Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 100

Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 100
FYRS ÚRSLITASTUNDIN Í BEINNI Á STÖÐ 3 ENGLAKROPPAR Á EINSTAKRI SÝNINGU VICTORIA'S SECRET FASHION SHOW MIÐVIKUDAGINN 18. DESEMBER KL. 19.45 THE X FACTOR FIMMTUDAGA OG FÖSTUDAGA Undirfatasýning Victoria’s Secret vekur ávallt mikla athygli. Stöð 3 sýnir upptöku frá sýningunni miðvikudaginn 18. desember. Margar af flottustu fyrirsætum heims taka þátt í þessari einstöku sýningu og á hverju ári fær ein þeirra þann heiður að klæðast brjóstahaldara sem skreyttur er rándýrum eðalsteinum. Sú heppna að þessu sinni var Candice Swanepoel í brjóstahaldara sem metinn er á 10 milljónir dollara. Á meðan stúlkurnar spranga um sviðið í kynþokkafullum undirfötum skemmtir söngkonan Taylor Swift áhorfendum með nokkrum af sínum þekktustu lögum. Stóra stundin nálgast fyrir aðdáendur The X Factor því úrslita kvöldið verður í beinni útsendingu á Stöð 3 fimmtu daginn 19. desember. Þriðja þáttaröðin af The X Factor hefur verið sýnd á Stöð 3 í vetur, innan við sólarhring eftir frum- sýningu þáttanna í bandarísku sjónvarpi. Í hverri viku eru tveir þættir og er sá fyrri sýndur á fimmtudagskvöldum þar sem keppendur sýna hvað í þeim býr en sá síðari á föstudagskvöldum en þar kemur ávallt í ljós hverjir hafa náð að heilla áhorfendur og komast áfram í keppninni. Líkt og undanfarin ár verður úrslita stundin í beinni útsendingu og hefst hún klukkan eitt eftir miðnætti aðfaranótt föstu- dagsins 20. desember. Þeir sem ekki eru tilbúnir að vaka fram eftir nóttu til að fylgjast með úrslita stundinni geta horft á útsendinguna á hefð bundnum tíma á föstudagskvöldinu. Í síðustu viku voru tveir söngvarar sendir heim og núna eru bara sex söngvarar eða söngsveitir eftir. Næsta verkefni þeirra er að syngja tvö ólík lög. Annað verður að vera lag sem uppáhalds „dívan“ þeirra hefur sungið og hitt er órafmögnuð útgáfa af lagi að eigin vali. Á föstudagskvöld kemur síðan í ljós hverjir komast áfram og eiga enn möguleika á að sigra í keppninni. THE X FAC TOR Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson stýrir skemmti þætti á Stöð 3 á þriðju dags kvöldum fram að jólum. Hann ætlar að dvelja í Banda ríkjunum yfir hátíð irnar en snýr svo aftur á Stöð 3 í janúar. „Ég fer með fjölskyldu kærustunnar til Flórída yfir jólin og þaðan förum við til New York þar sem við eyðum áramótunum með fjölskyldunni minni. Þetta verður gríðarlega spennandi,“ segir Friðrik Dór tónlistarmaður þegar hann er spurður út í jólahaldið í ár og er afar sáttur við að verja jólunum á sundlaugarbakka með sólarvörn. „Það verður fínt að hafa það heitt og gott yfir jólin. Sennilega verður samt kalt í New York, en það er fínt líka,“ bætir hann við en venjulega hefur hann eytt jólunum í foreldrahúsum. Þessi jól verða einnig ólík öðrum jólum þar sem þetta verða fyrstu jól Friðriks sem fjölskylduföður en hann eignaðist litla stúlku í haust. „Það er spennandi að vera fyrstu jólin með stelpuna okkar þarna úti. Hún verður bara þriggja og hálfs mánaðar um jólin og mun ekki vita neitt af sér, á Flórída á fyrstu jólum. En það verður gaman að klæða hana upp í jóladressið. Ég vona bara að hún verði í góðu stuði og fái hvorki í magann né í eyrun,“ segir hann hlæjandi. Hann segist lítið stressaður fyrir jólahefðunum aðalatriðið sé að slappa af með fjölskyldunni. „Það er alltaf gaman á jólunum, bara að vera með fólkinu sínu og borða mikinn mat. Ég er ekki fastur í miklum jólahefðum, keyri kannski út pakkana á aðfangadag og yfirleitt hlustum við á Rás 2 yfir matnum. Svo borða ég bara mikið, ætli það sé ekki aðalhefðin hjá mér,“ segir Friðrik hlæjandi. „Venjulega er hamborgarhryggur í jólamatinn, en kannski verður hefðin brotin í ár og við höfum kalkún á borðum, fyrst við verðum stödd í Bandaríkjunum á jólunum.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.