Fréttablaðið - 16.11.2013, Síða 48

Fréttablaðið - 16.11.2013, Síða 48
FÓLK| LJÓSMYNDIR Inga Sól er menntaður húsgagna-hönnuður en hefur undanfarið ein-blínt á minni nytjahluti fyrir heimilið. „Það sem hefur verið gegnumgangandi þráður hjá mér er endurvinnsla. Ég hef mjög gaman af því að skoða efni og at- huga hvernig ég get notað þau á nýjan hátt,“ segir Inga Sól, sem sýnir verk sín á Handverki og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. Sem dæmi um endurunna hönnun Ingu Sólar má benda á hálsmen sem hún býr til úr gömlum rennilásum, diskamottur sem ofnar eru úr dagblöð- um í vefstól og hitaplatta sem hún býr til úr gömlu parketi. „Þá hef ég notað mjólkurfernur í ljósaseríurnar mínar. Þá tek ég mjólkurfernur, eyði úr þeim öllu lími og vaxi og bý til nýjan pappír sem ég fæ þá annað hvort hvítan eða brúnan,“ segir Inga Sól en úr þessum pappír mótar hún blóm sem hún festir við ljósaseríu. „Núna fyrir jólin litaði ég pappírinn rauðan,“ segir Inga Sól, sem hafði jólastjörnuna í huga við hönn- unina. „Bæði blómið en einnig Betle- hemsstjörnuna og stjörnurnar sem við hengjum út í glugga um jólin,“ segir hún. Inga Sól hefur lituðu seríuna ekki til sölu á Handverki og hönnun en þeir sem hafa áhuga geta pantað hana hjá henni. ■ solveig@365.is JÓLASTJARNA SKÍN HÖNNUN Inga Sól Ingibjargardóttir leggur áherslu á endurvinnslu í sinni hönnun. Nýverið hannaði hún rauða og jólalega ljósaseríu úr mjólkufernum. INGA SÓL Nánari upplýsingar um hönnun Ingu Sólar er að finna á ingasolde- sign.com og á facebook undir IngaSól design. MYND/GVA Ljósmyndavörur ehf., eitt elsta ljós-myndafyrirtæki landsins (stofnað 1974), hafa stórbætt öflugasta fram- köllunarvef landsins (framkollun.ljos- myndavorur.is) núna í haust. Á vefnum er hægt að panta ljósmyndir, líka Instagram (10x10cm – á frábæru verði), stækkanir, striga, jólakort, bolla, boli, brúsa, dagatöl, músamottur, iPhone-hulstur, harðar ljós- myndabækur og margt fleira. Breyting- arnar voru gerðar til að mæta óskum viðskiptavina. Núna eru allar pantanir greiddar strax í gegnum örugga greiðslu- síðu Valitors, þannig að allar pantanir sem koma í gegnum vefinn fara strax í fram- leiðslu. Það þýðir að við getum afgreitt miklu hraðar en áður – en við vorum býsna snögg áður! Við getum sent hraðar frá okkur pantanir og mun styttri biðtími verður eftir afgreiðslu í verslun okkar fyrir þá sem vilja sækja sjálfir. Að búa til ljósmyndir, jólakort, dagatöl, striga og svo framvegis er leikur einn á vefnum. Ef þú ert með myndir í tölvunni þarftu bara að fara inn á framkollun.ljos- myndavorur.is. Svo velur þú það sem þú vilt gera, t.d. jólakort. Þá velur þú útlit með því að smella á það kort sem þér lýst best á, smellir svo á „Smelltu hér til að velja mynd“ og þá færðu valmöguleika til að finna myndina sem þú vilt (af tölvunni þinni eða Facebook), smellir á hana, velur fjölda og heldur svo áfram að panta eða klárar pöntunina. Þú velur hvort þú vilt sækja eða fá sent með pósti, greiðir og pöntunin þín fer í framleiðslu. Þú færð um hæl tölvupóst með upplýsingum um pöntunina þína og afgreiðslutíma. Veljir þú að sækja pöntunina færðu SMS þegar hún er tilbúin. Þess má geta að umslög fylgja jólakortunum. Mikið hefur verið óskað eftir Facebook- stuðningi og höfum við brugðist við því. Núna er ekkert mál að fá ljósmyndir gerð- ar úr Facebook-myndunum þínum. Eina sem þarf að gera er að fara inn á framkoll- un.ljosmyndavorur.is, velja Framköllun, velja félagsmiðlar, smella á Facebook, skrá sig inn á Facebook-síðuna sína og velja myndirnar. Þá er hægt að gera ljósmyndir, stækkanir, bolla, boli, brúsa, músamottur o.fl. úr myndunum. Til að tryggja næga afkastagetu bættum við við okkur annarri Fujifilm Frontier-framköllunarvél sem er sú hraðvirkasta á landinu. Við bjóðum líka upp á mjúkar ljós- myndabækur, sérstakt pöntunarforrit er á ljosmyndavorur.is fyrir þær. Svo erum við með mikið og sívaxandi úrval af ljósmynda römmum. EKKERT MÁL AÐ GERA JÓLAKORTIN LJÓSMYNDAVÖRUR KYNNA Lítið mál er að útbúa jólakortin með hjálp ljos- myndavorur.is. Þar má einnig panta stækkanir, búa til dagatöl og ljósmynda- bækur, láta prenta á bolla, boli og brúsa. ÖFLUGUR FRAM- KÖLLUNARVEFUR framkollun.ljosmynda- vorur.is er sniðugur vefur. L jósmynda-stofa Erlings er á Eiðistorgi og hefur starfað frá árinu 2000. Á stof- unni starfa Erling Ó. Aðalsteinsson og Silla Páls. Ljós- myndastofan sinnir öllum almennum myndatökum, til dæmis barna- og stúdentamynda- tökum og einnig fermingar- og brúð- kaupsmyndatökum. Passamyndatökur hafa einnig verið vinsælar undan- farin ár auk ýmissa fjölbreyttra við- burðamyndataka. Fyrir jólin er boðið upp á svokallaða jólakortamyndatöku en það er hálftíma myndataka þar sem ein mynd er valin á tuttugu jólakort á aðeins 18.000 krónur. Að koma í myndatöku á að vera gaman því minningin um myndatökuna lifir með myndinni. Við mælum með að börnin hafi sér uppáhaldsleikfangið sitt með í myndatökuna. Það er vinsælt að stórfjölskyldan komi í myndatöku. Þá koma afi og amma með börn og barnabörn og allir myndaðir, bæði allur hópur- inn, afi og amma með barnabörnunum, og sínum börnum, síðan hver fjölskylda fyrir sig. Þá er líka algengt að systkini koma í myndatöku og koma foreldrum sínum á óvart með fallegri systkinamynd í jólagjöf. Slíkar myndir eru ómetanlegar minningar og skemmtilegar gjöf sem lifir að eilífu. Nánari upplýsingar eru á heimasíðunni okkar erling.is, faceboook síðu okkar og í síma 552-0624. JÓLAGJÖF SEM LIFIR AÐ EILÍFU LJÓSMYNDASTOFA ERLINGS KYNNIR Fallegar ljósmyndir eru skemmtileg hugmynd að jólagjöf sem lifir lengi. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Barnaheillum Jól með AUÐVELT AÐ VERA MEÐ www.jolapeysan.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.