Fréttablaðið - 05.12.2013, Qupperneq 87
„Franskur alvarleiki pirrar
mig stundum og ég elska
að fá Englendinga til
að hlæja.“
Clémence Poésy
ER FRAMUNDAN
LOKAUPPGJÖRIÐ
Dillane, sem margir muna eftir úr Game of Thrones, og franska
þokkagyðjan Clémence Poésy. Bæði heilluðust af pólitískum
söguþræði þáttanna.
„Vissulega eru tungumálalandamæri á milli Frakka og
Englendinga sem valda erfiðleikum í samskiptum þjóðanna.
Við Stephen smullum hins vegar strax saman þótt við séum
ekki af sömu kynslóðinni og bakgrunnur okkar sé ólíkur,“
segir Clémence um samstarf þeirra Stephens.
Kann ekki að ljúga
Í þáttunum spreytir Clémence sig á hlutverki Elise sem er
með Asperger-heilkenni.
„Elise er lokuð en einlæg sem barn. Hún gengur hreint til
verks í kynlífi og pikkar upp menn á bar til að sofa hjá. Elise
kann ekki að ljúga og þegar þannig er í pottinn búið lendir
fólk í skrýtnum félagslegum aðstæðum þar sem varla er hægt
að byggja upp sambönd við neinn, því mest af daglegu tjatti
okkar byggist á lygum þegar við látum eins og allt sé betra
en það er,“ segir Clémence.
Stephen Dillane heillaðist af áleitnum, erfiðum og
pólitískum spurningum sem varpað er fram í þáttunum.
„Þættirnir sýna evrópska dystópíu eða helvíti
með óvenjulegri nálgun og er engu líkara en að
handritshöfundar hafi troðið atvinnuleysi, umhverfismálum,
efnahagskreppunni, málum innflytjenda og fleiru ofan í
kokið á einhverjum sem reynist vera fjöldamorðingi,“ segir
Dillane og er ánægður með útkomuna.
„Ég hafði áhuga á að vinna með Frökkum sem
reyndist ánægjulegt. Þjóðirnar eru með ólíkar áherslur í
kvikmyndagerð og það er spennandi að sjá hvernig menning
okkar og þjóðlíf er fléttað saman.“
Charlotte Gainsbourg syngur upphafslagið þrúgandi röddu.
„Franskur alvarleiki pirrar mig stundum og ég elska að fá
Englendinga til að hlæja,“ segir Clémence sem birtist ómáluð í
þáttunum, fyrir utan bólu- og baugahyljara.
„Það gerir Elise áhugaverðari en mér hefur þótt óþægilegt
þegar fjölmiðlamenn segja mig hugrakka fyrir vikið og tel mig
kannski hafa gert heimskuleg mistök,“ segir Clémence hlæjandi.
Báðum finnst hressandi að söguþráðurinn snúist um vináttu en
ekki ástarsamband karls og konu.
„Það er ekki nóg skrifað um vináttu karla og kvenna og
greinilegt að efnistök í sjónvarpsþáttum taka nú nýja stefnu.
Farið er að höfða til greindar áhorfenda sem í síauknum mæli
njóta sjónvarpsefnis þar sem öll tungumál eru töluð.“
Einn vinsælasti erlendi þáttur Stöðvar
2 undanfarin ár, The Mentalist,
snýr aftur á dagskrá í desember og
verður sýndur á þriðjudagskvöldum
í vetur eftir að hafa verið sýndur á
sunnudagskvöldum undanfarin ár.
Ástralski leikarinn Simon Baker leikur
aðalhlutverkið í þáttunum en þetta
er sjötta árið sem hann er í hlutverki
hins bráðgáfaða Patricks Jane. Hann
notar einstaklega skarpa athyglisgáfu
sína til að aðstoða lögregluna við að
leysa flókin mál en á sama tíma eltist
hann við manninn sem myrti eiginkonu
hans og dóttur. Morðinginn gengur
undir nafninu Red John og má segja
að eltingarleikurinn við hann hafi verið
rauði þráðurinn í þáttunum allt frá
byrjun. Í þessari þáttaröð kemst Jane
loks að því hver Red John er í raun og
veru.
Sjálfur segir leikarinn að hann hafi ekki
viljað vita of mikið. „Ég passaði mig
á því að lesa ekki handrit þáttanna
langt fram í tímann til að viðhalda
spennunni,“ segir Baker.
The Mentalist snýr aftur og verður
á dagskrá á þriðjudagskvöldum.
Danska þáttaröðin Lærkevej sló í gegn hjá
áhorfendum Stöðvar 2 sl. sumar. Núna er að
hefjast ný þáttaröð um skrautlega íbúana
á Lærkevej en fyrsti þátturinn er á dagskrá
miðvikudaginn 4. desember.
Lærkevej er stórskemmtileg þáttaröð með
blöndu af gamni og kolsvartri alvöru. Hún
fjallar um þrjú systkin sem þurftu að flýja frá
Kaupmannahöfn eftir að hafa lent upp á kant
við eiturlyfjamafíu. Þau neyddust til að losa
sig við lík og fara huldu höfði. Þau fundu sér
felustað í rólegu úthverfi þar sem allt virtist
slétt og fellt á yfirborðinu. En íbúarnir við
Lærkevej eru skrautlegir og búa sjálfir allir yfir
leyndarmálum.
Í fyrsta þættinum bankar lögreglan upp á hjá
íbúum við götuna og það getur bara endað
með ósköpum.
Lærkevej-þættirnir vöktu athygli vestur yfir
haf og hefur NBC-sjónvarpsstöðin keypt
framleiðslurétt þáttanna. Bandarísk útgáfa
mun því verða framleidd undir heitinu
Park Road. Framleiðsluteymi Park Road
verður það sama og stóð að þáttunum um
mafíufjölskylduna The Sopranos.
LEYNDARMÁL OG LYGAR
Á LÆRKEVEJ
LÆRKEVEJ
MIÐVIKUDAGA KL. 21.10
THE MENTALIST
ÞRIÐJUDAGA KL. 21.30