Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 42
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
Heimsmeistaraeinvígið í skák fer nú fram í borginni Chennai á Indlandi þar sem Viswanathan Anand, núverandi heimsmeistari, ver heimsmeistaratitil sinn
gegn norska undrabarninu Magnusi
Carlsen. Langt er síðan heimsmeistara-
einvígi hefur vakið jafn mikla athygli
og tala margir um að framtíð skáklist-
arinnar sé jafnvel í húfi. Magnus Carl-
sen er um 20 árum yngri en Anand.
Ef Norðmaðurinn ungi sigrar fær
skákin svo sannarlega andlitslyftingu.
Magnus Carlsen er ekki bara snillingur
við skákborðið – hann er ofurstjarna,
módel og hefur oft verið kallaður rokk-
stjarna skákheimsins.
Fyrstu fjórar skákirnar í einvíginu
enduðu með jafntefli. Upphaf einvíg-
isins minnir á þungavigtarbardaga í
hnefaleikum þar sem menn nota fyrstu
loturnar til að fá tilfinningu fyrir and-
stæðingnum. Sigurvegarinn í einvíginu
fær 2,5 milljónir Bandaríkjadala í sinn
hlut – rétt rúmar 300 milljónir íslenskra
króna. En það eru ekki bara peningar í
húfi. Þrátt fyrir að það hafi aldrei fleiri
teflt á heimsvísu hafa vinsældir skák-
listarinnar dalað. Það er orðið langt
síðan almenningur vissi hver væri
heimsmeistari í skák eða þekkti sterk-
ustu skákmenn heims með nafni.
Skákin náði hæstu hæðum með ein-
vígi Bobby Fischers og Boris Spassky
á Íslandi árið 1972. Enda fékk einvíg-
ið viðurnefnið Einvígi aldarinnar og
varð táknmynd kalda stríðsins, heims-
veldanna tveggja sem litu á heiminn
eins og skákborð í flóknu stríði. Skákin
komst aftur í sviðsljósið þegar Garry
Kasparov, þá ungur maður á þrítugs-
aldri, skoraði sovéska heimsmeistarann
Anatoly Karpov á hólm. Einvígi þeirra
var langt og snúið. Kasparov, sem var
gyðingur og fæddur í Armeníu, var
ekki með sovésku skákelítuna með sér
í liði en hæfileikar hans voru slíkir að
hann vann engu að síður og varð yngsti
heimsmeistari sögunnar árið 1985.
Síðar átti Kasparov eftir að vekja
heimsathygli þegar hann tefldi gegn
ofurtölvunni Deep Blue árið 1997 og
tapaði. Líklega var það síðasta skák-
einvígið sem náði heimsathygli enda
töluðu margir um viðureignina sem
uppgjör mannsins gegn tölvunum.
Kasparov settist í helgan stein árið
2005. Síðan þá hafa átök innan alþjóða-
skáksambandsins og sterkustu skák-
manna heims gert það að verkum að
erfitt hefur reynst að krýna óumdeild-
an heimsmeistara. Almenningur hefur
misst áhugann á keppnisskák. Síðustu
heimsmeistaraeinvígi hafa verið háð
fyrir tómum áhorfendasölum í borgum
sem fáir þekkja.
Einvígið milli Anands og Magnusar
Carlsen er upplagt tækifæri fyrir skák-
ina að ná aftur fyrri vinsældum. En þá
þarf Magnus Carlsen helst að vinna og
verða hið nýja andlit skákarinnar. Öll
spjót beinast í raun að Anand sem hefur
í gegnum árin sýnt gríðarlegan styrk í
einvígum um heimsmeistaratitilinn en
ekki náð jafn góðum árangri á venjuleg-
um mótum. Spurningin er hvort aldur-
inn, reynslan og undirbúningur nái að
sigra snillinginn Magnus Carlsen sem
er þekktur fyrir að vilja finna lausn
á flóknum stöðum yfir borðinu, gefur
minna fyrir undirbúning og kann því
vel að sigla á óþekkt mið.
Það er kannski dæmi um pressuna
á Anand að þegar hann var spurð-
ur hvernig hægt væri að vekja aftur
áhuga almennings á skák og fá stór-
fyrirtæki til að veita meiri peningum
í íþróttina var svarið einfalt: Magnus
Carlsen.
Framtíð skáklistarinnar í húfi
Norska undrabarnið Magnus Carlsen berst um heimsmeistaratitilinn í skák við indverska snillinginn Viswanathan Anand.
Þeir eru fulltrúar mismunandi kynslóða en vonir standa til þess að sigur Carslens gæti endurvakið áhuga almennings á skák.
GRÍÐARLEGAR VINSÆLDIR Þessar stelpur sendu Verdens Gang mynd til stuðnings Magnusi
Carlsen. Myndin hefur vakið mikla athygli í Noregi eins og einvígið allt.
➜ Fulltrúar ólíkra kynslóða
Magnus Carlsen er fæddur 30. nóvember 1990 og verður því 23 ára gamall síðar í mánuðinum.
Hann er í fyrsta sæti á styrkleikalista FIDE yfir sterkustu skákmenn heims – hærri á listan-
um en heimsmeistarinn Anand, sem hann teflir nú við í Chennai á Indlandi. Magnus Carlsen
var aðeins 13 ára gamall þegar hann náði stórmeistaratitlinum. Fyrir utan að vera einn besti
skákmaður í heimi er Magnus Carlsen sannkölluð ofurstjarna í Noregi. Hann þykir fram-
bærilegt módel og hefur verið andlit vörumerkisins G-Star Raw og ekki er óalgengt að hann sé
umvafinn stúlknaskara sem öskrar af fögnuði þegar hann birtist.
Viswanathan Anand fæddist 11. desember 1969. Hann hefur fimm sinnum unnið heims-
meistaratitilinn í skák og hefur verið óumdeildur heimsmeistari frá árinu 2007. Hann er einnig
þekktur fyrir hæfileika sína í hraðskák þar sem fáir standast honum snúning. Anand varð fyrsti
indverski stórmeistarinn árið 1988. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga á Ind-
landi þar sem hann er afar þekktur. Anand er lýst sem afar fjölhæfum skákmanni. Sigur gegn
Magnusi Carlsen myndi innsigla stöðu hans sem eins af risunum í skáksögunni.
„Einvígið vekur gríðarlega
athygli hér í Noregi,“ segir Gísli
Kristjánsson, fréttaritari í Ósló.
Hann segir það hafa komið
fjölmiðlum þar í landi talsvert
á óvart. „Sérstaklega hafa net-
miðlarnir grætt á þessum mikla
áhuga. Verdens Gang er með
beina útsendingu á netvarpi
sínu og áhorfið hefur farið fram
úr öllum vonum. Áhuginn er
svo mikill að sums staðar liggur
vinna í fyrirtækjum niðri. Menn
liggja bara á netinu og fylgjast
með leikjunum í beinni.“
Gísli segist ekki hafa séð fjölgun á skákborðum á kaffihúsum og götum úti. „Nei,
stóra sagan í þessu er snjallsímabyltingin. Nú sér maður svart á hvítu hvað snjallsím-
arnir og spjaldtölvurnar eru að breyta hefðbundinni fjölmiðlun. Það er sama hvert
maður lítur, það eru allir með einvígið og leikina í beinni í snjallsímunum. Í gamla
daga sá fólk þetta í sjónvarpinu en nú eru það litlu tölvurnar sem allir fylgjast með.
Þetta er sigur snjallsímanna í fjölmiðlastríðinu.“
Hann segir Norðmenn hæfilega bjartsýna á sigur. „Fyrstu fjórar skákirnar enduðu
með jafntefli svo mótstaðan er sterkari en menn héldu. En þetta heldur fólki við
efnið. Hver skák tekur óskaplegan tíma en hér í landi er fólk vant að horfa á íþróttir
eins og 50 kílómetra skíðagöngu þar sem klukkutími getur liðið milli þess sem menn
sjást í mynd. Svo skákin er bara nokkuð æsileg hér í Noregi um þessar mundir.“
Sigur snjallsímanna
Áhuginn
er svo
mikill að
sums
staðar
liggur
vinna í
fyrirtækj-
um niðri.
Menn
liggja bara
á netinu og
fylgjast
með
leikjunum
í beinni.
Símon
Birgisson
simon@frettabladid.is
ALLT UNDIR
Magnus Carlsen og
Viswanathan Anand
einbeittir við skák-
borðið við upphaf
einvígisins í Chennai á
Indlandi. Mynd AP