Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 12
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
MENNTAMÁL Stúdentar við
Háskóla Íslands óttast að tekin
verði upp gjaldtaka á stæðum við
byggingar Háskóla Íslands. „Ég
sendi yfirstjórn skólans fyrir-
spurn þar sem ég spurðist fyrir
um þetta mál. Mér var tjáð að
þetta yrði ekki gert í náinni fram-
tíð,“ segir María Rut Kristins-
dóttir, formaður Stúdentaráðs.
Hún segir að áður en farið yrði
í að taka gjald fyrir að leggja í
stæði við skólann yrði að semja
um það við Landspítalann og HR
auk þess sem það kallaði á bættar
almenningssamgöngur. - jme
Kínastjórn slakar á klónni
Leiðtogar Kína hafa tekið ákvörðun um að leggja niður hinar illræmdu vinnubúðir, sem notaðar hafa verið
í héruðum landsins til að refsa stjórnarandstæðingum. Einnig á nú að leyfa pörum að eignast tvö börn, ef
ákveðin skilyrði eru uppfyllt. Auðugir Kínverjar hafa komist upp með að eignast tvö börn og greiða sektir.
KÍNA, AP Á fjögurra daga fundi sínum um síðustu helgi samþykktu
æðstu leiðtogar kínverska Kommúnistaflokksins tilslakanir á hinni
umdeildu einbirnisstefnu, sem framfylgt hefur verið áratugum
saman.
Brátt munu pör mega eignast tvö börn, en þó aðeins að því skil-
yrði uppfylltu að í það minnsta annað foreldrið sé einbirni.
Einbirnisstefnan hefur haft margvíslegar afleiðingar fyrir kín-
verskt samfélag. Dregið hefur úr hraða fólksfjölgunar, en að sama
skapi er fyrirsjáanlegt að fólk á vinnualdri mun eiga æ erfiðara
með að standa undir umönnun aldraðra þegar fram líða stundir.
Stefnunni hefur í mörgum tilfellum verið fylgt eftir af mikilli
hörku, meðal annars með því að neyða konur til að gangast undir
fóstureyðingar.
Þungar sektir hafa legið við brotum og hinir brotlegu hafa jafn-
vel misst eignir sínar og atvinnu, hafi þeir ekki efni á að greiða
sektirnar. Auðugri Kínverjar hafa hins vegar getað komist upp með
að eignast í það minnsta tvö börn, þar sem greiðsla sektar er ekki
vandamál hjá þeim.
Á fundi leiðtoganna var einnig samþykkt að leggja niður hinar
illræmdu vinnubúðir, sem upphaflega voru reistar til þess að refsa
andstæðingum Kommúnistaflokksins.
Leiðtogar í héruðum Kína og sveitarfélögum hafa haldið áfram
að notfæra sér þessa leið til þess að refsa einstaklingum, sem gagn-
rýnt hafa spillingu í stjórnsýslunni. gudsteinn@frettabladid.is
FRELSIÐ EYKST Í nokkra áratugi hefur flestum kínverskum pörum verið bannað að
eignast nema eitt barn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Volkswagen Amarok sameinar kosti lúxusjeppa og
pallbíls og býður upp á mikla notkunarmöguleika
fyrir fjölbreyttan lífsstíl. Amarok fæst nú með 2.0 TDI
180 hestafla dísilvél með 8 gíra sjálfskiptingu og
3.200 kg dráttargetu.
Eyðsla frá 7,6 lítrar/100km.*
*Miðað við blandaðan akstur á sjálfskiptum/beinskiptum
Volkswagen Amarok Startline Double Cab 2.0 TDI, 180 hö.
www.volkswagen.is
Volkswagen Amarok
Fágaður og
fullur af orku
Komdu í reynsluakstur
Amarok Double Cab 2.0 TDI
180 hestöfl kostar frá
7.590.000 kr.
(6.047.809 kr. án vsk)
Atvinnubílar
FÓLK Í Reykjavík er hægt að kom-
ast í dekur hjá hjónunum Adam
og Evu. Ekki þó í Edensgarðinum
heldur í heilsulindinni Sóley Nat-
ura Spa.
Hjónin Adam og Eva eru pólsk-
ir nuddarar og vinna saman í
heilsulindinni. Adam segir að
nöfn þeirra hafi oft vakið furðu-
svip og hlátur hjá fólki.
„Helmingur viðskiptavina
okkar er erlendir ferðamenn.
Nöfnin okkar eru náttúrulega
mjög alþjóðleg og því hefur fólk
af bókstaflega öllum þjóðernum
spurt okkur hvort við séum að
grínast,“ segir Adam hlæjandi.
Adam og Eva hafa búið á
Íslandi í átta ár. „Við ætluðum
bara að vinna hér í eitt ár til að
prófa eitthvað nýtt. En okkur
líkar svo vel á Íslandi. Hér er allt
svo rólegt og svo fallegt. Það er
hægt að labba um göturnar um
miðja nótt án þess að hafa áhyggj-
ur af því að eitthvað komi fyrir
mann. Það kunnum við vel að
meta.“ - ebg
Hjón sem spurð eru daglega hvort þau séu að grínast vegna nafna þeirra:
Adam og Eva dekra við þreytta
Í PARADÍS Adam og Eva hafa búið á
Íslandi í átta ár og segja landið vera
sína paradís. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
SAGA EINBIRNISSTEFNUNNAR Í KÍNA Í SEXTÍU ÁR 1953-2013
Kínverskir leiðtogar stinga
fyrst upp á því að takmarka
þurfi barneignir, en ekkert
verður úr þeim áformum.
1953 1975 20011970 19841980 2013
Kínverjar
orðnir
800
milljónir.
Kínastjórn hvetur pör
til að eignast helst ekki
fleiri en eitt barn, og alls
ekki fleiri en tvö.
Kommúnistaflokkurinn setur ný lög
þar sem pörum er í reynd bannað
að eignast fleiri börn en eitt.
Kínastjórn veitir sumum undantekningarheimild til þess að eignast
tvö börn. Þetta á við sums staðar í sveitum landsins. Einnig mega
foreldrar eins barns eignast annað barn ef þeir eru báðir einbirni.
Nokkrar aðrar undantekningar eru einnig leyfðar.
Með nýrri löggjöf er reynt að fylgja
þessum reglum betur eftir. Meðal
annars þarf nú að greiða sektir ef fólk
eignast barn í óleyfi.
Nú nægir að annað
foreldri barns sé einbirni
til þess að eignast megi
annað barn.
Gjaldtaka á bílastæðum HÍ:
Verður ekki í
náinni framtíð
DÓMSMÁL Handtökumáli Hjör-
dísar Svan Aðalheiðardóttur var
frestað í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær. Hjördís flúði með dætur
sínar frá Danmörku til Íslands,
en hún hefur verið í áralangri
forræðisdeilu við danskan barns-
föður sinn. Faðirinn fékk dæmt
forræði yfir dætrum þeirra í
Danmörku.
Dönsk yfirvöld hafa sent hand-
tökubeiðni til íslenskra stjórn-
valda sem ríkissaksóknari sér um
að fullnusta. Ákvörðun dansks
dómara um að gefa út handtöku-
skipun hefur verið áfrýjað í Dan-
mörku og á þeim grundvelli frest-
aði héraðsdómur málinu í gær.
Ekki er ljóst hvenær niðurstaða
fæst fyrir dómstólunum. - fbj
Forræðisdeila fyrir dómi:
Fresta hand-
töku Hjördísar
JAFNRÉTTI Í nýjum bæklingi frá
Toys “R” Us má sjá stelpur og
stráka leika sér saman í bílaleik
og í barbí. Bæði kynin sjást leika
sér með ýmis leikföng án þess að
þau séu sérstaklega ætluð öðru
kyninu.
Femínistafélag Íslands hrósar
fyrirtækinu í tilkynningu: „Það
er Femínistafélagi Íslands bæði
ljúft og skylt að hrósa því þegar
jafnréttissjónarmið eru höfð til
hliðsjónar í starfsemi aðila sem
eru í aðstöðu til að hafa áhrif.“ - hrs
Hrósa leikfangaverslun:
Bæði kyn með
sömu leikföngin
HEILBRIGÐISMÁL Dæmi eru um
að stúlkur undir lögaldri fari í
skapa barmaaðgerðir til lýta-
lækna í fylgd með mæðrum
sínum. Lýtalæknir segir fordóma
í garð slíkra aðgerða einkennast
af vanþekkingu.
Þórdís Kjartansdóttir, for-
maður Félags lýtalækna, skrifar
grein um málið í Læknablaðið.
Þar segir hún að mikil vanlíðan
fái konur til að gangast undir
slíka aðgerð, ekki staðalímyndir í
klámi. - þþ
Undir lögaldri til lýtalækna:
Fara í aðgerðir á
skapabörmum