Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 66

Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 66
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 66 visir.is Meira um leiki gærkvöldsins SPORT FÓTBOLTI Emil Hallfreðsson hefur verið í stóru hlutverki með nýliðum Hellas Verona sem hafa farið mikinn það sem af er tíma- bili í efstu deild á Ítalíu. Liðið situr í 6. sæti deildarinnar eftir fjórtán umferðir. Aðeins Juventus, Roma, Napoli, Inter og Fiorent- ina hafa staðið sig betur. AC Milan og Lazio eru á meðal liða sem sitja neðar á töflunni. „Það er mikill munur á deildunum þann- ig að þetta hefur verið miklu erfiðara,“ segir Emil um gengi nýliðanna á leiktíð- inni. Emil hefur verið í byrjunarliðinu und- antekningarlítið og aðeins misst úr einn leik. Þá var hann veikur. „Spilatíminn kemur mér ekkert á óvart. Þetta er mitt fjórða tímabil hjá liðinu og ég hef verið með sama þjálfara sem hefur allt- af jafn mikla trú á mér. Það gefur manni innblástur og sjálfstraust,“ segir Emil sem spilar á miðjunni hjá gulklædda liðinu. Emil og félagar töpuðu 4-3 fyrir Fior- entina á mánudagskvöldið en liðið sækir Sampdoria heim í bikarnum í kvöld. Birkir Bjarnason, félagi Emils úr íslenska lands- liðinu, leikur með Sampdoria. „Þeir sem spiluðu gegn Fiorentina munu nánast allir hvíla,“ segir Emil sem reikn- ar með því að fylgjast með gangi mála af varamannabekknum eða stúkunni í kvöld. Liðið á leik í deildinni á sunnudag og segir Emil ljóst að deildin sé algjört forgangsat- riði hjá nýliðunum. Liðið á heimaleik gegn Atalanta á sunnudag og þá vilji þjálfari liðsins að lykilmenn verði ferskir. Emil og Birki er vel til vina. Sá síðar- nefndi, sem gekk í raðir Sampdoria í haust, hefur fengið fá tækifæri hjá þeim bláklæddu undanfarnar vikur. Innkoma nýs þjálfara, Sinisa Mihajlovic, hefur lítið hjálpað. „Ég vona svo innilega að hann fái að spila og að honum gangi sem best,“ segir Emil um herbergisfélaga sinn úr lands- liðinu. Þótt þeir fái ekki tækifæri til að skiptast á treyjum í kvöld þá hafi þeir gert það er liðin mættust í deildinni í lok októ- ber. „Ég tók meira að segja tvær treyjur. Eina í hálfleik og aðra eftir leik,“ segir Emil léttur og hann minnir að Birkir hafi gert hið sama. Hann muni klárlega nýta tækifærið og spjalla við Birki í kvöld. Ekki sé útilokað að hann fái hjá honum eina treyju enda hafi vinur Emils í Veróna óskað sérstaklega eftir slíkri. kolbeinntumi@frettabladid.is Skiptust á treyjum síðast Íslendingaliðin Hellas Verona og Sampdoria mætast í bikarslag á Ítalíu í kvöld. Emil Hallfreðsson verður hvíldur en Hafnfi rðingurinn vonar að Birkir Bjarnason fái langþráð tækifæri undri stjórn Sinisa Mihajlovic. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Hlaupakonan Aníta Hinriksdóttir mun byrja næsta ár á risa- verkefni því hún keppir þá á einu frægasta innanhússfrjálsíþróttamóti Bandaríkjanna sem haldið er árlega í New York. Frábær árangur Anítu á þessu ári hefur komið henni í flokk með framtíðarstjörnum heimsins í 800 metra hlaupi kvenna og í framhaldinu fékk hún boð á hið fornfræga og virta innanhússmót, Millrose Games, sem fer fram í 107. sinn í febrúar. Ein mesta stjarna Bandaríkjanna, Mary Cain (fædd 1996), sem er jafngömul Anítu, ung bresk stúlka, Jessica Judd (fædd 1995), sem hefur verið að hlaupa mjög vel, og Ajee Wilson (fædd 1994), sem er tveimur árum eldri og að verða einn flott- asti hlaupari Bandaríkjanna, taka þátt í mótinu. „Mótshaldara í Bandaríkjunum langaði til að fá þessar ungu hlaupastjörn- ur saman í eitt hlaup. Þeir voru búnir að fá samþykki frá Cain og Wilson og töluðu um að það yrði af þessu ef Aníta vildi koma,“ sagði Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu, í Sportspjallinu sem verður frumsýnt á Vísi í hádeginu í dag. Þar fer Kolbeinn Tumi Daðason yfir árangur Anítu og annars íslensk frjálsíþróttafólks á árinu 2013 ásamt Gunnari og Þóreyju Eddu Elísdóttur. Mótið í New York fer fram 15. febrúar en verður þó ekki fyrsta mót hennar á árinu. „Aníta er líka að fara að keppa á Íslandi í vetur og það verður alþjóð- legt mót 19. janúar í Laugardals- höllinni. Frjálsíþróttasambandið stefnir á að fá tvo til þrjá er- lenda keppendur á móti henni á þessu móti, þar af einhverja í hennar styrkleikaflokki,“ sagði Þórey Edda Elísdóttir í Sportspjall- inu. - óój Aníta keppir við framtíðarstjörnur Bandaríkjanna í New York ÁN MARKS Emil hefur spilað 13 leiki í deildinni á tímabilinu en á enn eftir að skora. MYND/EPA ford.is Ford Fiesta, bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3 l/100 km. CO2 losun 99 g/km. Ford Fiesta, EcoBoost bensín 100 hö, sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,9 l/100 km. CO2 losun 114 g/km. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. BEINSKIPTUR FRÁ SJÁLFSKIPTUR FRÁ FORD FIESTA 2.450.000 KR. 2.790.000 KR. KOMDU OG PRÓFAÐU FORD FIESTA ER BESTI SMÁBÍLLINN ÁRIÐ 2013 Ekki enn sannfærð/ur? Hér eru fleiri staðreyndir um Ford Fiesta: Hiti er í framsætum og 3,5 tommu upplýsingaskjár í mælaborði. Farangursrýmið er einstaklega rúmt (290 lítra). CO2 gildin eru óvenju lág fyrir bensínvél og hann fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur. Ford MyKey, brekkuaðstoð og EasyFuel er staðalbúnaður. Öryggispúðarnir eru óvenju margir eða 7 talsins, þar af einn fyrir hné ökumanns. Sérstakt hitaelement er í miðstöð og er bíllinn því mjög fljótur að hitna sem er afar hentugt á köldum vetrarmorgnum! Ford Fiesta var valinn besti smábíllinn árið 2013 af sérfræðingum eins vinsælasta bílablaðs heims, Auto Express. Hann er útbúinn sparneytinni EcoBoost vél sem hefur hlotið titilinn Engine of the Year, tvö ár í röð. Síauknar vinsældir Fiesta koma ekki á óvart því nýtt útlit hans er sérstaklega rennilegt, hann er útbúinn snilldarbúnaði og svo er hann bara svo flottur. ÚRSLIT ENSKA ÚRVALSDEILDIN ARSENAL - HULL 2-0 1-0 Nicklas Bendtner (2.), 2-0 Mesut Özil (46.). LIVERPOOL - NORWICH 5-1 1-0 Luis Suarez (14.), 2-0 Luis Suarez (29.), 3-0 Luis Suarez (35.), 4-0 Luis Suarez (73.), 4-1 Bradley Johnson (83.), 5-1 Raheem Sterling (88.) MAN. UNITED - EVERTON 0-1 0-1 Bryan Oviedo (86.). SOUTHAMPTON - ASTON VILLA 2-3 0-1 Gabriel Agbonlahor (14.), 1-1 Jay Rodriguez (48.), 1-2 Libor Kozak (63.), 2-2 Pablo Daniel Os- valdo (69.), 2-3 Fabian Delph (79.) STOKE - CARDIFF 0-0 SUNDERLAND - CHELSEA 3-4 1-0 Jozy Altidore (14.), 1-1 Frank Lampard (16.), 1-2 Eden Hazard (35.), 2-2 John O‘Shea (50.), 2-3 Eden Hazard (62.), 2-4 Philip Bardsley, sjm (84.), 3-4 Philip Bardsley (86.) SWANSEA - NEWCASTLE 3-0 1-0 Nathan Dyer (45.+1), 2-0 Matieu Debuchy, sjm (67.), 3-0 Jonjo Shelvey (80.) FULHAM - TOTTENHAM 1-2 1-0 Ashkan Dejagah (56.), 1-1 Vlad Chiriches (72.), 1-2 Lewis Holtby (81.) WEST BROM - MAN CITY 2-3 0-1 Sergio Aguero (9.), 0-2 Yaya Toure (24.), 0-3 Yaya Toure, víti (73.), 1-3 Costel Pantilimon, sjm (85.), 2-3 Victor Anichebe (90.+5). STAÐAN: Arsenal 14 11 1 2 29-10 34 Chelsea 14 9 3 2 28-17 30 Manchester City 14 9 1 4 40-14 28 Liverpool 14 8 3 3 30-17 27 Everton 14 7 6 1 22-13 27 Tottenham 14 7 3 4 13-15 24 Newcastle 14 7 2 5 19-21 23 Southampton 14 6 4 4 18-13 22 Man. United 14 6 4 4 22-18 22 Aston Villa 14 5 4 5 16-16 19 Swansea 14 5 3 6 20-19 18 Hull City 14 5 2 7 12-18 17 WBA 14 3 6 5 17-19 15 Stoke 14 3 5 6 12-18 14 Cardiff 14 3 5 6 11-20 14 Norwich 14 4 2 8 12-28 14 West Ham 14 3 4 7 12-15 13 Crystal Palace 14 3 1 10 8-22 10 Fulham 14 3 1 10 12-26 10 Sunderland 14 2 2 10 11-28 8
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.