Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2013, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 16.11.2013, Qupperneq 34
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34 Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Hugleikur Dagsson er mættur á Tíu dropa þegar ég stíg þar inn úr slabbinu. Þormóð-ur bróðir hans birt-ist stuttu seinna. Öll fáum við okkur kaffi í krúsir húss- ins þó Hugleikur hafi sínar mein- ingar um þann drykk og hafi lent í þrætum um hann. „Þegar fólk segir: „Þetta var góður kaffisopi“ segi ég: „Það er ekki rétt. Allt kaffi er vont, það er hræðilegt á bragðið, það kemur vond lykt út úr manni á eftir, en það gerir sitt gagn því það er örvandi og skap- ar vissa sælutilfinningu.“ Fyrst þegar ég drakk áfengi þá varð ég að pína það ofan í mig en þegar ég drakk það í fimmta skipti þá var heilinn búinn að læra á vímuna. Það sama gildir um kaffið. Hjá mér að minnsta kosti.“ Stanslaus höfuðverkur Þormóður starfar á þýðingar- stofunni Skjali auk þess að vera söngvari í hljómsveitinni Tilbury. Áður spilaði hann á trommur í hljómsveitunum Skakkamanage, Jeff Who? og Hudson Wayne. Hann er líka búinn að læra umhverfis- og auðlindafræði en kveðst alltaf eiga eftir að skrifa meistararitgerðina sína. „Það er eilífðarverkefni,“ segir hann og kveðst búinn að ákveða efnið nokkrum sinnum. „Ég er alveg búinn að fara í fáeina hringi með það.“ Hugleikur lifir á listinni. Eftir hann liggja ótal bækur með teikn- ingum og sögum. Hann kveðst alltaf vera eitthvað að krota. „Ég er mjög oft með vasabók á mér og ef ég gleymi henni þá nota ég þann pappír sem ég er með, kassa nótur og svona. Teikna allt fríhendis en skanna það undan- tekningarlaust í tölvu og þá er það komið þangað.“ Hann segir brandarana og spýtukarlana koma tiltölulega áreynslulaust, þegar honum detti í hug. „En að skrifa er stanslaus höfuðverkur,“ segir hann. „Ég er að skrifa leikrit, var að skrifa söguna Ógæfu og þætt- ina fyrir RÚV, þetta er eins og að setja saman stærðfræðiformúlu og láta hana ganga upp en hún má samt ekki vera leiðinleg.“ Hugleikur er eigin herra, skyldi hann vera harður húsbóndi? „Nei, en ég geri samninga við forlag eða kvikmyndastúdíó og skila- fresturinn er harður húsbóndi. Í ár hef ég verið upptekinn hvern einasta dag. Ég gleymi því alltaf hvað þetta er mikil vinna. Þetta er svipað og ég hef heyrt um konur sem fæða börn með miklum kvöl- um. Eftir fæðinguna verða ein- hver efnahvörf sem gera það að verkum að þær gleyma sársauk- anum og langar bara fljótlega að skella í annað barn. Ég held það sé svipað og að semja. Það er stór- kostleg tilfinning þegar maður fær eigin bók í hendur en að gera hana er bara höfuðverkur og kvíði og andvökunætur.“ Mismunandi er hvenær sólar- hringsins Hugleik hentar að skrifa. „Þessa dagana finnst mér best að vakna snemma. Þá er hug- urinn ferskur og þorir meiru,“ segir hann. „Það er auðveldast að semja þegar maður er tiltölulega kærulaus, þegar maður slekkur á röddinni innra með sér sem talar fyrir hugsanlegum viðbrögðum annarra. Maður þarf stanslaust að minna sig á að ef eitthvað virkar fyrir mann sjálfan þá virkar það fyrir einhvern annan.“ Textagerð í ættinni Þormóður er auðvitað líka að fást við skriftir á þýðingarstofunni. „Hún leggst dálítið í ættir, þessi textagerð,“ útskýrir hann. „Það eru margir í okkar ætt enda- laust að skrifa, meðal annars ljóð og skáldsögur.“ Þetta kallar á skýrslu um ætt og uppruna. Þormóður: „Ef við byrjum á mömmu þá heitir hún Ingibjörg Hjartardóttir og er Svarfdæling- ur, bæði Hafstað og Eldjárn. Hún skrifar ljóð og leikrit. Það var stór fjölskylda sem hún ólst upp í, þau voru sjö systkinin og öll meira og minna í skapandi greinum. Pabbi er austan úr Breiðdal, Dagur Þor- leifsson. Hann var blaðamaður. Góður penni líka.“ Hugleikur: „Ég var einmitt að heyra hetjusögur af honum af Þjóðviljanum. Ef heilsíðuauglýs- ing datt út á síðustu stundu þá var hann látinn skrifa einhverja fréttaskýringu um það sem var í deiglunni þá stundina. Fékk stundum klukkutíma eða minna til þess og hann hristi það fram úr erminni. Hann virðist hafa verið dálítið góður að díla við skila- frestinn.“ Ekki hafði hann Internetið til að hjálpa sér, segi ég og hugsa til blaðamennsku nútímans. „Nei, en kosturinn við það var líka sá að enginn gat gúgglað til að athuga sannleiksgildi fréttar- innar,“ bendir Hugleikur á. Þormóður: „Hann var líka blaðamaður sem fór á vettvang atburða, gekk til dæmis með kúrd ískum uppreisnarmönnum um fjöllin og kynnti sér aðstæður þeirra.“ Bræðurnir eiga þrjár hálfsyst- ur. „Pabbi átti fimm börn með fjórum konum,“ útskýrir Þormóð- ur. „Við erum bara tveir albræð- ur sem ólumst upp saman. Systur okkar heita Bryndís, Úlfhildur og Anna. Anna er sænsk og við þekkj- um hana minnst en hún er næst okkur í aldri og Bryndís elst.“ Betluðu stríðsleikföng Þeir bræður áttu heima í Stokk- hólmi í bernsku en fluttu heim þegar Þormóður var fjögurra ára og Hugleikur sex. Hvernig skyldu þeir hafa leikið sér þegar þeir voru litlir? „Við teiknuðum mikið,“ segir Þormóður. „Svo lékum við okkur með Star Wars og He-man sem við betluðum í jóla-og afmælisgjafir með miklum herkjum.“ „Já,“ sam- sinnir Hugleikur. „Fullorðna fólk- ið í kring um okkur var svo mikl- ir hippar sem var gott og blessað nema þegar kom að stríðsleikföng- um, kókópuffsi og Stöð 2.“ Þormóður: „Við fórum bara til vina okkar að horfa á morgun- sjónvarp Stöðvar 2 og fá kókó- puffs,“ Áttuð þið aldrei heima í Svarf- aðardalnum? Hugleikur: „Mér fannst alltaf að ég hefði hefði átt heima fyrir norðan en það var leiðrétt, við vorum þar bara mikið á sumrin og um jól en bjuggum í Reykja- vík, enda gekk ég í Vesturbæjar- skólann.“ Þormóður: „Mamma flutti seinna norður með manni sínum, Ragnari skjálfta, það var ekki fyrr en 2000 eða 2001. Þá vorum við orðnir sjálfbjarga.“ Hugleikur: „Já, við byggðum þau í rauninni út. Ég var orðinn 18-19 ára þegar ég heyrði þau fyrst tala um að flytja í dalinn og svo tók það nokkur ár. Við biðum bara þolinmóðir. Komnir yfir tví- tugt og bjuggum enn hjá móður okkar, en nei, nei, þau voru alveg að fara.“ Nú eru báðir bræðurnir komnir í sambúð og bera lof á konur sínar sem þeir segja meðal ann- ars mjög góða ráðgjafa. Hugleikur: „Þegar Hrafnhild- ur Halldórsdóttir gagnrýnir mig þá hlusta ég meira en hún veit. Hún er góð að fatta hluti í mínum verkum sem ég hafði ekki hug- mynd um. Svo bendir hún mér á bæði góða og slæma hluti í fari mínu, það er bara gott og blessað.“ Þormóður: „Kærastan mín heitir Sigurbjörg Birgisdóttir og starfar við atvinnuráðgjöf í Hinu húsinu. Ég tek mikið mark á því sem hún segir. Ég er allt- af að brasa í tónlistinni og leyfi henni að heyra lögin þegar þau eru skammt á veg komin, les út úr hennar viðbrögðum og fer eftir því. Sé hvað virkar og hvað ekki. Það kemur að góðu gagni.“ Þegar við stöndum upp frá kaffibollunum og búumst til brottferðar spyr ég þá bræður hvort þeir kunni vel við snjóinn. „Ekki þetta slabb,“ svarar Hugleikur. „Við viljum helst hafa hann þurran eins og í Svarfaðar- dalnum,“ segir Þormóður. „Hann er þægilegri.“ Hugleikur: „Ég er hrifnastur af vetrinum hvað varðar árstíð- irnar. Þá meina ég hávetrinum, þegar veðrið er loksins búið að ákveða sig. Á öllum öðrum tímum er veðrið voða mikið hálfkák.“ Skriftir eru stanslaus höfuðverkur Bræðurnir Hugleikur og Þormóður Dagssynir muna eftir sér teiknandi frá fyrstu tíð og texta- gerð er þeim í blóð borin. Þetta tvennt ásamt hugmyndafluginu fleytir þeim langt á listasviðinu. Tónlistin er góð aukabúgrein líka hjá Þormóði. BRÆÐUR OG FÉLAGAR „Við biðum bara þolinmóðir. Komnir yfir tvítugt og bjuggum enn hjá móður okkar, en, nei nei, þau voru alveg að fara.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Diskur sveitarinnar Tilbury heitir Northern Comfort eða Norðlæg þægindi. Að sögn söngvarans Þormóðs eru á honum ljúfar ballöður um veðrið og allt sem því tengist. Útgáfutónleikar verða 28. nóvember í Kaldalóni. Hugleikur er að skrifa leikrit og að senda frá sér Ógæfu, sem Rán Flygenring myndskeytir. Hann verður með uppistand í Háskólabíói 29. nóvember og í Hofi á Akureyri 19. desember. ➜ Helstu viðfangsefnin þessa dagana
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.