Fréttablaðið - 16.11.2013, Page 105
LAUGARDAGUR 16. nóvember 2013 | MENNING | 73
Tónleikar
22.00 Ellen Kristjánsdóttir og dætur
skemmta á Café Rosenberg kl. 22.
23.00 Bandaríski tónlistarmaðurinn
Roland Hartwell leikur og syngur
á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8,
laugardaginn 16. nóvember klukkan
23.00.
Fræðsla
13.00 Laugardaginn 16. nóvember
efnir Ljósmyndasafn Reykjavíkur, í
samstarfi við Nýherja, til kynningar
þar sem sérfræðingar munu fjalla um
ólíka möguleika til að varðveita okkar
ljósmyndir og hættur sem við ættum
að forðast við meðhöndlun þeirra.
Kynningin fer fram í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur frá 13-15.
Sýningar
14.00 Laugardaginn 16. nóvember
kl. 14.00 opnar Ragnar Hólm sýningu
á nýjum vatnslitamyndum í Populus
tremula. Heiti sýningarinnar, Dagur með
Drottni, vísar til himneskrar fegurðar
íslenskrar náttúru. Þetta er sjötta einka-
sýning Ragnars.
14.00 Laugardaginn 16. nóvember kl. 14
opnar myndlistarmaðurinn Jón Laxdal
Halldórsson sýningu með nýjum verkum
í Flóru, Hafnarstræti 90 á Akureyri.
16.00 Laugardaginn 16. nóvember
kl. 16 munu Guðrún Kristjánsdóttir
myndlistarmaður, Daníel Bjarnason
tónskáld og Ólafur Gíslason list-
fræðingur vera með leiðsögn um
sýninguna VATN sem nú stendur yfir í
Hallgrímskirkju.
Hátíðir
10.00 Dagur íslenskrar tungu verður
haldinn hátíðlegur á Gljúfrasteini.
Opið verður laugardaginn 16. nóvem-
ber frá 10-17 og er aðgangur ókeypis.
Upplestur
15.00 Bókmenntaklúbburinn Hana-nú
verður með ljóðalestur í Bókasafni
Kópavogs, Hamraborg 6a, 1. hæð.
Klúbburinn er 30 ára um þessar
mundir og í tilefni af því og degi
íslenskrar tungu lesa félagar ljóð eftir
sjálfa sig og aðra. Allir eru velkomnir
og hvattir til að mæta.
Kvikmyndir
15.00 Laugardaginn 16. nóvember
kl. 15, á degi íslenskrar tungu, verður
heimildarmyndin „Hver var Jónas?“
sýnd í Kamesi Borgarbókasafns,
Tryggvagötu 15. Þetta er leikin heim-
ildamynd um Jónas Hallgrímsson
og eru Steinn Ármann Magnússon,
Valdimar Örn Flygenring og Þröstur
Leó Gunnarsson meðal leikenda.
Sýningartími myndarinnar er 70
mínútur.
Bókmenntir
14.00 Bókin Reykjavík eftir Gérard
Lemarquis, sem Signal Books í Bret-
landi gefur út, verður kynnt í Bókabúð-
inni Sjónalind, Bergstaðastræti 7.
Dansleikir
15.00 Vikivaki verður stiginn í Þjóð-
minjasafni í tilefni af degi íslenskrar
tungu. Unnur Guðjónsdóttir stýrir
dansinum og eru gestir hvattir til að
taka þátt.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
Tónleikar
17.00 Þær Kristín R. Sigurðar-
dóttir sópran og Heiðrún Kristín
Guðvarðardóttir mezzósópran
syngja nokkrar fagrar Ave Maríur
og fleiri ljúf lög á tónleikum í
Háteigskirkju, laugardaginn 16.
nóvember, klukkan 17. Julian
M. Hewlett leikur með þeim á
píanó.
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur
og kynnir lög af hljómplötum á
Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg
8, sunnudaginn 17. nóvember
klukkan 17.00.
17.00 Requiem eftir Gabriel
Fauré og fleira eyrnakonfekt.
Kór Hjallakirkju. Laufey H.
Geirsdóttir sópran, Eirikur H.
Helgason bassi, Elísabet Waage
hörpuleikari og Örn Magnússon
orgelleikari. Stjórnandi Jón Ól.
Sigurðsson Sjá hjallakirkja.is.
Aðgangseyrir kr. 2.500.
20.00 Tónlist tungumálsins er
yfirskrift annarra tónleika vetr-
arins í tónleikaröðinni Hljóðön
í Hafnarborg sem haldnir verða
sunnudaginn 17. nóvember kl.
20. Fram koma Marie Guilleray
söngkona og Tinna Þorsteins-
dóttir píanóleikari, sem leiða
hlustendur inn í tónlistina sem
býr innan í og að baki tungu-
málinu.
20.00 Á tónleikum Kórs Lang-
holtskirkju sunnudaginn 17.
nóvember kl. 20 verða verk
stjörnutónskáldsins Eric Whit-
acre í brennidepli.
Fræðsla
15.00 Rósa Gísladóttir mynd-
listarmaður og Ólafur Gíslason
listfræðingur og fyrrverandi list-
gagnrýnandi munu ræða saman
og við gesti um skúlptúrverk
Rósu á sýningu hennar í Lista-
safni Árnesinga klukkan 15.
16.00 Tveir fyrir einn á
aðgangseyri í Þjóðminjasafn,
ókeypis fyrir yngri en 18
ára. Fjölbreyttar sýningar og
skemmtilegir ratleikir í boði!
Kvikmyndir
15.00 MÍR, Hverfisgötu 105,
sýnir tvær heimildamyndir um
rússneska tónskáldið Dmitri
Shostakovitsj. Stjórnandi beggja
myndanna var Alexander Sokú-
rov, einn kunnasti kvikmynda-
gerðarmaður Rússa, höfundur
kvikmyndanna Alexandra, Rúss-
neska örkin og Faust m.a.
Enskur texti og íslenskt tal.
Aðgangur ókeypis.
Dansleikir
20.00 Dansað verður i félags-
heimili eldri borgara i Stangar-
hyl 4 í Reykjavík næstkomandi
sunnudagskvöld kl. 20.00-23.00.
Danshljómsveitin Klassík leikur
fyrir dansi. Aðgangseyrir er
1.500 kr. fyrir félagsmenn en
1.800 fyrir gesti. Allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
LAUGARDAGUR
SU
N
N
U
D
AG
U
R
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
EKKI
MISSA
AF
Ágústa styrkir UNICEF
Kringlan
Ágústa Dómhildur Karlsdóttir leik-
ur á fiðlu í Kringlunni á sunnudag
frá 15 til 17 til styrktar Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna, UNICEF.
LAB LOKI KYNNIR
SÝNt í Tjarnarbíó - 17. 22. 23. 29. og 30. NÓVEMBER
Sýningar hefjast kl. 20:00 | Miðasala á www.tjarnarbio.is og midi.is
...Rúnar Guðbrandsson hefur löngu sýnt og sannað
að hann er einn af bestu leikstjórum okkar...
...Frammistaða þeirra fjögurra er einn besti hópleikur,
ensembleleikur, sem hér hefur sést langa lengi...
...Það er sérlega gaman að fá þetta frumlega, fyndna
og innihaldsríka verk frá Lab-Loka...
...áhrifamikið verk sem bæði ögrar og skemmtir –
dæmi um þá grósku sem er að finna í frjálsu senunni...
...eitraður kokkteill sem var oft brjálæðislega
fyndinn en um leið óhugnanlegur í fárÁnleika sínum...
jvj/Fréttablaðið
jvj/Fréttablaðið
jvj/Fréttablaðið
SGV/Morgunblaðið
SGV/Morgunblaðið
SB/REYKVÉLIN.is
HA/DV
Höfundur : Lilja Sigurðardóttir | Leikstjóri : Rúnar Guðbrandsson
Leikarar : Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein & Stefán Hallur Stefánsson