Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 32

Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 32
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 32 Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar telur ástæðulaust að láta kanna með einhverjum sérstök- um hætti hagkvæmni þess að selja 15,4% hlut Hafn- arfjarðar í HS Veitum. Það er ástæðan fyrir því að bæjarfulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar greiddu atkvæði gegn til- lögu fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins um að láta kanna hvort hagkvæmt væri að bærinn seldi hlut sinn í HS Veitum. Hlutur Hafnarfjarðar Rafveita Hafnarfjarðar og Hita- veita Suðurnesja sameinuðust árið 2001 og var breytt í hluta- félag. Við sameininguna eignaðist Hafnarfjarðarbær u.þ.b. 1/6 hlut í fyrirtækinu. Sá hlutur var og er í samræmi við virði þess orku- dreifikerfis sem bærinn lagði inn árið 2001. Árið 2006 ákvað ríkið að selja sinn hlut í Hitaveitu Suðurnesja sem gerði það m.a. að verkum að einkaaðilar eignuðust hlut í því. Í kjölfarið voru sett lög á Íslandi sem kváðu á um skilyrðislausan aðskilnað samkeppnis- og sérleyf- isstarfsemi orkufyrirtækja. Hita- veitu Suðurnesja var þá skipt upp í tvö fyrirtæki, HS Orku og HS Veit- ur. HS Veitur er almenningsveita, dreifingarfyrirtæki sem er með einokunaraðstöðu á sínu sviði. Lög um veitu- fyrirtæki eru með þeim hætti að opinberir aðilar verða að eiga að lágmarki 51% hlutafjár. Hingað til hefur ekki verið ágreiningur um þennan eignarhlut Hafnar- fjarðarbæjar í veitufyrir- tækinu. Það er því eðli- legt að við í Hafnarfirði eigum með beinni eignar- aðild aðkomu og hlutdeild að HS Veitum sem er almannafyrirtæki í almannaþjónustu. Stökkvum ekki á skyndilausnir Það að reyna að draga upp þá mynd að nauðsynlegt sé að selja hlut Hafnarfjarðar í HS Veitum vegna bágrar fjárhagsstöðu stenst ekki skoðun. Ef rekstur Hafnar- fjarðarbæjar er skoðaður á þessu kjörtímabili sést hvernig núver- andi meirihluti hefur markvist unnið að bættum fjárhag sveitar- félagsins bæði með markvissum skrefum í að auka tekjur og ekki síður með því að draga úr kostnaði í rekstri sveitarfélagsins með fjöl- breyttum hætti. Í staðinn fyrir að beina sjón- um sínum að skyndilausnum, sem eru skammgóður vermir, þá hefur núverandi meirihluti Vinstri grænna og Samfylkingar lagt mikla áherslu á að stökkva ekki á skyndilausnir heldur hugsa til lengri tíma og huga að skipulegri uppbyggingu á styrkri fjárhags- stjórn hjá Hafnarfjarðarbæ. Yfirlýst og samþykkt stefna Sjálfstæðisflokksins er að stuðla að einkavæðingu á sem flestum sviðum. Það er því aumt að þora ekki að koma bara hreint til dyr- anna og viðurkenna það. Þess í stað að reyna að réttlæta tillögu að sölu með því að reyna að draga fjárhagslega burði sveitarfélags- ins í efa. Bæjarfulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar höfnuðu því til- lögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem miðar að sölu á hlut bæjarins í HS Veitum, og ítrekuðu þá afstöðu að eignarhluti Hafnarfjarðarbæjar yrði áfram í samfélagslegri eigu. Meirihluti bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar telur því með öllu ástæðu- laust að láta kanna með einhverj- um sérstökum hætti hagkvæmni þess að selja 15,4% hlut Hafnar- fjarðar í HS Veitum. Enn ein tilraun til einkavæðingar Á dögunum var skipuð ný stjórnarskrárnefnd. Síðan hefur einn af nefndar- mönnum skrifað grein í Fréttablaðið og kvartað undan því að takmörkuð hrifning ríki um skipan- ina. Um það skal ekki fjallað. Á það skal þó bent að svo virðist sem núverandi stjórnarflokk- ar vilji ekkert af síðasta kjörtímabili vita. Þeir taka upp óbreytt vinnu- brögð frá því fyrir fall bank- anna og skipa stjórnarskrárnefnd með sem líkustum hætti og fyrr tíðkaðist. Ætli stjórnmálaflokk- arnir að haga stjórnsýslunni með þeim hætti að huga aðeins að einu kjörtímabili í senn og láta á næsta kjörtímabili eins og ekk- ert hafi gerst á því síðasta verða seint umbætur á stjórnarháttum. Stjórnarskráin verður þá varla látin fylgja þjóðfélagsþróuninni. Svo sem kunnugt er skilaði stjórnlagaráð tillögum að heildar- breytingum stjórnarskrárinnar á síðasta kjörtímabili. Það dróst hins vegar úr hömlu að Alþingi tæki afstöðu til tillagnanna en efndi þó loks til leiðbeinandi þjóð- aratkvæðagreiðslu um mikilvæg en takmörkuð atriði stjórnar- skrárinnar. Vissulega hefði mátt spyrja um miklu fleiri atriði og orða spurningarnar með skýrari hætti. Þátttaka var hins vegar nokkuð góð og úrslitin afgerandi sé miðað við slíkar atkvæða- greiðslur með öðrum þjóðum. Því hefði verið rétt að stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd þings- ins hefði eftir síðustu kosningar tekið sér tak og fengið til liðs við sig fagmenn um stjórnarskrár- efni til að semja upp úr tillögum stjórnlagaráðs nothæfar tillögur að breyttri stjórnarskrá eða að minnsta kosti að hluta hennar að teknu tilliti til niðurstöðu þjóðar- atkvæðagreiðslunnar. Til þessa verks hefði stjórnskipunar- og eftirlitsnefndin átt að leita sam- stöðu um hvaða fagmenn yrðu fengnir til starfsins. Fylgt yrði nýjustu þróun Einsýnt er að þeir sem sjá um kennslu og rannsóknir í stjórn- skipunarrétti við stærstu háskólana ættu að vera í þeim hópi svo og viður- kenndir heimspekingar og sagnfræðingar sem hafa látið sig þessi mál- efni varða. Þá hefði verið tryggt að fylgt yrði nýj- ustu þróun og straumum um gerð stjórnarskráa en nokkur gerjun er í þessum málefnum meðal þjóða sem okkur eru skyldastar að þjóðskipu- lagi. Tillögur ættu að liggja fyrir um mitt kjörtímabil og koma þá til afgreiðslu Alþing- is svo nálægð kosninga spilli ekki fyrir afgreiðslunni. Gildis- takan má svo bíða þings eftir næstu kosningar. Það er Alþingis að hafa frumkvæði að breyttri stjórnarskrá og leita að sem breiðustu samkomulagi um þann þjóðfélagssáttmála sem stjórnar- skráin á að vera. Sá sem ekki leit- ar samkomulags nær engri sátt. Við breytingu á stjórnar- skránni verður að hafa í huga að hún er grundvöllur og leiðarvísir að því hvernig annarri löggjöf landsins er hagað og hún skýrð. Skipta má stjórnarskránni aðal- lega í tvennt. Fyrri hluti hennar eins og henni er nú skipað hefur að geyma lagagrundvöll stjórn- valda ríkisins í stórum dráttum og takmörkun starfa þeirra. Síð- ari hlutinn fjallar síðan um rétt- indi borgaranna. Fyrri hlutann þarf því að semja svo að skýrt sé hver stjórnvöldin eru og hvert valdsvið þeirra. Skil þeirra í milli og ábyrgð hvers um sig verða að koma greinilega fram. Helsti gallinn Það er líklegast helsti galli núverandi stjórnarskrár að hún uppfyllir tæpast þessi skilyrði. Þá er kaflinn lítt skiljanlegur þeim sem ekki þekkir söguleg- ar forsendur hans. (Má nefna að Norðmenn, sem á næsta ári fagna 200 ára afmæli stjórnar- skrár sinnar, ætla af því tilefni að uppfæra hana til nútímahorfs meðal annars með tilliti til mál- fars og skýrleika. Stjórnarskrá þeirra á að verða skiljanleg öllum almenningi.) Réttindahlutann þarf hins vegar að semja svo að skýra megi ákvæði hans í sam- ræmi við þá mannréttindasátt- mála sem Ísland er aðili að. Það er svo Alþingis að haga almenn- um lögum í sem bestu sam- ræmi við mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar og dómstóla að semja dóma sína á þann veg að best samræmi verði á milli almennra laga, alþjóðasamninga og stjórnarskrár. Ákvæðin þurfa því að vera nokkuð opin og orðast sem nokkurs konar vísireglur (leiðbeiningarreglur?). Þar sem ekki er svo langt síðan þessum hluta stjórnar- skrárinnar var breytt má vera að ekki liggi eins á að afgreiða þennan hluta stjórnarskrárinn- ar gæti dómstólar að ríkjandi aðferðum við skýringu stjórnar- skrár svo sem þeim er beitt með þjóðríkjum sem okkur eru skyld- ust. Þeir sem vinna að endur- bótum á stjórnarskránni ættu því fyrst í stað að beina kröftum sínum að þeim ákvæðum stjórn- arskrár sem varða þingið, fram- kvæmdavaldið og dómsvaldið svo og einstökum breytingum sem löngu eru brýnar. (Löngu er t.d. nauðsynlegt að stjórnar- skráin taki fullt tillit til þátttöku Íslendinga í alþjóðasamstarfi og tryggi líka að atkvæði allra þegna ríkisins vegi jafnt við alþingiskosningar.) Stjórnmálamenn, fjölmiðla- menn og aðrir þeir sem áhuga hafa á þessum fræðum geta á auðveldan hátt slökkt fróð- leiksþorstann við lestur á bók Benedikte Moltumyr Högberg prófessors við Óslóarháskóla sem kom út í sumar sem leið hjá Universitetsforlaget. Bókin kallast „Statsrett“ og gefur gott yfirlit um gerð, tilgang og virkni stjórnarskrár í öðru þeirra tveggja ríkja sem skyldast er okkar um löggjafarmálefni. Að breyta stjórnarskrá MIKIÐ ÚRVAL AF GLÆSILEGUM SÆNGURVERASETTUM! Þegar mjúkt á að vera mjúkt standa sængurverasettin í Betra Bak undir væntingum. Einstök gæði frá hinum þýsku framleiðendum Elegante, Joop! og Bruno Banani. Komdu við Maco Satin efnið og þú verður snortin(n). JÓLA- AFSLÁTTUR 20% Save the Children á Íslandi ORKUMÁL Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfi rði ➜ Það að reyna að draga upp þá mynd að nauðsyn- legt sé að selja hlut Hafnar- fjarðar í HS Veitum vegna bágrar fjárhagsstöðu stenst ekki skoðun. STJÓRNARSKRÁ Hrafn Bragason fv. hæstaréttar- dómari ➜ Það er Alþingis að hafa frumkvæði að breyttri stjórnarskrá og leita að sem breiðustu samkomulagi um þann þjóðfélagssáttmála sem stjórnarskráin á að vera. Sá sem ekki leitar samkomu- lags nær engri sátt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.