Fréttablaðið - 16.11.2013, Side 90
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT |
TÍMAMÓT
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
KRISTINN J. B. GÚSTAFSSON
Dyrhömrum 18, Reykjavík,
sem lést föstudaginn 8. nóvember
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju,
miðvikudaginn 20. nóvember kl.13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á reikning krabbameinslækningadeildar
Landspítalans við Hringbraut, 11E.
Reikningsnúmer 0323-13-700697, kt. 070474-3959.
Ragna Hrönn Jóhannesdóttir
Guðlaug Þóra Kristinsdóttir Jón Ólafur Ólafsson
Jóhannes Kr. Kristinsson Inga Huld Hermóðsdóttir
Vala Lind Kristinsdóttir Alexander Harrason
og barnabörn.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is
Við þökkum innilega auðsýnda
samúð og kærleika vegna andláts
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÞORBJARGAR (OBBU)
HANSDÓTTUR
Ægissíðu 4, Rangárþingi.
Minning hennar lifir.
Þórhallur Ægir Þorgilsson
Baldur Þórhallsson Felix Bergsson
Ólöf Þórhallsdóttir Guðmundur Óskar Hjaltalín
Bjarki Þórhallsson
Guðmundur, Álfrún Perla,
Kristín Ósk, Ægir og Freyja
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR ANDRÉSDÓTTUR
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu
DAS í Laugarási fyrir hlýhug og góða
umönnun.
María Henley Kristján Ólafsson
Valgerður Björk Einarsdóttir
Guðný Alda Einarsdóttir
Þórdís Heiða Einarsdóttir
Sturla Einarsson Freyja Valgeirsdóttir
Andrés Einar Einarsson Halldóra Berglind Brynjarsdóttir
Guðrún Björg Einarsdóttir Helgi Guðjón Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
bróðir okkar og mágur,
HREINN JÓNSSON
Blikahólum 2, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
föstudaginn 1. nóvember. Útförin fór fram frá
Fossvogskirkju í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kolbrún Olgeirsdóttir
Valgerður Jónsdóttir
Sæbjörn Jónsson
Jón Jónsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL ÞÓRHALLSSON
læknir,
Laugarnesvegi 89,
sem lést 6. nóvember sl. verður
jarð sunginn frá Neskirkju
miðvikudaginn 20. nóvember kl. 13.00.
Hildigunnur Halldórsdóttir
Hjördís S. Pálsdóttir Björgúlfur Pétursson
Þorgerður B. Pálsdóttir Guðmundur K. Marinósson
Bentína U. Pálsdóttir Kristinn Á. Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSTA SVEINBJARNARDÓTTIR
frá Núpi, Vestur-Eyjafjöllum,
lést á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli
11. nóvember. Útförin fer fram frá
Ásólfsskálakirkju 23. nóvember kl. 14.00.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Sveinn Ívarsson
Guðmundur Guðmundsson Berglind Hilmarsdóttir
Guðbjörg Birna Guðmundsdóttir Björn Eysteinsson
barnabörn og langömmubarn.
Móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN ELÍASDÓTTIR
frá Hábæ,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn
4. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Sigurður Ólafsson Herdís Hallgrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRDÍSAR EGILSDÓTTUR
Langeyrarvegi 20,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Vegamóta á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund sem annaðist hana af virðingu og hlýju.
Gunnar Egill Finnbogason Halla Jónsdóttir
Málfríður Finnbogadóttir Jóhannes Tómasson
Reynir Þór Finnbogason Kristín Waage
barnabörn og barnabarnabörn.
„Fyrsta veturinn vorum við bara að
kenna forskólakennslu, inni í Selja-
kirkju og í safnaðarsalnum og þá
hófst hið góða samstarf kirkjunnar
og skólans sem stendur enn í dag,“
segir Edda Borg Ólafsdóttir, skóla-
stjóri Tónskóla Eddu Borg. Bjarni
Sveinbjörnsson, tónlistarmaður og
eiginmaður Eddu, hefur verið hennar
hægri hönd í skólaumsjóninni.
Það stendur mikið til í Tónskóla
Eddu Borg því skólinn heldur upp á 25.
starfsár sitt á skólaárinu en hann var
stofnaður haustið 1989. Edda Borg var
þá nýútskrifaður tónmenntakennari
og kenndi tónmennt í Seljaskóla vet-
urinn 1988-1989. Edda Borg segir að
þá hafi hugmyndin að stofnun tónskól-
ans kviknað, eftir að hafa séð þörfina
fyrir tónlistarkennslu í hverfinu.
„Í upphafi var ég í öllu, allt frá því
að kenna á píanó til þess að ræsta skól-
ann en nú hefur þetta aðeins breyst,“
segir Edda Borg létt í lund. Fljót-
lega flutti skólinn úr kirkjunni yfir
í Hólmasel 4-6 og bættist hljóðfæra-
kennsla við. Skólinn var þar þangað
til haustið 2009, þá á tuttugasta starfs-
árinu, en þá flutti hann í nýtt og glæsi-
legt húsnæði í Kleifarseli 18.
„Á fyrsta starfsári skólans voru
nemendur um 70 talsins en núna nema
um 150 nemendur við skólann,“ segir
Edda Borg en nýja húsnæðið er virki-
lega glæsilegt og öll aðstaða til fyrir-
myndar. „Píanóið hefur alltaf verið
vinsælasta hljóðfærið en við kenn-
um á flestöll hljóðfæri í dag – það eru
sveiflur í vinsældum hljóðfæra á milli
ára.“
Fram að þessu hefur skólinn sent
nemendur frá sér þegar komið er
áleiðis í náminu, en á undanförn-
um árum hefur hann í auknum mæli
hafið samstarf við aðra tónlistarskóla
svo unnt sé að bjóða nemendum upp
á allar þær aukagreinar og samspil
sem þarf til að klára tónlistarnámið
við skólann.
„Í tilefni afmælisins ætlum við að
brjóta upp kennsluna á næstu önn og
hafa opna viku fyrstu vikuna í mars.
Sú vika endar svo með afmælistón-
leikum 8. mars í Seljakirkju, þar sem
við viljum sjá fyrrverandi, núverandi
og tilvonandi nemendur,“ útskýrir
Edda Borg. Tónleikar skólans hafa
alla tíð verið haldnir í Seljakirkju og
er samstarfið mjög gott.
„Skólinn er nú í fyrsta skipti að
útskrifa nemanda af framhaldsstigi
en Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmón-
íkuleikari verður með burtfararprófs-
tónleika í Hannesarholti föstudaginn
22. nóvember og erum við mjög stolt
af honum,“ segir Edda Borg.
gunnarleo@frettabladid.is
Tímamót í tónlistinni
Tónskóli Eddu Borg á 25 ára afmæli í ár og útskrifar nemanda af framhaldsstigi.
STOLT Edda Borg Ólafsdóttir og Bjarni Sveinbjörnsson eru stolt af Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni harmóníkuleikara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á fyrsta starfsári
skólans voru nemendur um
70 talsins en núna eru um
150 nemendur við skólann.