum hann,
fór til dæmis í Menntaskólann við
Hamrahlíð og æfði karate með
Þórshamri. Ég er með svarta beltið
í karate, varð Íslandsmeistari í kata
árið 2007, og tek enn rispur við og
við og keppi á Íslandsmótum. Þetta
er eins og að læra að hjóla og löng-
unin til að sýna öllum hinum hvern-
ig á að gera þetta blossar alltaf upp
öðru hvoru.“
Fjarskyldir ættingjar á Filippseyjum
Pabbi Rögnu er íslenskur en
mamma hennar frá Filippseyj-
um. Þau kynntust þegar þau voru
saman í námi í Bandaríkjunum og
fluttu saman til Íslands í kjölfarið.
„Mamma féll alveg fyrir land-
inu og fannst það sérlega örugg-
ur staður til að ala upp börn, enda
Það var
hægt að sjá
utan á fólki
hvers konar
tónlist það
hlustaði á,
sérstaklega á
hipphoppur-
unum í sínum
víðu buxum,
skæru litum
og stóru
dúnúlpum.
Stundum
skammast ég
mín pínulítið
þegar ég sé
myndir frá
þessu tíma-
bili, en þetta
var gaman og
þá var mikil
sérstaða
fólgin í því að
vera rappari.
vorum við krakkarnir í hverfinu
hlaupandi um allt allan daginn og
langt fram á kvöld þegar ég var
lítil,“ segir Ragna, en móðir henn-
ar var þá ein af örfáum Filippsey-
ingum á landinu. „Þegar ég fædd-
ist var pabbi í vinnunni og mamma
talaði ekki stakt orð í íslensku en
smá í ensku. Hjúkrunarkonan labb-
aði inn, haldandi á barni með kol-
svart hár og dökkan hörundslit, og
mamma hélt auðvitað að það væri
ég og breiddi út faðminn. Þegar
hjúkkan labbaði svo framhjá henni
og rétti íslenskri konu barnið fékk
mamma áfall og hugsaði með sér
hvert hún væri eiginlega komin,
að hún fengi ekki sitt eigið barn í
hendurnar að lokinni fæðingu. Þá
kom upp úr kafinu að konan sem
fékk barnið átti mann frá Filipps-
eyjum og þetta var svona svakaleg
tilviljun að ég og þessi stelpa, sem
er vinkona mín í dag, fæddumst
nánast á sama tíma. Núna er hins
vegar heilt samfélag af Filippsey-
ingum á Íslandi,“ segir Ragna, en
móðir hennar er ræðismaður Fil-
ippseyja hér á landi og þarf því
oft að ráðleggja fólki sem hyggst
sækja eyjarnar heim.
„Íslendingar, sem koma heim
til hennar til að redda vegabréfs-
málum og undirritunum, byrja
mjög oft að tala við hana á ensku,
þótt hún hafi búið hér í rúma þrjá
áratugi. Þegar hún svarar þeim
á íslensku grípa þeir svo bara til
íslenskunnar þegar þá vantar réttu
orðin á ensku. Þetta er auðvitað
stórfurðulegt en ég kenni fáfræði
um, ekki hatri eða neinu slíku, og
grunar að þetta sé algengara hjá
eldri kynslóðinni en hinni yngri,“
segir Ragna og bætir við að sjálf
hafi hún ekki mætt neinum fordóm-
um að ráði vegna hörundslitarins.
Hamfarirnar hræðilegu á Fil-
ippseyjum nýverið hafa skotið
heimsbyggðinni skelk í bringu, en
Ragna á einungis afar fjarskylda
ættingja í landinu sem fjölskyld-
an hefur lítið sem ekkert reglulegt
samband við. „Amma og afi sem
áttu heima þar eru látin og systk-
ini mömmu, sem eru átta talsins,
fluttu öll ung til Bandaríkjanna.
Samt er sjokkerandi að fylgjast
með fréttum frá hamförunum og
filippseyska samfélagið á Íslandi
gerir sitt besta til að hjálpa til og
senda peninga og birgðir út.“
Kvenfyrirlitningin víða
Rapptónlistarheimurinn hefur nán-
ast frá upphafi verið gagnrýndur
fyrir að vera karllægur úr hófi
fram og kvenfyrirlitningu í text-
um. Hvernig kemur ung kona sér
fyrir í slíkum heimi?
„Bara með velgengni sem alvöru
listamaður, ekki endilega umdeild-
ur en alvöru. Það held ég að sé eina
svarið. Annars held ég að kvenfyr-
irlitningin sé alls ekki bundin við
rappið heldur sé hún víða ríkjandi
í tónlistarheiminum þótt rappið
hafi fengið hörðustu gagnrýnina.
Við þá sem vilja standa í slíku segi
ég bara verði þér að góðu ef þú ert
ekki þroskaðri en þetta. Ég geri
mitt og þú gerir þitt.“
iPad mini
Verð frá: 54.990.-
iPhone
Verð frá: 114.990.-
Jólagjöf in
fæst hjá okkur
Jólaopnun auglýst nánar á www.epli.is