Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 44
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
Hinir ástsælu Spaðar efna til tónleika á laugardags-
kvöldið á Café Rosenberg og hefjast þeir klukkan 22.
Hinir ástsælu Spaðar urðu þrítugir í ár og var tíma-
mótanna minnst með diski sem hlaut nafnið Áfram
með smjörið.
Á tónleikunum verða leikin lög af nýja disk-
inum og þar á meðal lagið Þorláksmessukall, sem
er fyrsta og eina jólalagið sem frá sveitinni hefur
komið. Í texta þess er fjallað af nokkru næmi
um hlutskipti þeirra sem eru undir áhrifum
og lykta af skötu á Þorláksmessu.
Fyrsta og eina jólalag Spaða
Fagna 30 ára afmæli með útgáfu disks.
GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON
er söngvari Spaða.
Við hugsum þetta sem mótspil
á móti öllu þessu poppi og rokki
og róli sem allir eru að flytja á
jólatónleikum,“ segir Kristján
Jóhannsson óperusöngvari, sem
stendur fyrir tónleikum í Eldborg-
arsal Hörpu á sunnudaginn. Hann
hefur fengið fleiri stórsöngvara í
lið með sér því þau Dísella Lár-
usdóttir, Kristinn Sigmundsson
og Þóra Einarsdóttir stíga með
honum á sviðið og hefja upp sína
raust. Undir leikur fimmtíu manna
sinfóníuhljómsveit undir stjórn
Guðmundar Óla Gunnarssonar og
fimmtíu kvenna kór undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur verður
einnig á sviðinu.
„Mig langaði bara að vera trúr
mínu,“ segir Kristján. „Að vísu
teygjum við okkur eins langt og
við getum í léttleikanum og fyrri
hluti prógrammsins er það sem
kallast léttklassík. Í seinni hlut-
anum erum við síðan að heiðra
afmælisbörnin Wagner og Verdi.“
Kristján segist hafa valið með
sér þá listamenn sem séu að hans
dómi hvað fremstir í röð íslenskra
söngvara. „Við eigum þrjá Metro-
politan-söngvara og við verðum
öll þarna ásamt henni Þóru sem
mér finnst alveg frábær. Sigrún
Eðvaldsdóttir er konsertmeistari
hljómsveitarinnar sem er að mestu
leyti skipuð hljóðfæraleikurum úr
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Guð-
mundur Óli hefur útsett talsvert
af tónlistinni sem við flytjum og
hefur verið okkar hægri hönd hvað
tónlistina varðar.“
Kristján segir viðtökurnar hafa
farið fram úr björtustu vonum,
nánast uppselt sé á tónleikana,
en þó séu enn fáanlegir miðar.
„Það er greinilegt að fólk sem
elskar klassíkina hefur vantað
svona tónleika,“ segir hann. „Við
erum að æfa núna alla daga með
henni Steinunni Birnu Ragnars-
dóttur píanóleikara þannig að það
er komin spenna í magann og ég
hlakka mikið til þessara tónleika.“
fridrikab@frettabladid.is
Mótvægi við poppið
og rokkið og rólið
Stórskotalið söngvara stígur á svið í Eldborgarsal Hörpu á sunnudaginn. Kristján
Jóhannsson fer fyrir hópnum og Kristinn Sigmundsson, Dísella Lárusdóttir og
Þóra Einarsdóttir koma fram auk sinfóníuhljómsveitar og kvennakórs.
TÓNLIST ★★★★★
Hátíðartónleikar kammer-
kórsins Schola cantorum
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
FYRSTA SUNNUDAG Í AÐVENTU
Í HALLGRÍMSKIRKJU
Á aðventutónleikum Schola cantor-
um kenndi margra grasa. Þar bar
hæst frumflutning þriggja verka
eftir Hafliða Hallgrímsson. Þetta
voru Earth Grown Old, The King‘s
Birthday og Christ Was Born. Þar
að auki flutti kórinn Joseph and the
Angel eftir Hafliða. Allt voru það
einstaklega fallegir sálmar. Tón-
málið var blátt áfram og tilgerðar-
laust, söngurinn tær og himneskur.
Hafliði hefur samið margt fallegt í
gegnum tíðina, eitt það glæsilegasta
er Passían hans. Hér var músíkin
einfaldari og þægilegri áheyrnar
og hún rann ljúflega niður.
Óþarfi er að telja upp allt á efnis-
skránni, enda var hún býsna marg-
brotin. En almennt talað var hún
sérlega smekkleg, verkunum raðað
þannig að það skapaði áhrifamikla
heild. Fyrir utan fáein þjóðlög var
tónlistin fremur nýleg. Hún kallað-
ist þó alltaf á við fortíðina, við hefð-
irnar og tónlistina sem tengist jólun-
um. Eins konar tímaleysi einkenndi
því stemninguna á tónleikunum.
Ekki verður hjá því komist að
nefna Christus vincit eftir James
MacMillan. Það var fullt af hrífandi
blæbrigðum. Þau voru kórónuð með
ákaflega fallegum einsöng Telmu
Hrannar Sigurdórsdóttur. Jóla-
lag eftir Hauk Tómasson var líka
frábært, allt öðru vísi en „framúr-
stefnan“ sem maður á að venjast frá
honum. Þetta var bara fábrotið lag
á borð við Skreytum hús með græn-
um greinum. Haukur getur greini-
lega samið hvað sem er.
Tónleikunum lauk með verki
eftir Arvo Pärt, Sieben Magnificat-
Antiphonen. Titillinn var á þýsku
vegna þess að kórinn söng þýska
þýðingu á andstefjum (andstef er
nokkurs konar viðlag við sálm) við
Lofsöng Maríu. Það er hið svokall-
aða Magnificat, sem er ævaforn
sálmur; hann er að finna í Lúkas-
arguðspjalli. Tónlistin var dulúð-
ug eins og margt eftir Pärt. Hún
byggðist á endurtekningu grípandi
tónhendinga sem voru skreyttar
heillandi hljómum. Útkoman var
seiðmögnuð.
Kórinn undir stjórn Harðar
Áskelssonar var einfaldlega frábær.
Söngurinn var hreinn og nákvæm-
ur, bjartur og samtaka. Túlkunin
var ávallt einlæg og tilfinningarík.
Maður gekk út í náttmyrkrið á eftir
í jólaskapi.
Óhætt er að fullyrða að einn
helsti fjársjóður þjóðkirkjunnar sé
hið metnaðarfulla og vandaða tón-
listarstarf í Hallgrímskirkju. Tón-
leikarnir nú voru frábært dæmi um
hvað þar fer fram, stundum í hverj-
um mánuði, ár eftir ár. Megi þetta
tónlistarstarf vaxa og dafna um
ókomna tíð. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA Tónleikar Schola cantor-
um voru áhrifamikil byrjun á aðventunni.
Kom þú, kom vor Immanúel
ÆFA STÍFT Kristinn
Sigmundsson og
Kristján Jóhannsson
æfa alla daga fyrir
tónleikana með
aðstoð Steinunnar
Birnu Ragnarsdóttur
píanóleikara.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MENNING
Hönnun: Jahn Aamodt
Stóll + skemill kr. 379.000
NÚ Á JÓLATILBOÐI
STÓLL + SKEMILL kr. 315.000
TIMEOUT
LINAN.IS BÆJARLIND 16 - KÓPAVOVOGI - SÍMI 553 7100