Fréttablaðið - 16.11.2013, Síða 26
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
Jú, það er bara frábær stemning í hópnum,“ segir Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri en á sunnudags-kvöld verður leikritið Ref-urinn frumsýnt í Borgar-
leikhúsinu. Leikritið er það fyrsta
sem Vignir leikstýrir í atvinnu-
leikhúsi en hann hefur sett upp
sýningar með leikhópunum Vér
morðingjar og Munaðarleysingj-
unum síðustu ár.
Refurinn er nýtt breskt leikrit
eftir Dawn King, unga skáld-
konu sem hefur vakið mikla
athygli þar í landi. Verkið hlaut
til að mynda Papatango-leiklist-
arverðlaunin árið 2011 og hefur
verið sett upp víða um heim.
Dawn King flaug reyndar til
Íslands á fimmtudagskvöld til að
vera viðstödd frumsýninguna í
boði Vignis.
„Ég er vinur hennar á Twitt-
er og fannst hún svo kúl að ég
ákvað að bjóða henni til lands-
ins. Eftir á að hyggja var það
kannski ekki besta hugmynd
í heimi. Eitt er að leikstýra
fyrsta verkinu sínu í alvöru
leikhúsi en nú bætist stressið
við að vera með höfundinn við-
staddan ofan á,“ segir Vignir í
léttum dúr.
Hann segir Refinn vera
litla sögu með stóran boðskap.
„Verkið fjallar um ung hjón
sem fá refabendi frá ríkinu í
heimsókn. Hann er kominn til
að taka út býlið þeirra og sjá
hvort það sé sýkt af refum sem
í þessum heimi eru undirrót
alls ills. Refirnir eru ógnin og
verkið fjallar í raun um þessa
þörf fyrir að búa til sameigin-
legan óvin. Við eigum alltaf að
vera hrædd við eitthvað. Þarna
hefur ríkið ákveðið að refurinn
sé óvinurinn en spurningin sem
verkið varpar fram er auðvitað
hvort refurinn sé í raun og veru
til. Þurfum við alltaf að vera
hrædd?“
Vignir segir frábært að fá
tækifæri til að leikstýra í Borg-
arleikhúsinu. Það sé svo enn
skemmtilegra að í leikhópnum
eru tvö af bekkjarsystkinum
hans úr Listaháskóla Íslands,
Hallgrímur Ólafsson og Tinna
Lind Gunnarsdóttir, en Vignir
útskrifaðist sem leikari fyrir
nokkrum árum. „Jú, þetta er
í fyrsta skipti sem ég get sagt
bekkjarsystkinum mín hvernig
þau eigi að gera hlutina,“ segir
Vignir. „En svona í fullri alvöru
þá reyni ég ekki að þykjast vita
svörin við öllum spurningunum.
Ég held að góður leikstjóri sé sá
sem getur líka sagt: Ég veit það
ekki.“
Þurfum við að vera hrædd?
Vignir Rafn Valþórsson leikstýrir sínu fyrsta verki í atvinnuleikhúsi, Refnum, á sunnudagskvöld.
Hann segir gaman að fá loksins að segja fyrrverandi bekkjarsystkinum fyrir verkum.
VIGNIR RAFN VALÞÓRSSON LEIKSTJÓRI Refurinn er hans fyrsta leikstjórnarverkefni í Borgarleikhúsinu. FRÉTTABLADID/XXXXX
Símon
Birgisson
simon@frettabladid.is
Anna Svava Knútsdóttir leikkona
Í keilu með mömmu
Í kvöld verð ég veislustjóri hjá WOW air og fer svo beint
í fertugsafmæli hjá Konna vini mínum. Á morgun ætla
ég svo að skella mér í keilu með mömmu. Ég gaf henni
einkatíma fyrir okkur báðar hjá landsliðsþjálfaranum í
keilu svo fellurnar verða líklega óteljandi.
Bjarni Bjarnason
rithöfundur
Færeyska alla helgina
Ég er að undirbúa lestur á nýút-
kominni bók í Færeyjum og þarf
því að rifja upp færeyskuna. Ég
verð einn með tvíburastrákana
mína og hyggst tala við þá fær-
eysku alla helgina.
Guðrún Helga Sigurðar-
dóttir ferðafrömuður
Hellaferð og veisla
Ég ætla með ferðamenn í
hellaferð á Reykjanes í dag og
segja þeim sögur og í kvöld
fer ég í doktorsveislu en
morgundagurinn er óskrifað
blað.
Steinunn Ólína Þorvarðar-
dóttir, leikkona og rit-
stjóri kvennabladid.is
Erfi tt að fasta
Vinna, leika við börnin mín
og fara í bröns með familí-
unni sem verður erfitt af því
að ég er að fasta!
Vísindi og tónlist í Hörpu
Sverrir
Guðjónsson
kemur fram
Tónleikar Á sunnudaginn verður
óvenjuleg sýning í Hörpu þar sem
vísindi og listir koma saman í verkinu
SOLAR5 eftir Sverri Guðjónsson,
Huga Guðmundsson, Joshue Ott og
fleiri. Verkið byggir á „quasicrystals“
eða fimmfaldri samhverfu tónlistar,
sem tengist formfræðirannsóknum,
heimspeki og lífsstarfi Einars Þor-
steins Einarssonar, sem þróaði hina
svonefndu „quasibrick“, sem Ólafur
Elíasson notaði við hönnun glerhjúps
og lofts Hörpu. Flutningur verksins
tekur um eina klukkustund og geta
gestir haft áhrif á hljóðinnsetninguna
með skynjurum og spjaldtölvum.
SOLAR5 - Journey to the center of
sound. Flutt í Hörpu 17. nóvember
2013 kl. 17.00 og 21.00.
Hafnarganga í Hafnarfi rði
Daglegt líf
skoðað
Göngutúr Kristinn Aadnegard, yfir-
hafnsögumaður hjá Hafnarfjarðar-
höfn, mun leiða göngu um hafnar-
svæðið. Gangan hefst í Hafnarborg,
menningar- og listamiðstöð Hafnar-
fjarðar. Gangan er hluti af dagskrá í
tengslum við verkefnið Þinn staður
– okkar umhverfi, opna vinnustofu
um bæjarskipulag sem umgjörð
daglegs lífs í Hafnarfirði. Gangan
hefst við Hafnarborg sunnudaginn
17. nóvember kl. 15.00.
Sýnir í skúr
Samtal við
veður og haf
Myndlist Listakonan Dodda Maggý
opnar sýningu í Menningarhúsinu
Skúrnum laugardaginn 16. nóvember
klukkan 15.00. Sýningin, sem er
hljóðinnsetning og ber titilinn Æsa,
er tíu radda kórverk unnið sérstak-
lega fyrir Menningarhúsið Skúrinn.
Verkið liggur á óljósu svæði milli tón-
og hljóðlistar og má segja að það
sé eins konar samtal við veður og
haf. Menningarhúsið Skúrinn er að
þessu sinni staðsettur við Bygggarða,
vestast á Seltjarnarnesi.
HELGIN
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR
Kvennakórinn Katla heldur tónleika í Fríkirkjunni í dag,
laugardaginn 16. nóvember. Þema tónleikanna er „Ástin í öllu
sínu veldi“ en í tilkynningu frá kórnum segja þær það verð-
ugt málefni sem varði mannkynið allt. Þær segja jafnframt að
Kötlurnar séu þekktar fyrir kraftmikla framkomu og hríf-
andi söng. Öll lög eru flutt án undirleiks. Stjórnendur kórsins
eru Hildigunnar Einarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir.
„Við héldum inntökupróf þar sem við leituðum eftir flottum og
hressum söngkonum en ekki endilega hámenntuðum,“ svarar
Lilja Dögg, spurð um inntökuskilyrðin í kórinn. „Aðalatriðið
er að konurnar í kórnum hafi ástríðu fyrir söng og samveru.
Það eru engin landamæri. Við erum lýðræðislegar í lagavali,
reynum að fara út fyrir rammann. Ætli það sé ekki okkar
mottó. Við viljum ögra okkur sjálfum og hafa gaman.“ - sb
Ástríðufullur kvennakór í Fríkirkjunni
Þema tónleika Kvennakórsins Kötlu í kvöld er ástin í öllu sínu veldi. Meðlimir segja það verðugt málefni.
KÖTLUR
Á GÓÐRI
STUND
Inntöku-
skilyrðið í
Kötlurnar
er að elska
tónlist og
vera hress.
/MYND ÚR
EINKASAFNI