Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 64

Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 64
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 64 Vodafone-lekinn er toppurinn á ísjak-anum. Við dælum persónuupplýsing- um inn á samfélagsmiðla daglega og það er tímaspursmál hvenær samskipti okkar á Facebook, Snapchat og fleiri samfélags- miðlum verða gerð opinber. Ekki ætla ég að bíða eins og bjáni eftir félagslegri aftöku. Nei, ég hyggst misnota þetta pláss í víðlesn- asta dagblaði landsins og baktryggja mig með því að opinbera mín dýpstu vefleyndó. SPJALLIÐ á Facebook nota ég daglega. Þar spjalla ég við vini og vinnufélaga og dreg ekkert undan. Alþingismenn, sjónvarpsstjörnur, vinir mínir og keppendur í undankeppni Euro- vision hafa orðið fyrir barðinu á galgopalegu blaðrinu í mér og við þau vil ég segja að ég meinti örugglega hvert einasta orð. Sorrí. SNAPCHAT er alvarlegra mál. Ein- hvern tíma verða myndirnar, sem fólk heldur að gufi upp eftir að viðtakandinn skoðar þær, opinberaðar af kófsveittum Mountain Dew-lepjandi hakkara. Ég svitna við tilhugsunina um að í bunkan- um leynist myndir af mér. Myndirnar valda eflaust usla í ákveðnum kreðsum sam- félagsins og vil ég til dæmis biðja móður mína afsökunar á hegðun minni — myndin sem sýnir mig ganga örna minna var ætluð vinum. Hún var reyndar tekin í sjálfsvörn þar sem sömu vinir nýttu hugbúnaðinn til að koma hægðum sínum á framfæri, í há- skerpu og stundum steríó. ÞÁ er mikilvægt að fólk viti að nektar- myndin af mér í spegli baðherbergis míns var aðeins ætluð kærustunni minni. Við vorum reyndar ekki kærustupar þegar ég sendi myndina, sem útskýrir viðleitnina til að spenna sem flesta vöðva líkamans og notkun lýsingar til að skerpa á þeim. Ég skammast mín samt ekki enda vakti myndin mikla lukku — og þá sérstaklega fagmannlega útfærður pakkinn sem ég teiknaði á mig miðjan til að hylja það allra heilagasta, enda nýkominn úr kaldri sturtu. LOKS gæti tónlistarmiðillinn Spotify orðið fyrir barðinu á óprúttnum aðilum. Ég hef ekkert að fela þar frekar en á öðrum sam- félagsmiðlum: Wrecking Ball með Miley Cyrus er í alvöru uppáhaldslagið mitt. Mín dýpstu vefl eyndó ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK EMPIREROLLING STONE GQ DEADLINE HOLLYWOOD ENTERTAINMENT WEEKLY VAR ÍSLENSKUR ÞINGMAÐUR Í INNSTA HRING WIKILEAKS? MÖGNUÐ MYND SEM VAR TEKIN AÐ HLUTA TIL Á ÍSLANDI VARIETY HUNGER GAMES 2 6, 7, 9, 10 PHILOMENA 5:50, 8 CARRIE 10:10 FURÐUFUGLAR 2D 5 S.B. - FBL “ÞAÐ BESTA SEM HEFUR KOMIÐ FRÁ HOLLYWOOD Í LANGAN TÍMA” S.B. - FBL PARADÍS: VON “IT COULD BE HIS BEST FILM SO FAR” - THE GUARDIAN THE BROKEN CIRCLE BREAKDOWN BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI TRIBECA 2013 SJÁ SÝNINGATÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas NÁNAR Á MIÐI.IS PRINCE AVALANCHE THE HUNGER GAMES 2 THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS THE COUNCELOR CAPTAIN PHILIPS FURÐUFUGLAR 2D THE PAST NORTHWEST THE HUNGER GAMES 2 PHILOMENA CAPTAIN PHILIPS HROSS Í OSS THE HUNGER GAMES 2 NORTHWEST KL. 8 KL. 4 - 5 - 6 - 8 - 9 KL. 8 KL. 8 - 10.30 KL. 10.10 KL. 3.30 KL. 6 - 9 - 10 KL. 6 - 8 Miðasala á: og KL. 5.15 - 10.15 KL. 10.45 KL. 6 - 8 - 9 KL. 5.45 - 8 KL. 8 KL. 6 Save the Children á Íslandi BAKÞANKAR Atla Fannars Bjarkasonar Sharon Osbourne, 61 árs, er ófeimin við að tjá sig opinskátt um allar lýtaaðgerðirnar sem hún hefur farið í. Hún segir sárs- aukafyllstu aðgerðina hafa verið þegar hún lét laga kynfæri sín. „Það versta var þegar leggöng- in mín voru þrengd. Það var sárs- aukafullt,“ segir Sharon í viðtali við Graham Norton. Þá tjáði hún sig líka um hjónaband sitt með rokkaranum Ozzy Osbourne en þau hættu saman og tóku aftur saman stuttu seinna. „Mikið hefur gerst í lífinu þegar maður er búinn að þekkja manneskju í fjörutíu ár og búinn að vera með þeirri manneskju í 33 ár. Hann datt í það og neytti blöndu af fíkniefnum og áfengi.“ - lkg Lét laga kynfærin HRESS Sharon er ekki feimin. Leikkonan Marcia Gay Harden er búin að næla sér í hlutverk í kvik- myndinni Fifty Shades of Grey sem byggð er á samnefndri skáld- sögu eftir E.L. James. Marcia, 54 ára, mun leika Dr. Grace Trevelyan Grey, móður aðalkarlhetjunnar Christians Grey, sem leikinn er af Jamie Dornan. Með hlutverk systkina Christians fara Luke Grimes og Rita Ora en enn á eftir að afhjúpa hver leikur föður hans. Þá leikur nýstirnið Dakota Johnson hina hlédrægu Anast- asiu Steele sem kolfellur fyrir Christian. Tökur á myndinni hóf- ust í Vancouver í Kanada síðasta sunnudag en áætlað er að frum- sýna hana í febrúar árið 2015. -lkg Leikur móður Christians Grey HEPPIN Marcia leikur móður Christians. „Mér finnst UN Women vinna þarft starf í þágu mál- efna sem snerta okkur öll – ég elska að vinna með snillingum og allir sem komu að átakinu eru það,“ segir Saga Sig ljósmyndari um UN Women-bolinn sem hún ásamt Katrínu Maríu Káradóttur, yfirhönn- uði ELLU, hannaði fyrir landsnefnd UN Women á Íslandi. Það er ósk þeirra að með hverjum bol sem selst aukist meðvitund landsmanna um stöðu kvenna og stúlkna í fátækustu löndum heims og um leið sam- tökin. Allur ágóði af bolunum rennur í Styrktarsjóð Sam- einuðu þjóðanna til afnáms ofbeldis gegn konum. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að því að upp- ræta ofbeldi gegn konum og stúlkum og stuðla að auknu jafnrétti þeirra. „Í tilefni af gerð bolanna fengu samtökin konur og stúlkur úr öllum áttum og á öllum aldri til liðs við sig fyrir sérstaka auglýsingaherferð sem Saga tók. Myndatakan fór fram í Ljósmyndaskóla Sissu og er óhætt að segja að dagurinn hafi verið stórskemmti- legur,“ segir Hanna Eiríksdóttir hjá UN Women. Bolurinn verður seldur í takmörkuðu upplagi og kemur í verslanir um miðjan mánuðinn. Efnt verður til veislu þegar bolirnir koma í sölu í húsakynnum ELLU. Skyggnst bak við tjöldin hjá UN Women Saga Sig og Katrín María Káradóttir hönnuðu bol fyrir kynningarátak UN Wo- men. Þær fengu til liðs við sig konur úr öllum áttum fyrir auglýsingaherferðina. ÚR TÖKUM Þær Sigríður María Egilsdóttir og Selma Björk Hermannsdóttir lögðu málefninu lið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KONURNAR Á BAK VIÐ BOLINN Saga Sig, sem tók allar myndir, og Katrín María Káradóttir, yfirhönnuður ELLU, í bak- grunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPÁÐ Í SPILIN Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir Dýrfjörð, sem leikur í kvikmyndum á borð við Málmhaus og Djúpið, og Saga Sig skoða útkomu úr myndatökunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Saga var ljósmyndastjóri Verzl- unarskólablaðsins á mennta- skólaárunum. Það var þá sem hún áttaði sig á því að hún vildi vinna við ljósmyndun sem listform. Saga fór í eitt ár í listfræði í Háskóla Íslands en flutti svo til London þar sem hún lærði tískuljósmyndun í London College of Fashion. Hún út- skrifaðist þaðan árið 2011 og hefur síðan verið iðin við kol- ann og meðal annars myndað fyrir Nike Women, KALDA, KronKron, Topshop, Burberry og Harpers Bazaar Arabia svo eitthvað sé nefnt. Saga Sig
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.