Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 12
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Audi A4 2.0 TDI AT
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 35.500 km, sjálfsk.
Ásett verð
5.290.000,-
Laugavegi 174
Sími 590 5040
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 12-16
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ
EIGNAST AUDI EÐALVAGN
Audi A4 Avant 2.0 TDI
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 45.500 km, sjálfsk.
Ásett verð
4.790.000,-
Audi A4 2.0 TDI
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 57.000 km, beinsk.
Ásett verð
4.190.000,-
Audi A4 Avant 2.0 TDI AT
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 24.500 km, sjálfsk.
Ásett verð
6.250.000,-
Við fjármögnum
bílinn fyrir þig
lykill.is
Milano
leðurinnrétting
HEILBRIGÐISMÁL Fjölskylda geð-
sjúks manns telur að skortur á
samstarfi milli heilbrigðis- og vel-
ferðarkerfisins hafi leitt til ótíma-
bærs dauða hans.
Árið 2010 flutti Sveinn Pálmar
Jónsson í íbúð á
vegum félags-
þjónustu Reykja-
víkurborgar
við Skúlagötu.
Í kjölfar flutn-
inganna veikt-
ist Sveinn Pálm-
ar alvarlega af
sjúkdómi sínum
og telur fjöl-
skyldan að samskiptaleysi milli
geðheilbrigðiskerfisins og félags-
þjónustu borgarinnar hafi orðið til
þess að hann tók ekki inn tilskilin
lyf við ofsóknargeðklofa. „Sveinn
Pálmar sagði okkur að samkvæmt
skriflegum samningi vegna íbúð-
arinnar ætti hann að gefa sig dag-
lega fram við þjónustukjarnann
á staðnum, meðal annars til þess
að taka inn lyfin sín,“ segir Fjóla
Jónsdóttir, systir Sveins Pálmars.
Læknir hans stóð í sömu mein-
ingu, en þetta hafi hins vegar ekki
gengið eftir.
Í byrjun september árið 2012
náði faðir Sveins Pálmars ekki í
hann og lýsti áhyggjum af syni
sínum við starfsmann íbúakjarn-
ans. Honum var þá tjáð ekki væri
hægt að gá að Sveini nema að und-
angengnum dómsúrskurði.
Viku síðar tilkynnti lögreglan
fjölskyldunni um andlát Sveins
Pálmars og þótti ljóst að hann
hefði legið látinn í íbúð sinni í
þó nokkurn tíma. Af bankayfir-
liti hans mátti sjá hvaða stefnu
líf hans hafði tekið hálfu ári áður.
Frá því í febrúar það ár hafði
hann nær eingöngu keypt áfengi
og telur fjölskylda hans að áfeng-
isneysla og næringarskortur hafi
dregið hann til dauða. „Hann end-
aði á því að drekka sig í hel á smá-
tíma. Enginn virtist hafa vitað það
á þjónustukjarnanum, en nágrann-
ar hans vissu þetta vel,“ segir
Fjóla, en Sveinn Pálmar hafði ekki
glímt við áfengisvanda áður. Hún
bendir á að ef einhver hefði stig-
ið fæti inn fyrir dyr íbúðarinnar
hefði þeim hinum sama orðið sam-
stundis ljóst af ástandi hennar
hversu veikur Sveinn Pálmar var
orðinn.
„Á fundum okkar með stjórn-
endum á geðsviði Landspítalans
og félagsþjónustunni hefur komið
fram að þau vilja sjá miklu meira
samstarf þar á milli, en þau skort-
ir fjármagn,“ segir Fjóla. „Starfs-
fólkið á geðsviðinu er allt afar
elskulegt og leggur sig mikið
fram, en þetta kerfi er að mínu
mati eins og aftan úr fornöld
miðað við allt annað í heilbrigðis-
kerfinu.“ eva@frettabladid.is
Fársjúkur á
gráu svæði
Fjölskyldan segir skort á samstarfi í kerfinu hafa leitt
til ótímabærs dauða geðsjúks fjölskyldumeðlims.
Samband íslenskra sveitarfélaga vill ræða við stjórnvöld
um verkefni þar sem óvissa ríkir um hver beri ábyrgð
á að veita tiltekna þjónustu. Halldór Halldórsson,
formaður sambandsins, segir að vegna hagræðingar
hjá ríkinu undanfarin ár hafi verkefnum í meira mæli
en áður verið ýtt yfir á sveitarfélögin án samninga.
Það skapi svokölluð „grá svæði“ þar sem ábyrgð á
verkefnum sé óljós. Í samantekt sem sambandið kynnti
fjárlaganefnd Alþingis í nóvember segir að líkja megi
gráum svæðum við einskismannsland á landakorti, þar
sem notendur tiltekinnar þjónustu lenda á mörkum
tveggja eða fleiri þjónustukerfa.
„Grá svæði eru slæm fyrir alla, en alltaf langverst fyrir notendur þjónust-
unnar,“ segir Halldór.
Í einskismannslandi í velferðarkerfinu
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
SVEINN PÁLMAR
JÓNSSON
MEXÍKÓ, AP Flutningabifreið með
stórhættulegan geislavirkan
tækjabúnað og önnur geislavirk
efni hefur verið stolið í Mexíkó.
Mikil leit var gerð að bifreiðinni
víða í Mexíkó í gær.
Búnaðurinn var notaður við
geislameðferð á krabbameinssjúk-
lingum. Hann var þó ekki lengur í
notkun því nýr tækjabúnaður var
kominn í staðinn.
Bifreiðinni var stolið af bensín-
stöð í Tepojaco, litlu bæjarfélagi í
Hidalgo-héraði skammt norðan við
Mexíkóborg. Verið var að flytja
búnaðinn frá Tijuana til geymslu
fyrir kjarnorkuúrgang.
Stjórnvöld segja líklegast að
þjófarnir hafi ekki haft minnstu
hugmynd um hvað verið var að
flytja. Þeir voru hvattir til að að
koma bifreiðinni sem allra fyrst
í hendur yfirvalda og gæta þess
vel að skemma hvorki né opna blý-
hylkið.
Búnaðurinn er geymdur í inn-
sigluðu blýhylki en sagður lífs-
hættulegur og geti orðið nær-
stöddu fólki að bana á stuttum
tíma, ef hylkið er rofið. - gb
Mikil leit gerð að flutningabifreið með hættuleg tæki frá sjúkrahúsi:
Geislavirkum búnaði stolið
HLUTI BÚNAÐARINS Stjórnvöld segja
búnaðinn geta orðið nærstöddu fólki að
bana á stuttum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hann endaði á því að
drekka sig í hel á smátíma.
Fjóla Jónsdóttir,
systir Sveins Pálmars.