Fréttablaðið - 16.11.2013, Síða 30

Fréttablaðið - 16.11.2013, Síða 30
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 „Þetta var ótrúlega skemmti- legur og merkilegur tími,“ rifjar hún upp. „Það var hægt að sjá utan á fólki hvers konar tónlist það hlust- aði á, sérstaklega á hipphoppur- unum í sínum víðu buxum, skæru litum og stóru dúnúlpum. Stundum skammast ég mín pínulítið þegar ég sé myndir frá þessu tímabili, en þetta var gaman og þá var mikil sér- staða fólgin í því að vera rappari.“ Rapptónlistinni úti í heimi virðast stundum fylgja einhvers konar deil- ur manna á milli og í verstu tilvik- unum slagsmál og klíkustríð. Ragna histir höfuðið þegar slíkt ber á góma varðandi sokkabandsár íslenska hipphoppsins. „Það voru aðallega fjölmiðlarnir sem bjuggu til deilur milli okkar og Quarashi, en sú sveit varð til á svip- uðum tíma og við en var mun rokk- aðri. Fjölmiðlarnir vildu stilla þessu upp eins og við værum að deila, „þið eruð bara R&B!“, og „Þið eruð bara rokkarar!“, og líklega tókum við þátt í því í einhverjum barnaskap, en þessar svokölluðu deilur ristu aldrei djúpt. Þetta var aðallega fyndið, en ég held að röppurum finn- ist þeir þurfa að láta líta út fyrir að þeir eigi í deilum við einhvern. Ann- ars er ekkert stuð,“ segir Ragna og skellir upp úr. Beitir almennri skynsemi Eins og áður sagði fluttist Ragna til New York í nám eftir að Subterr- anean lagði upp laupana um alda- mótin. Skyldi það ekki hafa verið upplifun fyrir einlægan aðdáanda rapptónlistar að vera skyndilega stödd í hringiðunni í sjálfri fæðing- arborg hipphoppsins? „Þetta var algjör draumur að því leytinu til að ég þurfti að velja úr hverja af hetjunum mínum ég vildi sjá á tónleikum þá og þá vikuna. Sem bláfátækur námsmaður með sífelldar áhyggjur af gengi krón- unnar, sem sveiflaðist upp og niður, og skólagjöldunum neyddist ég auð- vitað til að velja tómstundirnar vel, en ég fór til dæmis á sex tónleika með Erykuh Badu sem ég hef alltaf haldið mikið upp á,“ segir Ragna, sem bjó til að byrja með á Long Isl- and, höfuðvígi rapp-frumkvöðlanna í Public Enemy, en færði sig svo yfir til Brooklyn, í Bedford–Stuyvesant- hverfið sem meðal annars er sögu- svið kvikmyndarinnar Do the Right Thing eftir Spike Lee. „Ég bjó á landamærum gettós- ins og efristéttarhverfisins og var því með sjoppuna sem var rænd á kvöldin vinstra megin og svo vel setta Cosby-liðið hægra megin,“ segir Ragna. „Það kom fyrir að ég heyrði um skotbardaga í hverf- inu, en í þannig aðstæðum verður maður að beita almennri skynsemi og passa sig að vera ekki að þvæl- ast á hættulegum stöðum eftir að skyggja tekur. Um helgar sá ég líka heilu fjölskyldurnar grilla saman og hafa það gott í görðunum og það kom mér í raun á óvart hversu mikið samfélag þetta er.“ Merkilegast við dvölina í New York þótti Rögnu þó hversu sam- gróin rapptónlistin er íbúum borg- RAGNA RAPPARI Mamma Rögnu er frá Filippseyjum þar sem orðið hafa miklar nátt- úruhamfarir upp á síðkastið. Hún hefur lítið sem ekkert samband við mjög fjarskylda ættingja sína á Filippseyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI arinnar. „Einn daginn var ég að labba niður götu þegar ég heyrði lag með Notorious BIG spilað hátt út um glugga á bíl. Á móti mér kom kona labbandi sem söng með textanum í laginu, svo heyrði ég í manni fyrir aftan mig sem rappaði líka með og svo uppgötvaði ég skyndilega að allt fólkið í götunni kunni textann við lagið. Þetta var eins og ég væri stödd í súrrealísku myndbandi, en svona er bara kúltúrinn þarna.“ Með svarta beltið í karate Eftir hljóðmannsnámið í Five Towns College á Long Island var Ragna lærlingur í hinu fræga Chung King- hljóðveri á Manhattan um skeið, en starfið reis ekki undir væntingum hennar nema síður sé. „Það besta við þessa vinnu var að á næturnar, þegar enginn var að taka upp, fékk ég að laumast í græj- urnar og prófa mig áfram með mitt eigið efni. Annars fékk ég í raun- inni í mesta lagi að hlaupa eftir Mc- Donald‘s-hamborgurum klukkan fjögur á næturnar eða þrífa upp- tökutækin með eyrnapinna. Þetta var ekki sá skóli sem ég hafði ímyndað mér,“ rifjar Ragna upp og bætir við að launin fyrir byrjendur í þessum harða bransa í Bandaríkj- unum séu nær engin. „Þeir borga ekki einu sinni fyrir neðanjarðarlestarmiðann þinn til að komast í vinnuna og er alveg sama þótt þú hættir því þeir geta allt- af fengið einhverja aðra í staðinn. Auðvitað var gaman að hitta margt af þessu liði sem tók upp þarna eins og til dæmis Foxy Brown, en allar reglur um vinnutíma fuku út í veður og vind og ég sá ekki fram á að geta lifað þetta af nema búa heima hjá foreldrum mínum, eins og er víst mjög algengt að fólk geri.“ Ragna sá sér því þann kost vænst- an að flytja aftur til Íslands og býr nú í Vesturbænum í Reykjavík, þar sem hún ólst upp, ásamt manni sínum, Ingvari Björnssyni, teymis- stjóra á velferðarsviði Reykjavík- urborgar, og Bjarna Emil, fjögurra ára gömlum syni þeirra. „Einu sinni sagðist ég aldrei ætla að flytja aftur í Vesturbæinn því ég er eins og gömul kelling og læt rokið þar fara alveg óskaplega í taugarnar á mér. En Ingvar er svo mikill Vest- urbæingur að hann heimtaði að við flyttum þangað. Við fengum mjög góða íbúð þar svo ég er sátt,“ segir Ragna og viðurkennir að henni þyki þægilegt að vera nálægt mið- bænum. „Ég hef nánast alltaf verið í miðbænum eða í kringum hann, fór til dæmis í Menntaskólann við Hamrahlíð og æfði karate með Þórshamri. Ég er með svarta beltið í karate, varð Íslandsmeistari í kata árið 2007, og tek enn rispur við og við og keppi á Íslandsmótum. Þetta er eins og að læra að hjóla og löng- unin til að sýna öllum hinum hvern- ig á að gera þetta blossar alltaf upp öðru hvoru.“ Fjarskyldir ættingjar á Filippseyjum Pabbi Rögnu er íslenskur en mamma hennar frá Filippseyj- um. Þau kynntust þegar þau voru saman í námi í Bandaríkjunum og fluttu saman til Íslands í kjölfarið. „Mamma féll alveg fyrir land- inu og fannst það sérlega örugg- ur staður til að ala upp börn, enda Það var hægt að sjá utan á fólki hvers konar tónlist það hlustaði á, sérstaklega á hipphoppur- unum í sínum víðu buxum, skæru litum og stóru dúnúlpum. Stundum skammast ég mín pínulítið þegar ég sé myndir frá þessu tíma- bili, en þetta var gaman og þá var mikil sérstaða fólgin í því að vera rappari. vorum við krakkarnir í hverfinu hlaupandi um allt allan daginn og langt fram á kvöld þegar ég var lítil,“ segir Ragna, en móðir henn- ar var þá ein af örfáum Filippsey- ingum á landinu. „Þegar ég fædd- ist var pabbi í vinnunni og mamma talaði ekki stakt orð í íslensku en smá í ensku. Hjúkrunarkonan labb- aði inn, haldandi á barni með kol- svart hár og dökkan hörundslit, og mamma hélt auðvitað að það væri ég og breiddi út faðminn. Þegar hjúkkan labbaði svo framhjá henni og rétti íslenskri konu barnið fékk mamma áfall og hugsaði með sér hvert hún væri eiginlega komin, að hún fengi ekki sitt eigið barn í hendurnar að lokinni fæðingu. Þá kom upp úr kafinu að konan sem fékk barnið átti mann frá Filipps- eyjum og þetta var svona svakaleg tilviljun að ég og þessi stelpa, sem er vinkona mín í dag, fæddumst nánast á sama tíma. Núna er hins vegar heilt samfélag af Filippsey- ingum á Íslandi,“ segir Ragna, en móðir hennar er ræðismaður Fil- ippseyja hér á landi og þarf því oft að ráðleggja fólki sem hyggst sækja eyjarnar heim. „Íslendingar, sem koma heim til hennar til að redda vegabréfs- málum og undirritunum, byrja mjög oft að tala við hana á ensku, þótt hún hafi búið hér í rúma þrjá áratugi. Þegar hún svarar þeim á íslensku grípa þeir svo bara til íslenskunnar þegar þá vantar réttu orðin á ensku. Þetta er auðvitað stórfurðulegt en ég kenni fáfræði um, ekki hatri eða neinu slíku, og grunar að þetta sé algengara hjá eldri kynslóðinni en hinni yngri,“ segir Ragna og bætir við að sjálf hafi hún ekki mætt neinum fordóm- um að ráði vegna hörundslitarins. Hamfarirnar hræðilegu á Fil- ippseyjum nýverið hafa skotið heimsbyggðinni skelk í bringu, en Ragna á einungis afar fjarskylda ættingja í landinu sem fjölskyld- an hefur lítið sem ekkert reglulegt samband við. „Amma og afi sem áttu heima þar eru látin og systk- ini mömmu, sem eru átta talsins, fluttu öll ung til Bandaríkjanna. Samt er sjokkerandi að fylgjast með fréttum frá hamförunum og filippseyska samfélagið á Íslandi gerir sitt besta til að hjálpa til og senda peninga og birgðir út.“ Kvenfyrirlitningin víða Rapptónlistarheimurinn hefur nán- ast frá upphafi verið gagnrýndur fyrir að vera karllægur úr hófi fram og kvenfyrirlitningu í text- um. Hvernig kemur ung kona sér fyrir í slíkum heimi? „Bara með velgengni sem alvöru listamaður, ekki endilega umdeild- ur en alvöru. Það held ég að sé eina svarið. Annars held ég að kvenfyr- irlitningin sé alls ekki bundin við rappið heldur sé hún víða ríkjandi í tónlistarheiminum þótt rappið hafi fengið hörðustu gagnrýnina. Við þá sem vilja standa í slíku segi ég bara verði þér að góðu ef þú ert ekki þroskaðri en þetta. Ég geri mitt og þú gerir þitt.“ iPad mini Verð frá: 54.990.- iPhone Verð frá: 114.990.- Jólagjöf in fæst hjá okkur Jólaopnun auglýst nánar á www.epli.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.