Fréttablaðið - 05.12.2013, Síða 68
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 68
DRÁTTURINN
8-LIÐA ÚRSLIT KARLA
GRINDAVÍK - NJARÐVÍK
FJÖLNIR - TINDASTÓLL
ÞÓR Þ. - HAUKAR
ÍR - KEFLAVÍK B
8-LIÐA ÚRSLIT KVENNA
GRINDAVÍK - KR
VALUR - SNÆFELL
KEFLAVÍK - NJARÐVÍK
FJÖLNIR - HAUKAR
Ég er alltaf að horfa upp á við og það þarf að vera einhver rúsína í pylsuendanum sem drífur
mann áfram í aukaæfingunum en ég æfi mikið
aukalega. Ég þarf að horfa til einhvers markmiðs til
þess að nenna því og næst á dagskrá er að komast
í landsliðið og fara út,“ sagði Hannes Þór Halldórs-
son í viðtali við Fréttablaðið sumarið 2008.
Hannes Þór varði þá mark Framara og hafði
gert það af stakri prýði. Árið áður hafði hann verið
gagnrýndur töluvert fyrir frammistöðu sína.
„Ég kom inn í mótið, hélt að ég væri súpermann
og ætlaði að sigra heiminn. Svo var ég sleginn
niður á jörðina og þurfti að stokka spilin upp á
nýtt. Ég þurfti að vinna í sjálfum mér og það er
að skila sér núna,“ sagði Hannes. Markvörðurinn
hefur upplifað hæðir og lægðir á ferli sínum auk
þess að vera gagnrýndur fyrir ýmislegt í sínum leik.
Spyrnugetan var mikill veikleiki en aukaæfingarnar
hafa svo sannarlega skilað sér. Hreyfingarnar eru
kannski ekki þær mýkstu en það kemur sjaldnast
að sök. Hann er traustur, maður stóru augna-
blikanna eins og vítaskyttur landsins þekkja
alltof vel og vinsæll liðsfélagi.
Sumarið 2004 sat hann á bekknum hjá
Leikni í 2. deild, spilaði Aftureldingu í
sömu deild árið eftir og með Stjörnunni
í 1. deild 2006. Á þeim tíma hefðu fáið
veðjað á að Hannes ætti innan nokkurra
ára eftir að verja búrið í bestu undan-
keppni karlalandsliðsins. Líklega höfðu
sömuleiðis fáir trú á því sumarið
2008. Öðru máli gegndi um
Hannes.
„Ég tel mig eiga möguleika
á landsliðssæti og er að von-
ast til þess að fá tækifærið.
Ég held að ég eigi alveg eins
heima þar eins og þessir
menn sem eru þarna núna.
Mér fyndist það ekkert
fáránlegt val hjá landsliðsþjálfaranum,“ sagði
Hannes í fyrrnefndu viðtali.
Einn af styrkleikum Hannesar hefur verið
sá að deila markmiðum sínum með öðrum.
Hann ætlaði sér að spila í efstu deild, hann
ætlaði sér í landsliðið og ætlaði sér í atvinnu-
mennsku. Hvort öll markmiðin hafi náðst ná-
kvæmlega á þeim tíma sem hann setti sér að ná
þeim er ekki aðalatriði. Í dag hefur hann náð
þeim öllum og næst á dagskrá að stimpla
sig inn á erlendri grundu.
Ólíkt fjölmörgum knattspyrnu-
köppum er Hannes ekki háður
fótboltanum til að hafa í sig og á.
Ást leikstjórans dáða á íþrótt sinni
og metnaður hefur fleytt honum
langt og engin leið að spá fyrir
um framhaldið. Enginn skyldi
reikna með því að Sandnes verði
endastöð markvarðarins 29 ára.
UTAN VALLAR KOLBEINN TUMI DAÐASON kolbeinntumi@frettabladid.is
MISSTI ALDREI TRÚNA Á SJÁLFUM SÉR
HANDBOLTI „Þetta er allt of langt
frí. Við gáfum leikmönnum okkar
vikufrí og þær fóru í ferðalög. Svo
hittumst við á mánudaginn og erum
byrjuð að æfa aftur,“ segir Stefán
Arnarson, þjálfari bikarmeistara
Vals í kvennaflokki.
Valsstelpur lögðu Fylki að velli í
deildinni 20. nóvember sl. en hafa
síðan ekki spilað leik. Næsti deild-
arleikur er á dagskrá 11. janúar.
Hlé var gert á deildinni hér
heima eins og annars staðar í Evr-
ópu vegna heimsmeistaramótsins
í Serbíu. Íslenska liðið komst ekki
í lokakeppnina en tíminn var þó
nýttur til að kalla landsliðið saman.
Liðið mætti Sviss í þremur leikjum
í síðustu viku og æfir nú út vikuna.
„Við höfum aðgang að leikmönn-
um ytra í tvær vikur. Svo margir
leikmenn landsliðsins spila erlendis
að það er nauðsynlegt að nýta tím-
ann vel,“ segir Róbert Geir Gísla-
son, mótastjóri Handknattleiks-
sambandsins. Liðið verði að fá tíma
til æfinga ætli það sér að komast á
næsta stórmót.
„Landsliðið hefði átt að æfa í eina
viku að meðtöldum landsleikjun-
um gegn Sviss,“ segir Stefán sem
finnst tveggja vikna æfingahrina
landsiðsins of löng.
„Það er auðvitað frábært að
landsliðið fái verkefni en þegar
liðið er ekki í lokakeppni á ekki
að eyðileggja Íslandsmótið,“ segir
Stefán. Ein vika hefði dugað og
í kjölfarið hefði verið hægt að ná
allt að þremur umferðum í deild-
inni fyrir jól. Málið hafi ekki verið
hugsað til enda heldur haldið í
sama horfi og undanfarin ár þegar
Ísland var með á stórmótum.
„Það verður að horfa á heildina.
Það eru fleiri að spila handbolta en
landsliðsmennirnir,“ segir Stefán.
Deildarbikarinn færður fram
Róbert segist hafa sest niður með
forráðamönnum félaganna í upp-
hafi síðastliðins sumars þar sem
línur hafi verið lagðar fyrir tíma-
bilið. Félögin hafi verið spurð hvort
vilji væri til að spila í deildinni í
desember í kjölfar landsleikja-
hlés eða lengja hléið fram í janúar.
Mögulegt hefði verið að spila eina
til tvær umferðir fyrir jól. Vilji
félaganna hafi verið að halda des-
emberhléinu líkt og undanfarin ár.
„Desember er þungur mánuður
fyrir félögin. Mörg lið eru skipuð
ungum leikmönnum í framhalds-
og háskóla sem eru á kafi í próf-
um,“ segir Róbert. Hann minnir
á að staða Vals sé nokkuð önnur
en annarra liða. Margir leikmenn
hafi lokið háskólanámi og séu úti
á vinnumarkaðnum. Hjá öðrum
liðum sé staðan erfiðari. Planið hafi
verið sent til félaga og enginn hafi
hreyft mótmælum.
Þá minnir Róbert á að deilda-
bikarinn, sem spilaður hafi verið
milli jóla og nýárs, verði leikinn
13.-14. desember í ár. Það komi til
af því að þá geti leikir í karla- og
kvennaflokki farið fram á sama
tíma. Leikirnir fari því ekki ofan í
undirbúning karlalandsliðsins sem
hefur leik á Evrópumótinu í Dan-
mörku 12. janúar.
Valsmenn létu rúmenska leik-
manninn Gherman Marinelu fara á
dögunum en sú náði sér ekki á strik
í rauða búningnum.
Útlendingalaust Valslið
„Þetta var ágætis leikmaður og
góð stelpa en hentaði ekki okkar
leikskipulagi,“ segir Stefán. Hún
komi úr austur-evrópskum hand-
bolta þar sem spiluð sé önnur vörn
en flest liðin hér heima leika. Hún
hafi verið föst í sínu og gengið illa
að aðlagast. Stefán segir Val ekki
munu reyna að fylla skarð Mar-
inelu með erlendum leikmanni.
Valsliðið ætli að taka á því án
aðstoðar að utan út leiktíðina.
Hins vegar segir Stefán fagnað-
arefni að Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir og Rebekka Skúladóttir séu
að komast á fulla ferð eftir
barneignahlé.
„ Þær eru að
styrkjast og kom-
ast í betra stand,“
seg i r Stefá n .
Hann er ánægður
með stöðu Valsl-
iðsins sem situr
í 2. sæti deildar-
innar eftir tíu
umferðir, stigi
á eftir toppliði
Stjörnunnar.
Hvorugt liðið
hefur tapað leik.
„Ég sagði allt-
af að þetta gæti
orðið erfitt fyrir
áramót. Við erum
á ágætis stað miðað
við hvað mannskapur- inn
kemur seint inn,“ segir Stef-
án. Markmiðið á Hlíðarenda er
skýrt. „Við stefnum alltaf á topp-
inn.“ kolbeinntumi@365.is
Stelpurnar fá of langt jólafrí
Þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta fagnar verkefnum fyrir A-landsliðið en telur þau ekki þurfa að bitna á
deildinni. Mótastjóri HSÍ segir fyrirkomulagið í takt við vilja félaganna en að margir leikmenn séu í prófum.
SIGURSÆLL Valskonur hafa unnið fjölmarga titla undanfarin ár undir stjórn Stefáns. Liðið varð bikarmeistari síðastliðið vor.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hefur unnið fimmtán titla með Val á fjórum tímabilum
Stefán Arnarson hefur unnið fimmtán gull með Valsliðinu síðan að hann tók við liðinu fyrir 2008-09 tímabilið. Valsliðið
hefur unnið þrjá Íslandsmeistaratitla undir hans stjórn og er ríkjandi bikarmeistari. Fyrsti titill þessa tímabils kom í hús
í byrjun vetrar þegar liðið vann Meistarakeppni HSÍ fjórða árið í röð.
Valsstelpurnar unnu ekkert fyrsta tímabilið hans, 2008-09, en frá á með leiktíðinni 2009-10 hefur Valsliðið alltaf
unnið annan af stóru titlunum og einu sinni tvöfalt. Auk þess að vinna þessi fimmtán gull þá hefur Valsliðið einnig
krækt í þrjú silfur. Ekki slæm uppskera á svo stuttum tíma.
TITLAR VALS UNDIR STJÓRN STEFÁNS ARNARSONAR
ÍSLANDSMEISTARI - 3 SINNUM 2010, 2011, 2012
BIKARMEISTARI - 2 SINNUM 2012, 2013
DEILDARBIKARMEISTARI - 2 SINNUM 2011, 2012
DEILDARMEISTARI - 4 SINNUM 2010, 2011, 2012, 2013
MEISTARAR MEISTARANNA - 4 SINNUM 2010, 2011, 2012, 2013
HANDBOLTI Róbert Aron Hostert,
leikmaður ÍBV, spilar ekki meira
með sínum mönnum fyrir vetrar-
fríið í Olísdeild karla þar sem
hann er með brotið bein í fæti.
„Það er álagssprunga í beini í
ristinni og ég má ekkert æfa fyrr
en í fyrsta lagi um miðjan janú-
ar,“ sagði Róbert en deildin hefst
á ný í febrúar.
Það tók nokkurn tíma að fá
rétta greiningu en meiðslin komu
ekki ljós í fyrri rannsóknum. „Ég
hefði auðvitað gjarnan viljað fá
að vita þetta fyrr en sem betur
fer virðast meiðslin ekki hafa
versnað á síðustu vikum.“
Honum stóð til boða að fara til
Þýskalands meðan á fríinu stóð
til að æfa með úrvalsdeildarliði
Hannover-Burgdorf, en nú er
ljóst að ekkert verður af því. „Það
verður bara að bíða betri tíma,“
sagði Róbert. - esá
Fer ekki til
Þýskalands
SKYTTAN Róbert Aron í leik með Fram
á síðasta tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STYRKIR VALSLIÐIÐ Anna
Úrsúla Guðmundsdóttir
kominn í slaginn á ný etir
barnsburð.
KÖRFUBOLTI Það verður seint sagt
að Njarðvík fari auðveldu leiðina
í bikarkeppni KKÍ, Powerade-
bikarnum.
Í 32-liða úrslitum keppninnar
lenti hið unga lið Njarðvíkur í
því að spila á móti KR. Húnarnir
unnu þann leik með glæsibrag.
Næst beið liðsins leikur gegn
bikarmeisturum Stjörnunnar sem
þeir unnu einnig.
Í gær var svo dregið í átta
liða úrslit og að þessu sinni
þurfa Njarðvíkingar að fara til
Grindavíkur í stórslag átta liða
úrslitanna.
Goðsagnarlið Keflavíkur
mætir ÍR á útivelli en 1. deildar-
liðin Fjölnir og Tindastóll mætast
þannig að það er ljóst að 1. deild-
arlið verður í undanúrslitunum í
ár. Lokaleikurinn er síðan á milli
Þórs og Hauka í Þorlákshöfn.
Hjá konunum er stórleikurinn
viðureign Vals og Snæfells en þá
mætast einnig Reykjanesbæjar-
liðin Keflavík og Njarðvík og
Grindavík tekur á móti KR. Loka-
leikurinn er síðan á milli 1. deild-
arliðs Fjölnis og Hauka. - hbg
Aft ur erfi tt
hjá Njarðvík
KRÝSUVÍKURLEIÐIN Elvar Már og
félagar í Njarðvík eiga aftur erfitt verk-
efni fyrir höndum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM