Fréttablaðið - 16.11.2013, Side 112
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 80
FÓTBOLTI Strákarnir okkar sýndu
fádæma baráttu í fyrri umspils-
leiknum gegn Króötum á Laugar-
dalsvelli í gærkvöldi. Þrátt fyrir
mótlæti á mótlæti ofan efldust
okkar menn. Markalaust jafnt-
efli varð niðurstaðan sem verða
að teljast frábær úrslit í ljósi þess
að íslenska liðið spilaði manni
færri í tæpan hálfleik.
Ari Freyr Skúlason gaf tón-
inn eftir eina mínútu. Taugarnar
voru það þandar hjá strákunum
okkar að áður en mínúta var liðin
komst Eduardo da Silva í dauða-
færi. Ari Freyr bjargaði nánast á
marklínu en vinstri bakvörðurinn
átti stórkostlegan leik.
Alfreð Finnbogason, sem kom
inn í liðið í stað Eiðs Smára Guð-
johnsen, fékk besta færi Íslands í
leiknum strax mínútu síðar. Varn-
armenn komust fyrir skotið á síð-
ustu stundu.
Varnir beggja liða áttuðu sig á
því að þær þyrftu að herða sig í
kjölfar taugaveiklunar á upphafs-
mínútunum og fátt var um færi.
Allt stefndi í að leikmenn beggja
liða gengju þokkalega sáttir til
Draumurinn um Brasilíu lifi r
Hetjuleg barátta landsliðsmanna Íslands heldur draumnum um þátttöku á HM næsta sumar lifandi. Meiðsli lykil-
manns og rautt spjald drógu ekki þróttinn úr okkar mönnum heldur efl du þá. Möguleikinn er enn fyrir hendi.
ÓTRÚLEG BARÁTTA Ragnar Sigurðsson fer upp í skallabolta við markvörð Króata. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
hálfleiks með stöðu mála þegar
heyra mátti saumnál detta á
Laugardalsvelli. Kolbeinn Sig-
þórsson, sem skoraði hafði í fimm
síðustu landsleikjum Íslands
og framherji liðsins númer eitt,
meiddist illa og þurfti að fara af
velli. Grátleg tíðindi fyrir þjóð-
ina þegar okkar maður var loks-
ins kominn á beinu brautina eftir
erfið axlarmeiðsli.
Eiður Smári Guðjohnsen kom
inn á í hans stað og ekki ónýtt að
eiga markahæsta leikmann lands-
liðsins inni. Eftir fimm mínútuna
leik í síðari hálfleik dundi síðara
áfallið yfir. Ólafur Ingi Skúlason
gleymdi sér í vörninni og Ivan
Perisic féll til jarðar í leið í átt að
marki. Spænski dómarinn, sem
átti ekki sinn besta dag, flautaði
og gat ekki annað en lyft rauðu
spjaldi. Erfiðar fjörutíu mínútur
voru framundan og voru nokkuð
lengi að líða.
Allir sem einn börðust okkar
menn fyrir því að halda draumn-
um á lífi. Draumnum um Brasilíu
sem þeir hafa unnið fyrir undan-
farna fimmtán mánuði. Þeir voru
yfirmáta skynsamir, börðust
hetjulega og unnu vel saman með
stuðningsmenn á vellinum sem
sinn ellefta mann. Aldrei hefur
stemningin á landsleik verið í lík-
ingu við þá sem var í gærkvöldi.
Þjóðsönginn mátti vafalítið heyra
í úthverfum höfuðborgarinnar og
í níutíu mínútur voru raddböndin
þanin og lófaklappið linnulaust. Í
einu orði sagt magnað.
Þótt verkefnið fram undan sé
afar krefjandi er möguleikinn
fyrir hendi. Strákarnir okkar
unnu fyrir þeim miða og munu
vafalítið gera þjóðina stolta í enn
eitt skiptið í Zagreb á þriðjudag.
kolbeinntumi@frettabladid.is
SPORT
Skot (á mark): 4-9 (1-5) Horn: 3-4
Varin skot: Hannes Þór 5 - Pletikosa 1.
Aukaspyrnur: 13-16 Rangstöður: 0-1
HINIR UMSPILSLEIKIRNIR
PORTÚGAL-SVÍÞJÓÐ 1-0
1-0 Cristiano Ronaldo (82.)
ÚKRAÍNA-FRAKKLAND 2-0
1-0 Roman Zozulya (61.), 2-0 Andriy Yarmolenko,
víti (82.)
GRIKKLAND-RÚMENÍA 3-1
1-0 Konstantinos Mitroglou (14.), 1-1 Bogdan
Stancu (19.), 2-1 Dimitris Salpingidis (21.), 3-1
Konstantinos Mitroglou (66.).
VINÁTTULANDSLEIKIR Í GÆR
RÚSSLAND - SERBÍA 1-1
1-0 Aleksandr Samedov (29.), 1-1 Filip
Djordjevic (31.)
DANMÖRK - NOREGUR 2-1
1-0 William Kvist (13.), 1-1 Marcus Pedersen
(78.), 2-1 Nicolai Boilesen (90.)
ÍTALÍA - ÞÝSKALAND 1-1
0-1 Mats Hummels (8.), 1-1 Ignazio Abate (28.)
ÍRLAND - LETTLAND 3-0
1-0 Robbie Keane (22.), 2-0 Aiden McGeady
(68.), 3-0 Shane Long (80.). Fyrsti leikur Michael
O‘Neill með írska landsliðið.
ENGLAND - SÍLE 0-2
0-1 Alexis Sánchez (7.), 0-2 Alexis Sánchez (90.)
SKOTLAND - BANDARÍKIN 0-0
Aron Jóhannsson kom inn á sem varamaður
á 62. mínútu en tókst ekki að skora frekar en
liðsfélögum hans.
Laugardals-
völlurinn
Mallenco frá
Spáni (4)
0-0
FÓTBOLTI „Við börðumst vel og sýndum kjark þó dómarinn hafi verið
skelfilegur. Við héldum áfram og hefðum getað stolið sigri en verðum að
sætta okkur við þetta,“ sagði Ari Freyr Skúlason sem lék sinn langbesta lands-
leik gegn Króatíu í gær. Ísland var manni undir í 40 mínútur í leiknum en Ari
og félagar í vörn Íslands gáfu fá færi á sér þótt Króatía fjölgaði í sókninni og
reyndi allt hvað liðið gat til að skora hið mikilvæga útivallarmark.
„Síðustu fimm mínúturnar voru erfiðar þegar þeir senda fjóra framherja
fram sem hlaupa út um allt. Mér fannst við halda haus þó það fari auðvitað í
taugarnar á okkur þegar dómarinn er í svona skapi.
Markmið okkar var að halda hreinu og við gerðum það en það hefði verið
betra ef við hefðum sett eitt,“ sagði Ari sem var hæstánægður með hugarfar
leikmanna í varnarleiknum í gær.
„Þetta var einn besti varnarleikur okkar í keppninni. Það var hugarfarið
sem var lykillinn að því. Þegar 40 mínútur eru eftir getur maður misst sig í
kæruleysi við að reyna að skora en við héldum okkar stöðum og biðum eftir
þeim,“ sagði Ari Freyr Skúlason. - gmi
Einn besti varnarleikur okkar í keppninni
BJARGAR Á MARKLÍNU Ari Freyr
Skúlason var á réttum stað í upphafi
leiks. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði var hæstánægður að loknum
jafnteflisleiknum gegn Króatíu í gær.
„Þetta köllum við að vinna vel fyrir samherjann. Það
er æðislegt að fá að vera partur af því sem er í gangi í
landsliðinu,“ sagði Aron Einar. Hann neitar því ekki að
það hafi verið erfitt að missa Kolbein Sigþórsson út af
vegna meiðsla og að rauða spjaldið sem Ólafur Ingi
Skúlason hafi sett strik í reikninginn.
„Það kom smá ró yfir okkur með innkomu Eiðs
Smára en annars fannst mér varnarleikurinn okkar
virkilega góður.“
Hann sagðist engar fréttir hafa fengið af
meiðslum Kolbeins strax eftir leik. „Hann
var mjög bólginn og það verður erfitt fyrir
hann [að ná seinni leiknum] en við sjáum
bara til.“
Aron Einar býst ekki við Kolbeini
FÓTBOLTI „Á heildina litið eru
marklaust jafntefli mjög góð
úrslit. Sérstaklega eftir að við
missum leikmann út af,“ sagði
Eiður Smári Guðjohnsen í gær.
„Það hefði verið nógu erfitt
að halda hreinu ellefu á móti ell-
efu, hvað þá tíu á móti ellefu. Því
eru þetta frábær úrslit og ef við
náum að spila ellefu á móti ellefu
úti í Króatíu þá er ég fullviss um
að við getum strítt þeim,“ sagði
Eiður sem var mjög ánægður með
frábæra stemninguna á Laugar-
dalsvelli í gær.
„Það er mikið skemmtilegra að
spila í stemningu og hún var ekki
bara í kvöld. Aðdragandinn að
leiknum og undanfarið í kring-
um landsliðið. Við finnum það
og finnum fyrir þessum mikla
stuðningi og auðvitað hjálpar það
mönnum og við erum stoltir af
þeim afrekum sem við höfum náð
hingað til og viljum reyna að gera
enn betur og gleðja fólkið meira.“
Getum strítt
þeim í Króatíu
FRAMMISTAÐA LEIKMANNA
HANNES ÞÓR HALLDÓRSSON 8
Öryggið uppmálað í öllum sínum aðgerðum og varði vel þegar þurfti.
ÓLAFUR INGI SKÚLASON 4
Virkaði óöruggur í nýrri stöðu. Sofandi í aðdraganda rauða spjaldsins.
RAGNAR SIGURÐSSON 7
Á tánum allan tímann og bjargaði vel oftar en einu sinni.
KÁRI ÁRNASON 7
Traustur í miðverðinum við hlið Ragnars.
ARI FREYR SKÚLASON 8
Besti leikmaður Íslands. Steig ekki feilspor frá fyrstu mínútu.
BIRKIR BJARNASON 5
Náði aldrei að sýna sitt rétta andlit.
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON 7
Skapaði ró á miðjunni þegar hann fékk boltann. Skapaði lítið.
ARON EINAR GUNNARSSON 7
Duglegur á miðjunni en tefldi stundum á tæpasta vað.
JÓHANN BERG GUÐMUNDSSON 5
Hljóp mikið en skilaði bolta afar illa frá sér.
KOLBEINN SIGÞÓRSSON 6
Djöflaðist í Króötunum og Ísland saknaði hans í seinni hálfleik.
ALFREÐ FINNBOGASON 5
Fékk gott færi eftir eina mínútu en komst ekki í takt við leikinn.
VARAMENN:
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN (INN Á 45. MÍN. FYRIR KOLBEIN) 6
Einmana frammi eftir rauða spjaldið en hélt bolta vel þegar þurfti.
RÚRIK GÍSLASON (INN Á 63. MÍN. FYRIR ALFREÐ) 7
Kom inn á með krafti og barðist vel með félögum sínum.
Markmið sjóðsins eru eftirfarandi:
Að veita afreksíþróttafólki í íþróttafélögum í Kópavogi
fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni og þannig
búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
Að veita afreksíþróttafólki í hópíþróttum í íþróttafélögum
í Kópavogi sem náð hefur afburðaárangri fjárhagslegan
styrk og gera þeim kleift að búa sig enn betur undir áfram-
haldandi keppni.
Að veita afreksíþróttafólki styrk sem á lögheimili
í Kópavogi og stundar íþrótt sem ekki er iðkuð með
íþróttafélagi í Kópavogi.
Að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin
afrek í íþróttum jafnt kvenna sem karla.
Umsóknum um styrki skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum fyrir 30. nóvember 2013.
Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð fyrir sjóðinn fást
í þjónustuveri Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð.
Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin ásamt reglugerð
á vef bæjarins, kopavogur.is.
Nánari upplýsingar veitir íþróttafulltrúi í síma 570 1500.
Umsóknir um
íþróttastyrki
kopavogur.is
Íþróttaráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum
um styrki úr afrekssjóði ráðsins.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
33
01