Fréttablaðið - 05.12.2013, Qupperneq 60
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 60
Fyrir skömmu lauk stærsta tón-
leikaferðalagi Sigur Rósar en alls
spilaði sveitin á 141 tónleikum í 32
löndum. Af þessum 141 tónleikum
voru 39 tónleikar á tónleikahátíðum,
líkt og á Lollapalooza, iTunes festi-
val, Coachella og á Hróarskeldu.
Alls sáu um níu hundruð þús-
und manns tónleika Sigur Rósar á
tónleikaferðalaginu, sem stóð frá
29. júlí 2012 til 30. nóvember 2013.
Þetta er jafnframt mest sótta tón-
leikaferðlag sveitarinnar og það
stærsta að umfangi.
Tónleikaferðin hófst í Fíladelfíu
í Bandaríkjunum og lauk í Hels-
inki í Finnlandi. Þar á milli heim-
sótti sveitin nánast allan heiminn
en eins og flestir vita er hljómsveit-
in dýrkuð og dáð út um allan heim.
Þeir héldu stóra tónleika þann 4.
nóvember árið 2012 í nýju Laugar-
dalshöllinni, sem um átta þúsund
manns sóttu. Þetta er mesti áhorf-
endafjöldi á tónleikum hjá íslensk-
um listamanni eða hljómsveit sem
selt er inn á.
Í Sigur Rós eru nú einungis þrír
meðlimir, þeir Jón Þór Birgisson,
Georg Holm og Orri Páll Dýrason
en auk þeirra spiluðu átta hljóð-
færaleikarar með þeim á tónleika-
ferðalaginu og því ellefu manna
hljómsveit á sviðinu. Yfirleitt var
hópurinn sem ferðaðist saman á
tónleikaferðalaginu um fjörutíu til
fimmtíu manns, hljóðfæraleikarar
og ýmsir tæknimenn.
Oftast ferðaðist hópurinn um á
þremur til fjórum rútum eða „tour-
bus“ og fylgdu honum einnig fjórir
risatrukkkar sem fluttu búnaðinn á
milli staða. Í Asíu og Ástralíu var
hins vera frekar flogið á milli staða.
Sigur Rós hefur selt um tíu millj-
ónir platna um heim allan, ef geisla-
og mynddiskasala er lögð saman.
Mest selda platan er Takk, sem
selst hefur í 1,5 milljónum eintaka
og kom hún út árið 2005. Sem stend-
ur er sveitin með samning hjá XL
Recordings en þar eru listamenn
eins og Radiohead og Adele.
Það var ýmislegt sem gerðist á
meðan á tónleikaferðinni stóð en
sveitin vann meðal annars verðlaun-
in Knights Of Illumination Award
fyrir sviðsmynd, lýsingu og mynd-
bönd á tónleikaferðalaginu. Verð-
launin fengu þeir fyrir „showið“
sem slíkt en verðlaunin voru veitt
í október 2013.
Sigur Rós hitti hljómsveitina
Metallica í San Francisco í ágúst í
fyrra og fór vel á með sveitunum.
Báðar sveitirnar eru aðdáendur
hvor annarrar og eftir tónleikana
hittust meðlimir baksviðs og áttu
góða stund saman. Það ríkir mikil
virðing á milli sveitanna.
Sigur Rós hitti einnig hljómsveit-
ina U2 á Írlandi. „U2-menn voru á
hlið sviðsins á meðan Sigur Rós kom
fram. Það var mjög fínt að spjalla
við þá, þeir eru miklir tónlistar-
áhugamenn og þrátt fyrir alla vel-
gengni og sigra U2, þá eru þeir bara
í þessu út af tónlistinni og það sást
vel hversu miklir músíkantar og
músíkáhugamenn þeir eru,“ segir
Kári Sturluson, umboðsmaður Sigur
Rósar, um þá Bono og The Edge úr
U2 þegar hann hitti þá á Írlandi.
- gunnarleo@frettabladid.is
SIGUR RÓS SIGRAR HEIMINN
Ein þekktasta hljómsveit Íslandssögunnar lauk nýverið við sína stærstu tónleikaferð til þessa. Alls kom sveitin fram á 141 tónleikum en
talið er að um 900.000 manns hafi sótt tónleika sveitarinnar á ferðalaginu sem stóð frá 29. júlí 2012 til 30. nóvember 2013.
Skemmtilegar sokkauppskriftir fyrir byrjendur
og lengra komna. Líflegar myndir og góðar teikningar
sem gera litríkt prjón að léttum leik.
Sköpunargleðin í fyrirrúmi
Frumlegt
hekl og litríkt
Glaðlegir
vetrarsokkar
· · · · · · ·
· · · · · ·
eftir Ágústu Þóru Jónsdóttur og Benný Ósk Harðardóttur
VALTARI/KVEIKUR TÓNLEIKAFERÐALAG SIGUR RÓSAR 2012-2013 ➜ Kom fram á Electric Picnic Festival
á Írlandi 31. ágúst 2012 ásamt
The Cure og The Killers. Kári
Sturluson, umboðsmaður sveitarinn-
ar, spjallaði við meðlimi U2 á meðan
Sigur Rós spilaði og ræddu þeir um
heima og geima.
➜ Kom fram á Berlin Festival í
Berlín í Þýskalandi 7. september
2012, ásamt meðal annars
The Killers og Franz
Ferdinand
➜ Kom fram á
Lollapalooza í Chicago
5. ágúst 2012, ásamt meðal
annars Red Hot Chili Peppers, The
Black Keys og Black Sabbath
➜ Kom fram í Outside Lands í
San Francisco 11. ágúst 2012 og hitti
þar Metallica og átti með sveitinni
ánægjulega kvöldstund
➜ Kom fram í Hollywood For-
ever Cemetery í Los Angeles
12. ágúst 2012
➜ Kom fram á
Hróarskeldu 6. júlí 2013
ásamt t.d. Metallica, Queens
Of The Stone Age og Slipknot
➜ Kom fram á Paléo Festival í
Nyon í Sviss 25. júlí 2013, ásamt t.d.
Smashing Pumpkins, Blur, Neil Young
og Santana. Hittu þar Billy Corgan
og Smashing Pumpkins. Corgan
er mikill aðdáandi og meðlimir
Sigur Rósar aðdáendur
Corgans, vinskapur
myndast.
➜ Kom
fram á Summer
Sonic Festival í Tókýó
18. ágúst 2012, ásamt
meðal annars
Jamiroquai, Rihanna
og Green Day
➜ Kom fram
á Corona Capital-
hátíðinni í Mexíkóborg
13. október 2013,
ásamt meðal annars
Jimmy Eat World og
Stereophonics
➜ Kom fram á
Harvest Festival
í Sydney í Ástralíu
17. nóvember 2012,
ásamt t.d. Beck
➜ Kom fram á
Urbanscapes festi-
val í Kúala Lúmpúr í
Malasíu, 25. nóvember
2012, í fyrsta sinn í
MalasíuKom
fram í
sjónvarpi á árinu:
➜ Kom fram í The Simpsons
í maí árið 2013
➜ Kom fram í Jay Leno
í maí árið 2013
➜ Kom fram í Jimmy Fallon
í mars árið 2013
➜ Kom fram
í Game of Thrones
í september 2013
➜ Kom
fram á Sasquatch
music festival 25.
maí 2013 ásamt t.d.
Mumford & Sons og
Arctic Monkeys
➜ Kom
fram í Round-
house (iTunes festi-
val) 2. september 2013,
daginn áður kom Lady
Gaga fram á sama
sviði
Nánar
um einstaka
tónleika:
➜ Uppselt á tónleika í Nýju
Laugardalshöllinni í Reykjavík
4. nóvember 2012 (Airwaves)
➜ Uppselt á tónleika í
Madison Square Garden
í New York 25. mars 2013
➜ Uppselt á tónleika í
Wembley Arena
í London 21. nóvem-
ber 2013
ÚT UM ALLAN HEIM Sigur Rós lauk nýverið sínu stærsta tónleikaferðalagi til þessa,
en það stóð frá 29. júlí 2012 til 30. nóvember 2013. NORDICPHOTOS/GETTY