Fréttablaðið - 05.12.2013, Síða 8

Fréttablaðið - 05.12.2013, Síða 8
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Sérsveitin hefur þurft að sinna alls kyns verkefnum undanfarin þrjátíu ár. Hér er listi yfir nokkur þeirra: 4. maí 1984: Eitt fyrsta verkefni sérsveitarinnar var að yfirbuga óðan byssumann sem hóf skothríð í Vesturbænum í Reykjavík. Hann skaut á lögreglu og ljósmyndara DV. Að lokum tókst að ná til mannsins og var hann færður í fangageymslur. 30. apríl 1990: Ölvaður maður á Ólafsfirði skaut tveimur skotum úr haglabyssu á lögreglumann. Eftir það braust hann inn í gagnfræða- skólann og gaf sig loks fram við lögreglu. 13. júní 1990: Drukkinn maður í Æsufelli í Reykjavík, vopnaður naglabyssu, hótaði að fyrirfara sér og sprengja blokkina í loft upp. Hann gafst upp eftir þriggja tíma umsátur. 12. maí 1992: 21 árs maður hafði skotið 25 ára mann í andlitið með kindabyssu og hóf skothríð á sjúkra- lið og lækna. Að tæplega þremur tímum liðnum gafst hann upp. 30. nóvember 1992: Tveir byssumenn voru yfirbugaðir í og við hús á Rauðarárstíg í Reykjavík eftir tveggja tíma umsátur. Annar kom óvopnaður út og stukku sérsveitar- menn á hann og handtóku. Að því loknu var ráðist inn í húsið og hinn maðurinn handtekinn. 3. september 2001: Heimilisfaðir á Tómasarhaga í Reykjavík hafði í hótunum við fjölskyldu sína og þótti líklegur til að beita skotvopnum. Þjálfaðir samningamenn innan sér- sveitarinnar töluðu við manninn, sem gafst upp eftir þriggja tíma umsátur og lagði skotvopn sín á jörðina. 5. ágúst 2002: Dauðadrukkinn maður var sagður hafa hleypt af tveimur skotum í húsi á Álftanesi en síðar kom í ljós að hann gerði það ekki. Sérsveitin yfirbugaði hann eftir þriggja tíma umsátur. 31. júlí 2004: Sér- sveitin var send að húsi við Hellisbraut á Reykhólum þar sem tilkynnt hafði verið um að skotið hefði verið á tvö hús við götuna. Ráðist var til inn- göngu í húsið en byssumaðurinn var farinn. 13. mars 2008: Karlmaður í húsi í Reykjanesbæ lokaði sig inni á salerni vopnaður haglabyssu. Eftir umsátur gaf maðurinn sig fram og hald var lagt á byssuna. Maí 2009: Maður vopnaður hagla- byssu og með lambhúshettu bankaði upp á í húsi í Seljahverfi um miðja nótt. Hann hóf skothríð þegar hús- ráðandinn opnaði dyrnar en vann honum ekki mein. Sérsveitin mætti á svæðið en maðurinn fannst ekki. 25. júlí 2009: Sami maður og var handsamaður á Álftanesi 2002 var vopnaður skotvopni í sumarbústað á Barðaströnd um miðja nótt. Sérsveitin yfirbugaði hann undir morgun. Júlí 2011: Lögreglan á Selfossi lagði hald á um níutíu byssur og mikið magn skotfæra á heimili á Stokkseyri eftir að tilkynnt hafði verið um skothvelli. Þegar lögreglan kom á staðinn hélt maðurinn á tveimur haglabyssum og stóð fyrir skot- hríð. Nóvember 2011: Maður hleypti af haglabyssu í Bryggju- hverfi og skaut í átt að manni sem var akandi. 1. janúar 2013: Slagsmál brutust út í heimahúsi í Hafnarfirði. Í húsinu var maður vopnaður hagla- byssu. Sérsveitin handtók manninn en haglabyssan reyndist óhlaðin. Júlí 2013: Sérsveitin var kölluð til aðstoðar á Selfossi eftir að maður hafði hótað nágranna sínum lífláti. Hann hafði þá skotvopn undir höndum. ÚTKÖLL SÉRSVEITARINNAR Í ÞRJÁTÍU ÁR LÖGREGLUMÁL Þrátt fyrir að sér- sveit lögreglu hafi beitt skotvopn- um í fyrsta sinn í Hraunbæ og að byssumaðurinn hafi skotið út um gluggann, telur Helgi Gunnlaugs- son, afbrotafræðingur og pró- fessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, að atburðirnir gefi ekki tilefni til aukins vopnaburðar lög- reglunnar. „Þegar menn velta fyrir sér hvort lögreglan þurfi að vera með betri varnarviðbúnað hafa þeir tengt það við skipulagða glæpa- starfsemi eða eitthvað þess háttar en þarna virðist vera um veikan einstakling að ræða,“ segir Helgi. „Þetta er persónulegur harmleik- ur þar sem frekari vopnaburður lögreglu hefði ekki aukið öryggi viðstaddra. En þetta voru samt erfiðar aðstæður og lögreglan þurfti að bregðast við af yfirveg- un en jafnframt festu. En ég tel ekki að þetta tilfelli kalli á að lög- reglan þurfi að breyta viðbúnaði sínum með auknum vopnaburði,“ segir hann aðspurður. „Auðvitað þarf lögreglan að ræða verklagið við þetta mál og draga sinn lærdóm af því hvern- ig best er að bregðast við í erfið- um aðstæðum þar sem hætta er á ferðum en í fljótu bragði tel ég ekki að ástæða sé fyrir lögregluna að breyta vinnubrögðum sínum.“ Að sögn Helga þarf lögreglan, eins og hún hefur gert í gegnum árin, að halda áfram að beita rök- ræðum, fortölum og þolinmæði á vettvangi í stað þess að grípa strax til vopna. „Þetta er að mínu mati mikilvægasta löggæsluaðferðin.“ Spurður hvort hann telji lög- regluna hafa skort þolinmæði í Hraunbæ segir Helgi erfitt að segja til um það enda viti hann ekki nákvæmlega hvernig atburðarásin var. „Við vitum að það var skotið á tvo lögreglumenn. Menn vita ekki hvenær hann [byssumaðurinn] er vopnlaus eða hvort skotfæri hans eru á þrotum en hann var örugg- lega hættulegur.“ Aukin vopnavæðing lögreglu engin lausn Þrátt fyrir skotárásina í Hraunbæ telur Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur ekki þörf á auknum vopnaburði lögreglunnar. Hann segir lögregluna þurfa að halda áfram að beita rökræðum, fortölum og þolinmæði á vettvangi. Skotárásin í Hraun- bæ var sú fyrsta þar sem sérsveitin beitir skotvopnum á vettvangi í rúm- lega þrjátíu ára sögu sinni og þykir Helga Gunnlaugs- syni það merkilegt. STENDUR UNDIR ÁBYRGÐ Lögreglumaðurinn G. Jökull Gíslason skrifaði fyrir tveimur árum grein í tímaritið Lögreglumaðurinn, þar sem hann mælti með því að aðgangur lögreglumanna að skotvopnum yrði bættur. Hann vildi ekki tjá sig við blaðamann um aðgang að skotvopnum í tengslum við skotárásina í Hraunbæ en vísaði þess í stað á greinina. „Það sem margir lögreglumenn aðhyllast og þá sérstaklega þeir sem eru útivinnandi er að lögreglumenn fái að geyma vopn í læstum hirslum í lögreglubílum þannig að þau séu til taks ef á þurfi að halda og að lögreglumenn geti á stuttum tíma vopnast til að mæta yfirstandandi hættu sem krefst aukins víg- búnaðar. Það er mjög líkt því sem bæði Norðmenn og Bretar gera nú þegar,“ skrifaði G. Jökull. Einnig sagði í greininni: „Það er hins vegar ekki er erfitt að sjá fyrir að sá tími muni koma og það í nálægri framtíð að það þurfi að vopna lögreglu með stuttum fyrirvara. Vopnuð rán og skotárásir eru nú þegar komin og líklegt að sú þróun haldi áfram.“ Vildi betri aðgang að skotvopnum G. JÖKULL GÍSLASON Helgi bætir við að Ísland hafi þá sérstöðu, líkt og Noregur, að lög- reglan sé ekki vopnuð við dagleg skyldustörf. „Vopnaburður lög- reglu er meiri í öðrum löndum, til dæmis í Svíþjóð. Rannsóknir sýna að voðaskot og slys hafa verið algengari í Svíþjóð en í Noregi. Aukinn vopnaburður lögreglu þarf ekki að þýða það sama og öryggi lögreglumanna og borgara.“ freyr@frettabladid.is Þetta er ekki sérsveit sem er að beita vopnum í tíma og ótíma, því fer víðs fjarri, enda eru þetta menn sem hafa farið í gegn um stranga þjálfun. Þeir hafa farið varlega með vald sitt og sagan sýnir að þeir standi undir ábyrgðinni. Lögreglan nýtur mikils trausts borgaranna og miklu skiptir að viðhalda því. SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 27.11.13 - 03.12.13 1 2 Skuggasund Arnaldur Indriðason Lygi Yrsa Sigurðardóttir 5 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánson 6 7 VeiðihundarnirJorn Lier Horst 8 10 Árleysi aldaBjarki Karlsson9 StrákarBjarni Fritzson/Kristín tómasdóttir 4 Vísindabók Villa Vilhelm Anton Jónsson3 Ólæsinginn sem kunni að reiknaJonas Jonasson Rangstæður í Reykjavík Gunnar Helgason Karólína Lárusdóttir Aðalsteinn Ingólfson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.