Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 6

Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 6
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Jólapakkann Útivera í 1. Hvað heitir forsætisráðherra Úkraínu? 2. Hversu mikið á frístundastyrkur fyrir börn í Reykjavík að hækka? 3. Hvaða íslenski ilmhönnuður kynnti afurðir sínar í Moskvu á dögunum? SVÖR STJÓRNSÝSLA Sitt sýnist hverjum um aðgerðaáætlun ríkisstjórnar- innar um höfuðstólslækkun hús- næðislána sem kynnt var síðast- liðinn laugardag. Það kom í ljós þegar blaðamaður tók fólk tali á förnum vegi í vikunni. Margir vildu þó ekki tjá sig um málið því þeir vissu ekki fyrir víst hvernig leiðréttingin myndi snerta þeirra persónulegu hagi. Samkvæmt upplýsingum frá Íbúðalánasjóði eru fjölmargir í þeirri stöðu. Fyrri hluta vikunnar bárust þjónustuveri sjóðsins um helmingi fleiri símtöl en venju- lega á mánudegi og þriðjudegi. Helstu fyrirspurnirnar snúast um hvenær og hvernig hægt verði að sækja um skuldaniðurfellingu. Íbúðalánasjóður gat ekki gefið neinar upplýsingar umfram þær sem koma fram á kynningarsíðu yfirvalda um málið. Þar kemur fram að leiðrétting- in muni koma til framkvæmda um mitt næsta ár og að hægt verði að áætla niðurfellingu hvers heimilis fljótlega með mik- illi vissu. Þangað til endanlegt frumvarp um málið hefur verið samþykkt getur sjóðurinn ekki gefið nákvæmari svör. Sömu svör er að fá frá forsætis- ráðuneytinu. Að ferlið liggi ekki ljóst fyrir ennþá enda þurfi að útfæra áætlunina nánar í frum- vörpum. erlabjorg@frettabladid.is Fólk vill fá svör um skuldaniðurfellingu Almenningur bíður frekari upplýsinga um aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar. Álag hefur verið á þjónustuveri Íbúðalánasjóðs. Fólk segist vilja vita hvenær og hvernig sækja megi um niðurfellingu. Nánari tímasetning fæst ekki frá forsætisráðuneyti. Snorri Evuson mun ekkert fá persónu- lega úr skulda- leiðréttingum. „Nei, þetta hefur engin áhrif á mig af því að ég skulda of lítið.“ Snorri er þó ánægður með aðgerðaáætlun ríkis- stjórnarinnar. „Mér finnst sjálfsagt mál að fjármun- um sé eytt í þetta. Mér þykir óréttlátt hvernig þetta hefur farið og hef ekkert á móti því að bæta fólki það upp.“ ➜ Ánægður með að fólk fái réttlæti „Þetta hefur ekki áhrif á mig, ég fæ ekkert. Ætli maður verði ekki að sætta sig við það,“ segir Ragnheiður Helga Óladóttir. Hún hefur aftur á móti áhyggjur af unga fólkinu. „Það á ekkert eftir að eiga þegar það er komið á aldur ef það nýtir séreignarsparn- aðinn. Þá lendir það í sömu stöðu og ég sem er enn að bíða eftir að ríkisstjórnin geri eitthvað fyrir eldri borgara.“ ➜ Hvað verður gert fyrir eldri borgara? „Ég fæ einhverja lækkun en er alls ekki ánægð með þessar tillögur,“ segir Anna Guðrún Sigurjónsdóttir. Anna segir skuldaleið- réttingar breyta sáralitlu hjá henni, lánin lækki kannski um milljón sem verði komin aftur eftir ár. „Ég hefði viljað sleppa þessu og setja peninginn í eitthvað annað, eins og að hækka persónuafslátt eða í Landspítalann.“ ➜ Setja frekar pen- ing í eitthvað annað „Þetta mun koma að góðum notum,“ segir Borgþór Rafn Þórhallsson. Aðgerðaáætlunin kemur Borgþóri ekki á óvart. Hún sé í takt við væntingar hans. Borgþór veit þó ekki nákvæmlega hvaða leið hann muni fara. „Ég hef ekki ákveðið hvort ég tek viðbótarlífeyrissparnaðinn í þetta. Ég þarf að skoða það betur.“ ➜ Mun koma sér að góðum notum 1. Mykola Azarov. 2. Um 5 þúsund krónur – úr 25 í 30 þúsund krónur á ári. 3. Andrea Maack. AÐGERÐAÁÆTLUN KYNNT Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son segja aðgerðir koma til framkvæmda á miðju næsta ári. Tímasetning fyrir umsóknir hefur ekki verið gefin upp. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FJARSKIPTI Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofn- unar, segir fulla ástæðu til að gera reglulegar úttektir á SMS- gagnagrunnum fjarskiptafyrir- tækjanna. Það er hins vegar ekki gert. „Við teljum okkur ekki hafa haft afkastagetu til þess eða fjármuni,“ segir Hrafnkell. Hann segir að það muni ekki breytast þrátt fyrir árás hakkarans á Vodafone um síðustu helgi: „Ekki miðað við þær upp- lýsingar sem ég hef úr fjárlög- um fyrir 2014, eða fjáraukalögum 2013.“ Í mars í fyrra var gerð úttekt á upplýsingatæknimálum Símans fyrir Póst- og fjarskiptastofnun. Í kjölfarið sendi stofnunin Síman- um átján úrbótatillögur, en engin þeirra sneri að geymslu ódulkóð- aðra SMS-skilaboða sem sendar voru af vef Símans. Hrafnkell segir þessa úttekt hafa verið gerða á svokölluðum umferðargagnagrunni Símans. „Þar eru upplýsingar um hver hringir í hvern, hversu lengi og svo framvegis. Þessi ákvörðun laut að þeim gagnagrunni, ekki SMS-gagnagrunninum,“ segir Hrafnkell, en 42. grein fjarskipta- laga kveður á um að gögnum skuli eyða eða þau gerð nafnlaus eftir sex mánuði. - hva Póst- og fjarskiptastofnun hefur ekki eftirlit með SMS-gagnagrunnum: Vantar fé til að sinna eftirliti HRAFNKELL V. GÍSLASON Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir fjár- muni ekki duga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLA Maður hótaði að beita skotvopnum á Sauðárkróki í gær og var sérsveit ríkislögreglu- stjóra kölluð til. Maðurinn hringdi sjálfur í lög- reglu rétt fyrir klukkan eitt og sagðist vera búinn að birgja sig upp af skotvopnum sem hann ætlaði að nota. Sagðist hann vera með hlaðnar byssur. Lögregla var kominn að húsi mannsins örskömmu síðar. „Við reyndum að ræða við hann og fá hann til að gefast upp,“ sagði Stefán Vagn Stefánsson, yfir- varðstjóri lögreglunnar á Sauð- árkróki. Eftir nokkurt þref gafst maðurinn þó upp og hleypti lög- reglunni inn. Hann var handtekinn skömmu fyrir klukkan fjögur. Umsátrið hafði þá staðið í um þrjár klukku- stundir. Hvorki byssa né önnur skotvopn fundust við leit í húsi mannsins. Stefán segir að fjarskiptamið- stöð ríkislögreglustjóra hafi séð um samskipti við manninn. Þeir hafi verið í sambandi við hann allan tímann með hléum. Að sögn Stefáns á maðurinn við geðræn vandamál að stríða. Hann hefur áður komist í kast við lögin. Hafsteinn Hannesson, íbúi á Sauðárkróki, segir að maðurinn hafi komið norður í sláturtíðinni og virk- að hinn rólegasti. „Það hefur ekkert ónæði verið af honum,“ segir hann. Maðurinn var fluttur í lögreglu- fylgd um kvöldmatarleytið í gær til Akureyrar þar sem hann var lagður inn á geðdeild. - jme, fbj Sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til Sauðárkróks vegna hótana veiks manns: Kvaðst vera með hlaðnar byssur UMSÁTUR Á SAUÐÁRKRÓKI Yfirlög- regluþjónn á Sauðárkróki segir umsátrið hafa staðið í þrjá tíma. MYND/VIGGÓ VEISTU SVARIÐ?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.