Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 96

Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 96
Gullstöðin verður í sannkölluðum hátíðarbúningi allan desember- mánuð, en dagskráin samanstendur af íslenskum þáttum af dagskrá Stöðvar 2 frá því fyrr á þessu ári og besta innlenda sjónvarpsefninu úr sögu Stöðvar 2. Framleiðsla á innlendu sjónvarpsefni var aukin til muna nú á haustdögum og fá nýir áskrifendur tækifæri til að sjá þá þætti sem einkenndu sjónvarpsdagskrána undanfarna mánuði. Þá gefst tryggum áskrifendum tækifæri til að rifja upp alla bestu íslensku þættina úr sögu Stöðvar 2. Það er sannarlega af mörgu af taka og nægir að nefna nokkra þætti sem vakið hafa athygli á Stöð 2 undanfarin ár; Neyðarlínuna með Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, Sælkeraferð Völu Matt, Mannshvörf með Helgu Arnardóttur, Tossana með Lóu Pind Aldísardóttur, Veistu hver ég var? með Sigga Hlö, Bubba Morthens og Beint frá býli, Örlagadaginn með Sirrý auk þátta á borð við Spurningabombuna, Loga í beinni, Það var lagið, Viltu vinna milljón?, Kollu, Pönk í Reykjavík, Um land allt, Heimsókn, Týndu kynslóðina og Stóru þjóðina, svo fátt eitt sé nefnt. BESTU ÍSLENSKU ÞÆTTIRNIR Á GULLINU LJÚFFENGAR KRÆSINGAR Í desembermánuði hugum við alla jafna meira að mat en hina mánuði ársins. Það er því við hæfi að Gullstöðin sýnir matreiðsluþætti alla daga vikunnar, þá bestu úr safni Stöðvar 2. Og af nógu er að taka; fyrsta þáttaröðin af Hinu blómlega búi verður rifjuð upp auk þess sem sjónvarps- kokkarnir góðkunnu Jói Fel og Rikka sýna áhorfendum réttu handtökin í eldhúsinu. Þá er ótalinn fyrsta íslenska Masterchef-þáttaröðin, þar sem áhuga kokkar hvaðanæva af landinu reyndu með sér í skemmtilegri keppni. JÓLATÓNLIST Jólagestir Björgvins verða á dagskrá á jóladag og upptaka frá árlegum jóla- tónleikum Frostrósa verður sýnd á Gull stöðinni annan dag jóla. GRÍN OG ALVARA Leikið efni verður einnig í stóru hlutverki í jólamánuðinum og verður þar fremst í flokki nýjasta þáttaröðin af Ástríði, sem sýnd var á Stöð 2 á haustmánuðum á við góðar undirtektir. Þá verða margir af bestu sjónvarpsþáttunum úr sögu Stöðvar 2 rifjaðir upp, þeirra á meðal lögfræðidramað Réttur og spennuþáttaröðin Pressa. Grín og gaman er líka nauðsynlegt í aðdraganda jóla og ætti enginn að verða svikinn af því að rifja upp þætti á borð við Steindann okkar, Svínasúpuna, Fóstbræður, Mið-Ísland, Spaugstofuna og Bara grín.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.