Fréttablaðið - 16.11.2013, Síða 108

Fréttablaðið - 16.11.2013, Síða 108
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 76 „Í upphafi var X-ið meira grund- völlur fyrir ýmsar jaðartónlist- arsenur til að koma sínu á fram- færi. Þetta var jaðartónlist úr öllum áttum og lítil sameigin- leg stefna,“ segir útvarpsmað- urinn Þossi um upphafsár X-ins, útvarpsstöðvarinnar vinsælu. Hann segir X-ið hafa verið að svara mikilli þörf. „Það var klárlega pláss á markaðnum fyrir svona stuð. Í þessa daga var varla hægt að heyra Led Zeppelin í útvarpinu, það þótti of þungt. Á X-inu heyrðist líka danstónlist, rapptónlist, funk og fleira sem var hvergi hægt að heyra annars staðar.“ Að sögn Þossa var húsnæði ansi nöturlegt í árdaga útvarps- stöðvarinnar. „Við vorum í húsi við Aðalstræti sem var að hruni komið. Allt mjög nöturlegt. Tækin vöru gömul. Enginn glam- úr, meira bara sóðalegt.“ Hlutverk Þorsteins óx jafnt og þétt á nýrri útvarpsstöð. „Ég var með minn eigin þátt og spilaði funktónlist. Síðan var ég fenginn í afleysingar yfir dag- inn og fljótlega var ég kominn í fast starf.“ Hann segir X-ið hafa verið leiðandi á ýmsum sviðum skemmtanalífs. „Rosalega margt sem gerðist fór í gegnum X-ið. Danssenan var að miklu leyti rekin þaðan, öll klúbbasenan fylgdi með. Á X-inu var kannski upphitun fyrir kvöldið. Þetta var eiginlega sameiningarpunktur fyrir þá sem vildu skemmta sér eða hlusta á góða tónlist.“ Þegar Þossi lítur til baka yfir árin á X-inu segir hann að erfitt sé að segja eitthvað eitt standa upp úr. „Þetta var frábær tími í heildina. Ferli mínum þarna má skipta í nokkur ólík tímabil sem voru misskemmtileg auðvi- tað eins og gengur og gerist. Við tengdumst einhvern veginn öllu sem var að gerast. Við náðum ótrúlegum árangri í hlustunar- mælingum og gerðum góða hluti þegar við vorum að byrja. Þetta var rokk og ról-útvarp í öllum skilningi.“ Rokk og ról útvarp í öllum skilningi Þorsteinn Hreggviðsson, betur þekktur sem Þossi, segir lítinn glamúr hafa verið yfi r útvarpsrekstri X-ins í byrjun. Hann segir X-ið hafa nýtt sér rúm á markaðnum, spilað tónlist sem fólk vildi heyra. Hann segir X-ið hafa verið allt í öllu í skemmtanalífi Reykjavíkur. ÞORSTEINN HREGGVIÐSSON „Skemmtilegustu tímarnir mínar á X-inu eru klárlega núna. Við erum búnir að ganga í gegnum ýmislegt og nú er þetta allt komið í góðan farveg,“ segir Þorkell Máni Pétursson, útvarpsstjóri X-ins, þegar hann lítur yfir feril sinn hjá útvarpsstöðinni sem hófst fyrir sextán árum. „Ég byrjaði á næturvöktum. Þossa (Þorsteini Hreggviðssyni) þótti það góð hugmynd. Hann sagði að ég hefði ekkert betra að gera.“ Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og X-ið verið til húsa víða um borgina. „Við byrjuðum í Aðalstræti en fljótlega fluttum við okkur yfir í gömlu Moggahöllina. Það var besta staðsetningin. Við vorum undir nokkrum fyrirtækjum og reksturinn oft erfiður. Ég man eiginlega ekki eftir þessu öðruvísi en að ein- hver hafi verið að ræða um gjaldþrot,“ segir Máni. Hann segist ánægður með yfirmenn sína í gegnum tíðina. „Ég get ekki ímyndað mér að það hafi alltaf verið arðbært að reka stöðina. Það eru forrétt- indi að fá að vinna á X-inu, að vera með besta vini sínum daglega. Við erum að verða langlífasti dúett Íslandssögunnar,“ segir Máni um félaga sinn Frosta Logason, sem er meðstjórnandi hans í þættinum Harmageddon. „Við byrjuðum árið 2007 eða 2008, bíddu aðeins,“ segir Máni og slær nafni þáttarins upp í leitarvél á netinu. „Við byrj- uðum árið 2008. Við erum ekki mikið fyrir að muna dagsetningar og erum ekki mikið að gera mikið úr okkur.“ Hann segir erfiðustu tímana hafa verið rétt eftir efnahagshrunið þegar stóð til að reka þá. „Við ákváðum að sætta okkur við drulluléleg laun til þess að halda stöðinni lifandi. Eftir á að hyggja var það frábær ákvörðun. Það var æðislegt að vera á lélegum launum árið 2008 og 2009 þegar allir voru reiðir. Við gátum úthúðað stjórnmálamönnum og útrásarvíkingum á launum, þótt léleg hafi verið. Þetta var eiginlega andleg hreinsun.“ Máni segir launin hafa batnað til muna. „En við erum samt á skítalaunum,“ bætir hann við í stríðnistón. Forréttindi að vinna á X-inu Þorkell Máni Pétursson, útvarpsstjóri á X-inu, hefur upplifað ýmislegt á sextán ára ferli sínum á stöðinni. Hann er ánægður með stöðu X-ins nú á dögum. ÞORKELL MÁNI PÉTURSSON 1998 Þátturinn Partý Zone naut mikilla vinsælda á X-inu. Hér er verið að halda upp á átta ára afmæli þáttarins, í október. Þáttarstjórnendurnir Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason með tveimur vinum. 1996 Hér er Þorsteinn Hreggviðsson, betur þekktur sem Þossi, í hljóðveri X-ins í ágúst. Þarna er X-ið þriggja ára gamalt. Þossi gegndi veigamiklu hlutverki á stöðinni í fjölda ára. 2002 Þetta eru Reynir Pálsson, sem var með þáttinn Breakbeat, Baldur Ingi Baldursson, sem var með Fönkþáttinn, Róbert Aron Magnússon, sem var með Chronic, Frosti Logason, sem var með Babylon, og Andri Freyr Viðarsson, sem stýrði Karate. 1993 Á þessari mynd eru þeir Davíð Þór Jónsson og Jakob Bjarnar Grétarsson sem stýrðu þættinum Górillunni. Þættirnir voru sendir út á samtengdum rásum Aðalstöðvarinnar og X-ins. ÚTVARPSSTÖÐIN X-IÐ HELDUR UPP Á 20 ÁRA AFMÆLI UM ÞESSAR MUNDIR Kjartan Atli Kjartansson kjartanatli@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.