Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 102
JÓLAMATUR
EVU LAUFEYJAR
Eva Laufey Kjaran Hermanns dóttir ætti að vera
áhorfendum Stöðvar 3 að góðu kunn en þátturinn
hennar, Í eldhúsinu hennar Evu, hefur verið á
dagskrá þar í vetur. Hún eldar ósvikinn heimilismat
og lætur elskulegt viðmót hennar engan ósnortinn.
Síðustu tveir þættirnir, sem verða á dagskrá 9. og
16. desem ber, verða helgaðir jólunum.
„Í fyrri þættinum geri ég jóla -pavlovu en í þeim
síðari verða ofnbakaðar kalkúna bringur með
sætkartöflumús, rósakáli og Waldorfsalati.“
Þáttaröðin er frumraun Evu Laufeyjar í sjónvarpi.
Hún segir ferlið við gerð þeirra hafa verið afar
skemmtilegt og lærdóms ríkt. Samhliða þeirri
vinnu hefur hún svo unnið að lokafrágangi fyrstu
matreiðslubókar sinnar, Matargleði Evu, sem
kom út fyrir skemmstu. „Þar eru áherslurnar
svipaðar og í þættinum. Ég aðhyllist ekki ákveðið
mataræði en bókin hefur að geyma uppskriftir að
góðum og gildum heimilismat sem hægt er að
elda allan ársins hring.“
Eva deilir hér uppskriftinni að kalkúnabringunum
og meðlætinu.
Ofnbakaðar
kalkúnabringur
Uppskriftir miðast við fjóra
1 kg kalkúnabringa
smjör
kalkúnakrydd
salt og pipar
3 dl vatn
1 kjúklingateningur
Aðferð:
Hitið smjör á pönnu,
kryddið bringuna með
kalkúnakryddi, salti og pipar.
Brúnið bringuna á öllum
hliðum á pönnunni í örfáar
mínútur. Setjið bringuna í
eldfast mót. Sjóðið vatn og
leysið kjúklingatening upp
í vatninu, hellið vökvanum
í eldfasta mótið. Gott er að
setja smá smjörklípu ofan á
bringuna áður en hún fer inn
í ofn. Bringan er sett inn í ofn
við 90°C í 1,5 klst. Gott er að
stinga kjötmæli í bringuna
eftir 1,5 klst. Mælirinn
ætti að sýna 73–74°C. Þá er
bringan tilbúin, ef ekki þá
þarf hún að vera svolítið
lengur í ofninum. Bringan
þarf að hvíla þegar hún er
komin út úr ofninum í 15–20
mínútur.
Sveppasósa
250 g blandaðir sveppir
smjör
½ l rjómi
2 dl vatn + soð
1 tsk. góð berjasulta
salt og pipar
Aðferð:
Skerið sveppina smátt.
Steikið sveppina upp úr
smjöri í potti og kryddið til
með salti og pipar. Bætið
síðan rjómanum saman við
og leyfið sósunni að malla við
vægan hita í nokkrar mínútur.
Bætið út í vatni og soðinu sem
kom frá kalkúnabringunni,
hellið vökvanum sem er í
eldfasta mótinu og bætið út
í sósuna. Setjið smávegis
af sultu saman við. Leyfið
sósunni að malla svolítið
lengur, smakkið auðvitað til
og kryddið að vild.
Sætkartöflumús með
piparosti
5–600 g sætar kartöflur
1–2 msk. smjör
90 g rifinn piparostur
salt og pipar
Aðferð:
Sætar kartöflur eru skrældar
og skornar í svipað stóra
bita. Þær eru svo settar í pott
og vatn rétt látið fljóta yfir.
Suðan látin koma upp og soðið
í 25–30 mínútur eða þar til
að kartöflurnar eru orðnar
mjúkar. Vatninu er síðan hellt
af. Kartöflurnar stappaðar fínt
með smjöri og bragðbættar
með piparosti, salti og pipar.
Rósakál steikt á pönnu
með beikoni og rjóma
500 g ferskt rósakál
100 g beikon
1½ dl rjómi
salt og pipar
Aðferð:
Rósakálið er skolað, hreinsað
og skorið í tvennt. Sjóðið
rósakálið í léttsöltu vatni í
2–3 mínútur. Vatninu er síðan
hellt af. Setjið smjörklípu á
pönnu, skerið beikonið í litla
bita og steikið á pönnunni.
Bætið rósakálinu saman
við beikonið og steikið í
5 mínútur við vægan hita.
Rjómanum er síðan bætt út
á pönnuna og kryddað til
með salti og pipar. Leyfið
rósakálinu og beikoninu að
malla í rjómanum við vægan
hita í nokkrar mínútur.
Waldorfsalat
2 græn epli
1½ sellerí
25 græn vínber
1 dós sýrður rjómi
2–3 msk. þeyttur rjómi
2 dl valhnetur, þurrristaðar á
pönnu
1 tsk. agavesíróp
smá súkkulaði til þess að strá
yfir
Aðferð:
Kjarnhreinsið eplin, flysjið
og skerið í litla bita. Skerið
sellerí í litla bita. Skerið
vínber í tvennt. Grófhakkið
hneturnar og þurrristið á
pönnu. Pískið saman sýrðan
rjóma og rjóma. Blandið
síðan öllu saman í skál og
sáldrið smá súkkulaði yfir í
lokin. Geymið í kæli þar til
salatið er borið fram.
Í ELDHÚSINU HENNAR EVU
MÁNUDAGA KL. 20.45
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir mun elda jólamatinn með áhorfendum
Stöðvar 3 skref fyrir skref. Jólaþátturinn verður á dagskrá 16. desember.