Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 90
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | TÍMAMÓT Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTINN J. B. GÚSTAFSSON Dyrhömrum 18, Reykjavík, sem lést föstudaginn 8. nóvember verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 20. nóvember kl.13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning krabbameinslækningadeildar Landspítalans við Hringbraut, 11E. Reikningsnúmer 0323-13-700697, kt. 070474-3959. Ragna Hrönn Jóhannesdóttir Guðlaug Þóra Kristinsdóttir Jón Ólafur Ólafsson Jóhannes Kr. Kristinsson Inga Huld Hermóðsdóttir Vala Lind Kristinsdóttir Alexander Harrason og barnabörn. VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann www.kvedja.is Við þökkum innilega auðsýnda samúð og kærleika vegna andláts ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞORBJARGAR (OBBU) HANSDÓTTUR Ægissíðu 4, Rangárþingi. Minning hennar lifir. Þórhallur Ægir Þorgilsson Baldur Þórhallsson Felix Bergsson Ólöf Þórhallsdóttir Guðmundur Óskar Hjaltalín Bjarki Þórhallsson Guðmundur, Álfrún Perla, Kristín Ósk, Ægir og Freyja Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR ANDRÉSDÓTTUR Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu DAS í Laugarási fyrir hlýhug og góða umönnun. María Henley Kristján Ólafsson Valgerður Björk Einarsdóttir Guðný Alda Einarsdóttir Þórdís Heiða Einarsdóttir Sturla Einarsson Freyja Valgeirsdóttir Andrés Einar Einarsson Halldóra Berglind Brynjarsdóttir Guðrún Björg Einarsdóttir Helgi Guðjón Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, bróðir okkar og mágur, HREINN JÓNSSON Blikahólum 2, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans föstudaginn 1. nóvember. Útförin fór fram frá Fossvogskirkju í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Fyrir hönd aðstandenda, Kolbrún Olgeirsdóttir Valgerður Jónsdóttir Sæbjörn Jónsson Jón Jónsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL ÞÓRHALLSSON læknir, Laugarnesvegi 89, sem lést 6. nóvember sl. verður jarð sunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 20. nóvember kl. 13.00. Hildigunnur Halldórsdóttir Hjördís S. Pálsdóttir Björgúlfur Pétursson Þorgerður B. Pálsdóttir Guðmundur K. Marinósson Bentína U. Pálsdóttir Kristinn Á. Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA SVEINBJARNARDÓTTIR frá Núpi, Vestur-Eyjafjöllum, lést á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli 11. nóvember. Útförin fer fram frá Ásólfsskálakirkju 23. nóvember kl. 14.00. Anna Sigríður Guðmundsdóttir Sveinn Ívarsson Guðmundur Guðmundsson Berglind Hilmarsdóttir Guðbjörg Birna Guðmundsdóttir Björn Eysteinsson barnabörn og langömmubarn. Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ELÍASDÓTTIR frá Hábæ, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 4. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigurður Ólafsson Herdís Hallgrímsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRDÍSAR EGILSDÓTTUR Langeyrarvegi 20, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vegamóta á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund sem annaðist hana af virðingu og hlýju. Gunnar Egill Finnbogason Halla Jónsdóttir Málfríður Finnbogadóttir Jóhannes Tómasson Reynir Þór Finnbogason Kristín Waage barnabörn og barnabarnabörn. „Fyrsta veturinn vorum við bara að kenna forskólakennslu, inni í Selja- kirkju og í safnaðarsalnum og þá hófst hið góða samstarf kirkjunnar og skólans sem stendur enn í dag,“ segir Edda Borg Ólafsdóttir, skóla- stjóri Tónskóla Eddu Borg. Bjarni Sveinbjörnsson, tónlistarmaður og eiginmaður Eddu, hefur verið hennar hægri hönd í skólaumsjóninni. Það stendur mikið til í Tónskóla Eddu Borg því skólinn heldur upp á 25. starfsár sitt á skólaárinu en hann var stofnaður haustið 1989. Edda Borg var þá nýútskrifaður tónmenntakennari og kenndi tónmennt í Seljaskóla vet- urinn 1988-1989. Edda Borg segir að þá hafi hugmyndin að stofnun tónskól- ans kviknað, eftir að hafa séð þörfina fyrir tónlistarkennslu í hverfinu. „Í upphafi var ég í öllu, allt frá því að kenna á píanó til þess að ræsta skól- ann en nú hefur þetta aðeins breyst,“ segir Edda Borg létt í lund. Fljót- lega flutti skólinn úr kirkjunni yfir í Hólmasel 4-6 og bættist hljóðfæra- kennsla við. Skólinn var þar þangað til haustið 2009, þá á tuttugasta starfs- árinu, en þá flutti hann í nýtt og glæsi- legt húsnæði í Kleifarseli 18. „Á fyrsta starfsári skólans voru nemendur um 70 talsins en núna nema um 150 nemendur við skólann,“ segir Edda Borg en nýja húsnæðið er virki- lega glæsilegt og öll aðstaða til fyrir- myndar. „Píanóið hefur alltaf verið vinsælasta hljóðfærið en við kenn- um á flestöll hljóðfæri í dag – það eru sveiflur í vinsældum hljóðfæra á milli ára.“ Fram að þessu hefur skólinn sent nemendur frá sér þegar komið er áleiðis í náminu, en á undanförn- um árum hefur hann í auknum mæli hafið samstarf við aðra tónlistarskóla svo unnt sé að bjóða nemendum upp á allar þær aukagreinar og samspil sem þarf til að klára tónlistarnámið við skólann. „Í tilefni afmælisins ætlum við að brjóta upp kennsluna á næstu önn og hafa opna viku fyrstu vikuna í mars. Sú vika endar svo með afmælistón- leikum 8. mars í Seljakirkju, þar sem við viljum sjá fyrrverandi, núverandi og tilvonandi nemendur,“ útskýrir Edda Borg. Tónleikar skólans hafa alla tíð verið haldnir í Seljakirkju og er samstarfið mjög gott. „Skólinn er nú í fyrsta skipti að útskrifa nemanda af framhaldsstigi en Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmón- íkuleikari verður með burtfararprófs- tónleika í Hannesarholti föstudaginn 22. nóvember og erum við mjög stolt af honum,“ segir Edda Borg. gunnarleo@frettabladid.is Tímamót í tónlistinni Tónskóli Eddu Borg á 25 ára afmæli í ár og útskrifar nemanda af framhaldsstigi. STOLT Edda Borg Ólafsdóttir og Bjarni Sveinbjörnsson eru stolt af Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni harmóníkuleikara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Á fyrsta starfsári skólans voru nemendur um 70 talsins en núna eru um 150 nemendur við skólann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.