Fréttablaðið - 05.12.2013, Síða 56
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 56
„Það skal ósagt látið hvort efnahagserfiðleikar Íslands
hafi orðið til þess að sköpunarkraftur kvikmyndagerð-
arfólks á Íslandi hefur blómstrað, en staðreyndin er sú
að í ár hafa margar vel gerðar, frumlegar og listrænar
myndir komið þaðan. Myndirnar búa yfir sérstökum,
íslenskum einkennum sem sett eru fram á ferskan og
persónulegan hátt,“ segir í yfirlýsingu frá Gautaborg-
arhátíðinni, sem er stærsta kvikmyndahátíð Norður-
landa. Hátíðin í ár kemur til með að gefa íslenskri
kvikmyndagerð sérstakan gaum, en kvikmyndirnar
Hross í oss, í leikstjórn Benedikts Erlingssonar, og
Málmhaus, í leikstjórn Ragnars Bragasonar, keppa um
aðalverðlaun hátíðarinnar.
Þá hlýtur Baltasar Kormákur sérstök heiðursverð-
laun hátíðarinnar.
Gautaborgarhátíðin er haldin snemma á næsta ári,
þann 24. janúar til 3. febrúar, og á dagskránni er meðal
annars sérstök yfirlitssýning frá Íslandi, þar sem
nokkrar íslenskar kvikmyndir síðastliðinna tuttugu
ára verða sýndar, meðal annars 101 Reykjavík eftir
Baltasar Kormák, Bíódagar eftir Friðrik Þór Friðriks-
son og Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur. - ósk
Íslenskri kvikmyndagerð gerð
skil á Gautaborgarhátíðinni
Sérstök yfi rlitssýning íslenskra kvikmynda verður haldin á hátíðinni í ár.
HEIÐRAÐUR Baltasar Kormákur hlýtur
fyrstu heiðursverðlaun hátíðarinnar.
AFP/NORDICPHOTOS
Helstu myndir: 2 Guns, Mission Im-
possible - Ghost Protocol, Precious
og Déjà Vu.
Leikkonan Paula Patton er 38 ára í dag.
AFMÆLISBARN DAGSINS
Kvikmyndin Machete Kills verð-
ur frumsýnd á morgun en hún
er skrifuð af Robert Rodriguez
og í leikstjórn hans. Myndin er
sú þriðja sem byggð er á gervi-
stiklum úr myndunum Plan-
et Terror og Death Proof sem
saman mynda Grindhouse og
kemur úr smiðju Rodriguez og
leikstjórans Quentins Tarantino.
Grindhouse-dúettinn kom út árið
2007 og vísaði til kvikmyndahúsa
vestan hafs sem sérhæfa sig í B-
myndum, og eru oftast kölluð
Grindhouse. Hinar myndirnar,
sem byggðar eru á gervistiklun-
um, eru Machete og Hobo with a
Shotgun.
Machete Kills er framhald
myndarinnar Machete sem var
sýnd árið 2010 en saman mynda
þær þríleik ásamt myndinni
Machete Kills Again en óljóst er
hvenær hún verður frumsýnd.
Rodriguez skrifaði handrit fyrstu
myndarinnar þegar hann réð
leikarann Danny Trejo í hlutverk
Navajas í kvikmyndinni Despe-
rado árið 1993 en Trejo leikur
einmitt titilhlutverkið í Machete-
þríleiknum.
„Þegar ég hitti Danny sagði ég
að þessi gaur ætti að vera mexí-
kóski Jean-Claude Van Damme
eða Charles Bronson. Hann ætti
að vera í bíó á hverju ári og nafn
hans skyldi vera Machete,“ segir
Rodriguez um uppruna fyrrver-
andi lögreglumannsins Machete
Cortez.
Í Machete Kills er Machete
fenginn til að binda enda á upp-
gang brjálæðings sem hótar ver-
öldinni öllu illu. Í myndinni leit-
ar forseti Bandaríkjanna, sem er
leikinn af ærslabelgnum Char-
lie Sheen, á náðir Machetes, en
brjálaður vopnasali hefur kom-
ist yfir öflug, langdræg flug-
skeyti sem hann ætlar að nota til
að hefja styrjöld við alheiminn.
Svo skemmtilega vill til að Mel
Gibson leikur þennan snarklikk-
aða glæpamann og verður Mac-
hete að stöðva hann, hvað sem
það kostar. Vandamálið er að
það er nær ómögulegt að nálgast
þennan brjálæðing en Machete
hefur ráð undir rifi hverju eins
og aðdáendur hans vita. Marg-
ar af skærustu stjörnum Holly-
wood fara með hlutverk í mynd-
inni, þar á meðal Amber Heard,
Michelle Rod riguez, Sofia Verg-
ara, Antonio Banderas og Jessica
Alba. liljakatrin@frettabladid.is
Hinn mexíkóski Jean-Claude
Van Damme snýr aft ur í bíó
Kvikmyndin Machete Kills úr smiðju Roberts Rodriguez er frumsýnd á morgun. Machete Kills er framhald
myndarinnar Machete og sem fyrr er það Danny Trejo sem leikur aðalhlutverkið. Sannkallað stjörnulið
leikara fer einnig með hlutverk í myndinni, þar á meðal Antonio Banderas, Charlie Sheen og Jessica Alba.
Þegar ég hitti Danny
sagði ég að þessi gaur ætti
að vera mexíkóski Jean-
Claude Van Damme eða
Charles Bronson.
Robert Rodriguez
STJÖRNULIÐ Meðal leikara í myndinni eru söngkonan Lady Gaga, Alexa Vega, Sofia Vergara
og sjálfur Charlie Sheen.
Miði á hvora mynd kostar 800 krónur
en hægt er að fá miða á báðar mynd-
irnar saman á 1.000 krónur. Þá bjóða
kvikmyndahúsin upp á sérstakt fjöl-
skyldutilboð– miðann á 500 krónur
ef keyptir eru fjórir miðar eða fleiri.
Kevin bjargar málunum
Home Alone fjallar um drenginn
Kevin, sem leikinn er af Macaulay
Culkin, sem er skilinn eftir einn
heima af fjölskyldu sinni fyrir mistök.
Tveir óprúttnir bófar, sem túlkaðir
eru af Joe Pesci og Daniel Stern, sjá
sér leik á borði og reyna að brjótast
inn á heimili Kevins sem kallar ekki
allt ömmu sína.
Jóla-John í ham
Í Die Hard neyðist harðhausinn
John McClane, sem leikinn er af
Bruce Willis, að bjarga
eiginkonu sinni og
fjölda annarra úr klóm
glæpamannsins Hans
Gruber. Hörkuspenn-
andi jólamynd en
aðalhasarinn gerist
á sjálft aðfanga-
dagskvöld.
- lkg
Klassískar kvik-
myndir í bíó
LEIKARARNIR SEM HEILLA RODRIGUEZ
AÐEINS
JÓLATILBOÐ
149.900
Leikarar
Jessica Alba
Antonio Banderas
Danny Trejo Alexa Vega
Tom
Savini Lady Gaga
Desperado
Four Rooms
From Dusk Till Dawn
Spy Kids
Spy Kids 2
Once Upon a Time in Mexico
Spy Kids 3
Sin City
Planet Terror
Machete
Spy Kids 4
Sin City 2
Machete Kills
Leikstjórinn Robert Rodriguez
velur oft sömu leikarana í
myndir sínar. Mörg kunnugleg
andlit hafa sést í myndum
Rodriguez.
Myndir
UM HELGINA
Home Alone og Die Hard