Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 58

Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 58
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 58 Sony setti fyrstu Playstation-leikjatölvuna á mark- að árið 1994. Síðan þá hefur fyrirtækið selt um 430 milljónir leikjatölva. Fjórða kynslóð Playstation er á leið til Íslands í janúar. Af því tilefni leit Frétta- blaðið yfir sögu Playstation 3-tölvunnar, PS3, sem hefur notið gífurlegra vinsælda um allan heim síðan hún kom á markað árið 2006. PS3-tölvan hefur selst í yfir áttatíu milljónum eintaka og hefur betur en helsti keppinauturinn, Xbox 360, sem hefur selst í um 79 milljónum eintaka þrátt fyrir að hafa verið ári lengur í sölu. Reyndar hefur Nintendo Wii-tölvan slegið báðum þessum leikjatölvum við og selst í yfir hundrað milljónum eintaka, en þó er eðlismunur á virkni hennar og hinnar tveggja. Þessi þriðja kynslóð leikjatölva gerði notendum kleift að fara á netið, streyma sjónvarpsefni og spila leiki við félaga í fjarlægum löndum. Óhætt er að segja að þær hafi breytt neysluvenjum margra á afþreyingarefni. Playstation 3 kom á markað þann 17. nóvember árið 2006. Fjórtán leikir komu út samhliða útgáfu tölvunnar, má þar helst nefna leikina Resistance: Fall of Man, Call of Duty 3 og Marvel: Ultimate Alliance. Strax í upphafi var tölvan gagnrýnd, hún þótti dýr og var útgáfu hennar oft seinkað vegna vandræða í framleiðslu. Í júlí árið 2008, eftir að platan hafði verið um sjö mánuði í sölu, ákvað Sony, framleiðandi PS3, að stækka harða disk tölvunnar, úr tuttugu gígabætum í sextíu gígabæt án þess að hækka verðið. PS3: LEIKJATÖLVAN SEM ÖLLU BREYTTI Leikjatölvan Playstation 3 hefur haft gríðarleg áhrif á neysluvenjur á afþreyingar- efni og gerði notendum kleift að fara á netið og spila leiki við félaga í fj arlægum löndum. Fréttablaðið fer yfi r þróun tölvunnar, helstu leiki og erfi ðleika. ➜ Október 2007 Playstation Eye var kynnt til sög- unnar. Það er eins konar myndavél sem varpaði myndum af spilurum inn í leikina. ➜ Nóvember 2007 Leikurinn Call of Duty 4: Mod- ern Warfare kom út. Leikurinn er, samkvæmt metacritic.com, einn besti fyrstu persónu skot- leikur allra tíma, með 94 stig af 100 mögulegum í einkunn. Vefurinn Metacritic tekur saman umsagnir helstu fjölmiðla í tölvuleikjaheim- inum og reiknar út meðaleinkunn sem leikir fá. Modern Warfare-leikirnir voru afar vinsælir á PS3, alls hafa komið út þrír slíkir leikir á PS3 og fengu þeir 92 í meðaleinkunn. ➜ Apríl 2008 Leikurinn Grand Theft Auto IV kom út. Hann er sá leikur sem hefur fengið hæstu einkunnina á Metacritic.com, Leikurinn fékk 98 af 100 stigum mögu- legum en var gagn- rýndur fyrir ofbeldi. ➜ Desember 2008 Playstation Home-viðmótið var kynnt til sögunnar. Home er eins konar gerviveröld þar sem spilarar geta skapað sína persónu, valið útlit og skreytt með hlutum sem þeir vinna eða kaupa. ➜ September 2009 Ný útgáfa af PS3 kom á markað. Hún var einfald- lega nefnd Playstation Slim. Tölvan var, eins og nafnið gefur til kynna, nettari auk þess sem hún var öflugri. Nú var harði diskurinn orðinn 120 gígabæt. ➜ Október 2009 Leikurinn Uncharted 2: Among Thieves kom út. Hann var á sínum tíma söluhæsti fyrstu persónu skotleikur PS3 og er í þriðja sæti, ásamt einum öðrum leik, yfir bestu leiki allra tíma á metacritic.com, með 96 í einkunn. ➜ Október 2009 Leikurinn Fifa 10 kom út. Hann er sá íþróttaleikur sem hefur fengið hæstu einkunn á Metacritic í sögu PS3, með 91 stig af 100 mögulegum. Fifa-serían náði frábærum árangri yfir feril PS3- tölvunnar, eftir að hafa átt erfitt með að þróa leikinn í gegnum Playstation 2-tölvuna. Fifa skaut helsta keppinauti sínum, Pro Evolution Soccer, ref fyrir rass með frábærri þróun á PS3. ➜ Nóvember 2009 Hægt var að tengjast kvikmynda- þjónustunni Netflix í gegnum PS3. Í upphafi þurftu notendur að setja upp forrit af diski, til þess að fá aðgang að Netflix. Í október 2010 var hægt að hala sérstaka útgáfu af forritinu niður og voru diskarnir lagðir af. Í lok árs 2012 var tilkynnt að flestir áskrifendur Netflix notuðust við Play- station 3. ➜ September 2010 Playstation Move var kynnt til leiks. Move eru stýripinnar sem nema hreyfingar spilarans og svipar til stýripinna Nin- tendo Wii-tölvunnar. Með Move var til dæmis hægt að stunda líkamsrækt í PS3-tölvunni. ➜ Maí 2011 Leikurinn LA Noire kom út. Leikurinn fékk frábærar við- tökur gagnrýnenda og almennings. Fékk 89 stig af 100 hjá Metacritic og var söluhæsti leikurinn í Bandaríkjunum árið 2011. ➜ Október 2011 Batman: Arkham City kom út. Leikurinn vakti mikla athygli og þóttu myndgæðin afspyrnu flott. Hann seldist vel, sér- staklega í byrjun og endaði í 7. sæti yfir söluhæstu leiki ársins 2011. Leikurinn fékk 96 stig af 100 hjá Metacritic sem gerir hann að þriðja besta leik sögunnar, ásamt einum öðrum leik. ➜ Febrúar 2012 Playstation Vita var kynnt til sögunnar. Vita er lófaleikjatölva með tengimöguleika við Playstation 3. Hægt er að tengja tölvurnar saman og spila ákveðna PS3 leiki á Vita-tölvunni. Þessi tengimöguleiki var lítið notaður en Sony hyggst tengja Vita betur við Playstation 4. ➜ September 2012 Enn nýrri útgáfa af PS3 kom á markað, nefnd Super Slim. Tölvan varð enn nettari og enn öflugri fyrir vikið, hægt var að fá allt að fimm hundruð gígabæta harðan disk. ➜ September 2013 Grand Theft Auto V kom út. Leikurinn vakti gríðarlega athygli, eins og GTA-leikirnir hafa flestir gert. Leikurinn fékk 97 stig af 100 frá Metacritic sem gerir hann að næstbesta leik sögunnar fyrir Playstation 3. Hann sló öll sölumet og varð söluhæsta afþreyingarvara sögunnar. Bluetooth Hljómtæki Soundlink Mini Android spjaldtölva Með 18-55mm linsu Verð: 18.900 kr. Verð: 39.900 kr. Verð: 139.900 kr. Tilboðsverð: 119.900 kr. Spilaðu jólalögin „like a BOSE“. • Lítið og nett. • Aðeins 670 grömm. Á verði sem snertir við þér. • Hentar vel í afspilun og létt í leiki. • 16GB gagnapláss. Stúfur DSLR myndavélana. • 18 megapixlar og Full HD vídeó. • 3 klst námskeið og kennslubók fylgir. EOS 100D A1000 Allt sem þú óskar þér Nýherji / Sími 569 7700 / Borgartúni 37 / Kaupangi Akureyri / netverslun.is Kláraðu kaupin í verslunum okkar eða á netverslun.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.