Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 84
Tónlist skipar
veglegan sess í
hátíðar dagskránni á
Stöð 2. Sunnudaginn
fyrir jól verður
frumsýnd heimildar-
myndin Okkar menn
í Havana þar sem
fylgst er með Sigurði
Guðmundssyni og
Memfismafíunni
vinna að nýrri
plötu í Havana á
Kúbu. Í myndinni
er fylgst með öllu
upptökuferlinu
ásamt því að sjá
ljóslifandi hina litríku og heillandi borg Havana.
Á aðfangadagskvöld, strax að lokinni beinni
útsendingu frá aftansöng í Grafarvogskirkju,
verður sýnd upptaka frá einstökum jólatónleikum
sem systkinin KK og Ellen héldu í Eldborg í fyrra.
Þau syngja og spila mörg okkar ástsælustu jólalög,
íslensk og erlend, og seilast einnig
í lög úr lagasjóði sínum, bæði ný
og gömul. Góðir gestir koma fram
á tónleikunum og má
þar nefna Mugison,
Magnús Eiríksson,
Elínu Ey og Pikknikk.
Tónlistarstjóri er
Eyþór Gunnarsson.
Á nýársdag
verður síðan sýnt
frá glæsilegum
minningartónleikum
sem voru haldnir til
heiðurs Elly Vilhjálms
í Laugardalshöllinni.
Einstakur ferill Ellyjar
var rifjaður upp í máli
og myndum, með tónlist og ýmiss
konar myndskeiðum, nýjum og
gömlum. Laugardalshöllinni var
breytt í tímavél og gestir hurfu
aftur til 6. og 7. áratugarins í eina
kvöldstund. Guðrún Gunnars, einn helsti merkisberi
minningar Ellyjar síðastliðin ár skipaði veigamikið
hlutverk í tónleikahaldinu.
RISASTÓRI
JÓLAÞÁTTURINN
Logi Bergmann tekur á móti fjölda
góðra gesta og tónlistarmanna í
árlegum jólaþætti sínum á Stöð 2.
Sjálfur er hann mikið jólabarn og heldur
mest upp á íslensk jólalög og íslenska
flytjendur.
Árlegur jólaþáttur Loga í beinni ber yfirskriftina
Risastóri jólaþátturinn og verður sýndur 20. des-
em ber á Stöð 2. Ekkert verður til sparað frekar en
venjulega. Fjöldi góðra gesta kemur í heimsókn og
líkt og í fyrri jólaþáttum mun tónlistin skipa stóran
sess. Sjálfur er Logi Bergmann mikið jólabarn
og árlegur jólaþáttur hans er vandræðalega stór
að hans sögn. „Þetta er fimmta árið í röð sem
við höfum svona jólaþátt og við reynum alltaf að
gera meira en við ráðum við. Ég geri ráð fyrir um
20 gestum en venjulega er ég með þrjá gesti í
hverjum þætti. Síðan má gera ráð fyrir sex til sjö
tónlistaratriðum, þannig að þetta verður rosalega
gaman hjá okkur.“
Gamlar perlur á Þorláksmessu
Jólaþátturinn verður sýndur fjórum dögum fyrir
aðfangadag og því gerir Logi ráð fyrir góðri
jólastemningu í salnum. „Reyndar byrjum við að
keyra upp jólastemninguna í þættinum á undan
sem verður sýndur 13. desember, þannig að tveir
síðustu þættirnir fyrir jólin verði miklir jólaþættir.
Það er ekki alveg ljóst á þessu stigi hverjir koma
fram í jólaþættinum en þó má greina frá því að
Bubbi Morthens syngur þar auk systkinanna KK
og Ellenar Kristjánsdóttur. Síðan skýrist þetta
allt saman þegar nær dregur en ég get lofað
skemmtilegum gestum og flytjendum.“
Á Þorláksmessu verður auk þess sýndur sérstakur
þáttur þar sem búið er að klippa saman jólalög
úr eldri þáttum Loga. „Á síðustu árum hafa
safnast saman mörg skemmtileg jólalög sem
flutt hafa verið í þættinum. Við erum að tala um
flytjendur eins og Ríó tríó, Ragga Bjarna, Helgu
Möller, Sigurð Guðmundsson og Baggalút. Þessir
flytjendur, ásamt öðrum, flytja bæði eigin lög og
lög eftir aðra.“
Léttur um jólin
Sem fyrr segir er Logi mikið jólabarn og eru
íslensk jólalög og íslenskir flytjendur í mestu
uppáhaldi. „Lagið Léttur um jólin með Ríó tríói
er í miklu uppáhaldi hjá mér en það kom út
á plötunni Jólastjörnur, árið 1976, sem var
mikið spiluð á æskuheimili mínu. Það var
skemmtileg stund þegar ég fékk þá félaga
til mín og þeir tóku lagið í þættinum hjá mér
enda lengi verið draumur minn. Ég hlustaði
einnig mikið á jólaplötu Brunaliðsins, Með
eld í hjarta, þegar ég var barn. Af nýlegra
efni má nefna Sigurð Guðmundsson en
ég er ofsalega hrifinn af honum. Hann
gaf út jólaplötu fyrir fáeinum árum sem er
strax orðin sígild í huga mínum. Svo má
ekki gleyma Björgvini Halldórssyni sem á
örugglega 100 jólalög sem eru stór hluti af
jólum landsmanna.“
Þátturinn Logi í beinni fer í frí eftir áramót
og tekur þá við spurningaþátturinn vinsæli
Spurningabomban. „Þátturinn verður með
svipuðu sniði og undanfarin ár þótt einhverjar
nýjungar muni hugsanlega bætast við. Við
höldum þó þessu klassíska og þannig verður
Rúnar Freyr til dæmis á sínum stað. Við byrjum
strax eftir áramót með Áramótabombuna sem er
nokkurs konar áramótauppgjör okkar. Þá verða
fleiri gestir en venjulega og árinu skipt í hluta.
Þetta verður stærsti bombuþáttur ársins.“
RISASTÓRI JÓLAÞÁTTURINN
20. DESEMBER KL. 19.50
FAGRIR TÓNAR YFIR HÁTÍÐIRNAR