Fréttablaðið - 05.12.2013, Síða 58
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 58
Sony setti fyrstu Playstation-leikjatölvuna á mark-
að árið 1994. Síðan þá hefur fyrirtækið selt um 430
milljónir leikjatölva. Fjórða kynslóð Playstation er
á leið til Íslands í janúar. Af því tilefni leit Frétta-
blaðið yfir sögu Playstation 3-tölvunnar, PS3, sem
hefur notið gífurlegra vinsælda um allan heim síðan
hún kom á markað árið 2006. PS3-tölvan hefur selst
í yfir áttatíu milljónum eintaka og hefur betur en
helsti keppinauturinn, Xbox 360, sem hefur selst í
um 79 milljónum eintaka þrátt fyrir að hafa verið
ári lengur í sölu. Reyndar hefur Nintendo Wii-tölvan
slegið báðum þessum leikjatölvum við og selst í yfir
hundrað milljónum eintaka, en þó er eðlismunur á
virkni hennar og hinnar tveggja.
Þessi þriðja kynslóð leikjatölva gerði notendum
kleift að fara á netið, streyma sjónvarpsefni og spila
leiki við félaga í fjarlægum löndum. Óhætt er að
segja að þær hafi breytt neysluvenjum margra á
afþreyingarefni.
Playstation 3 kom á markað þann 17. nóvember
árið 2006. Fjórtán leikir komu út samhliða útgáfu
tölvunnar, má þar helst nefna leikina Resistance:
Fall of Man, Call of Duty 3 og Marvel: Ultimate
Alliance. Strax í upphafi var tölvan gagnrýnd, hún
þótti dýr og var útgáfu hennar oft seinkað vegna
vandræða í framleiðslu. Í júlí árið 2008, eftir að
platan hafði verið um sjö mánuði í sölu, ákvað Sony,
framleiðandi PS3, að stækka harða disk tölvunnar,
úr tuttugu gígabætum í sextíu gígabæt án þess að
hækka verðið.
PS3: LEIKJATÖLVAN
SEM ÖLLU BREYTTI
Leikjatölvan Playstation 3 hefur haft gríðarleg áhrif á neysluvenjur á afþreyingar-
efni og gerði notendum kleift að fara á netið og spila leiki við félaga í fj arlægum
löndum. Fréttablaðið fer yfi r þróun tölvunnar, helstu leiki og erfi ðleika.
➜ Október 2007 Playstation Eye var kynnt til sög-
unnar. Það er eins konar myndavél sem varpaði myndum
af spilurum inn í leikina.
➜ Nóvember 2007
Leikurinn Call
of Duty 4: Mod-
ern Warfare kom
út. Leikurinn
er, samkvæmt
metacritic.com,
einn besti fyrstu
persónu skot-
leikur allra tíma,
með 94 stig af
100 mögulegum í
einkunn. Vefurinn
Metacritic tekur
saman umsagnir
helstu fjölmiðla í
tölvuleikjaheim-
inum og reiknar út
meðaleinkunn sem
leikir fá. Modern
Warfare-leikirnir voru
afar vinsælir á PS3,
alls hafa komið út
þrír slíkir leikir á PS3
og fengu þeir 92 í
meðaleinkunn.
➜ Apríl 2008
Leikurinn Grand
Theft Auto IV kom
út. Hann er sá leikur
sem hefur fengið
hæstu einkunnina
á Metacritic.com,
Leikurinn fékk 98 af
100 stigum mögu-
legum en var gagn-
rýndur fyrir ofbeldi.
➜ Desember
2008 Playstation
Home-viðmótið var
kynnt til sögunnar.
Home er eins konar
gerviveröld þar sem
spilarar geta skapað
sína persónu, valið
útlit og skreytt með
hlutum sem þeir
vinna eða kaupa.
➜ September 2009 Ný útgáfa
af PS3 kom á markað. Hún var einfald-
lega nefnd Playstation Slim. Tölvan var,
eins og nafnið gefur til kynna, nettari
auk þess sem hún var öflugri. Nú var
harði diskurinn orðinn 120 gígabæt.
➜ Október 2009 Leikurinn Uncharted
2: Among Thieves kom út. Hann var á
sínum tíma söluhæsti fyrstu persónu
skotleikur PS3 og er í þriðja sæti, ásamt
einum öðrum leik, yfir bestu leiki
allra tíma á metacritic.com, með 96
í einkunn.
➜ Október 2009 Leikurinn Fifa
10 kom út. Hann er sá íþróttaleikur
sem hefur fengið hæstu einkunn á
Metacritic í sögu PS3, með 91 stig
af 100 mögulegum. Fifa-serían náði
frábærum árangri yfir feril PS3-
tölvunnar, eftir að hafa átt erfitt með
að þróa leikinn í gegnum Playstation
2-tölvuna. Fifa skaut helsta keppinauti
sínum, Pro Evolution Soccer, ref fyrir
rass með frábærri þróun á PS3.
➜ Nóvember 2009 Hægt var að tengjast kvikmynda-
þjónustunni Netflix í gegnum PS3.
Í upphafi þurftu
notendur að setja
upp forrit af diski,
til þess að fá aðgang
að Netflix. Í október
2010 var hægt að
hala sérstaka útgáfu
af forritinu niður og
voru diskarnir lagðir
af. Í lok árs 2012 var
tilkynnt að flestir
áskrifendur Netflix
notuðust við Play-
station 3.
➜ September 2010
Playstation Move var
kynnt til leiks. Move
eru stýripinnar sem
nema hreyfingar
spilarans og svipar
til stýripinna Nin-
tendo Wii-tölvunnar.
Með Move var til
dæmis hægt að
stunda líkamsrækt í
PS3-tölvunni.
➜ Maí 2011
Leikurinn LA Noire
kom út. Leikurinn
fékk frábærar við-
tökur gagnrýnenda
og almennings. Fékk
89 stig af 100 hjá
Metacritic og var
söluhæsti leikurinn í
Bandaríkjunum árið
2011.
➜ Október
2011 Batman:
Arkham City kom
út. Leikurinn vakti
mikla athygli og
þóttu myndgæðin
afspyrnu flott. Hann
seldist vel, sér-
staklega í byrjun
og endaði í 7. sæti
yfir söluhæstu
leiki ársins 2011.
Leikurinn fékk 96
stig af 100 hjá Metacritic sem
gerir hann að þriðja besta leik
sögunnar, ásamt einum öðrum leik.
➜ Febrúar 2012 Playstation Vita var
kynnt til sögunnar. Vita er lófaleikjatölva
með tengimöguleika við Playstation 3.
Hægt er að tengja tölvurnar saman og
spila ákveðna PS3 leiki á Vita-tölvunni.
Þessi tengimöguleiki var lítið notaður
en Sony hyggst tengja Vita betur við
Playstation 4.
➜ September 2012 Enn nýrri útgáfa
af PS3 kom á markað, nefnd Super
Slim. Tölvan varð enn nettari og enn
öflugri fyrir vikið, hægt var að fá allt að fimm
hundruð gígabæta harðan disk.
➜ September 2013 Grand Theft Auto V
kom út. Leikurinn vakti gríðarlega athygli,
eins og GTA-leikirnir hafa flestir gert.
Leikurinn fékk 97 stig af 100 frá Metacritic
sem gerir hann að næstbesta leik sögunnar
fyrir Playstation 3. Hann sló öll sölumet og
varð söluhæsta afþreyingarvara sögunnar.
Bluetooth Hljómtæki
Soundlink Mini
Android spjaldtölva
Með 18-55mm linsu
Verð: 18.900 kr.
Verð: 39.900 kr.
Verð: 139.900 kr.
Tilboðsverð: 119.900 kr.
Spilaðu jólalögin „like a BOSE“.
• Lítið og nett.
• Aðeins 670 grömm.
Á verði sem snertir við þér.
• Hentar vel í afspilun og létt í leiki.
• 16GB gagnapláss.
Stúfur DSLR myndavélana.
• 18 megapixlar og Full HD vídeó.
• 3 klst námskeið og kennslubók fylgir.
EOS 100D
A1000
Allt sem þú
óskar þér
Nýherji / Sími 569 7700 / Borgartúni 37 / Kaupangi Akureyri / netverslun.is
Kláraðu kaupin í verslunum okkar eða á netverslun.is