Fréttablaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 24
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS ANTON JÓNSSON frá Raufarhöfn, lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík, mánudaginn 17. febrúar 2014. Útförin fer fram frá Raufarhafnarkirkju laugardaginn 22. febrúar kl. 14. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hvamm, dvalarheimili aldraðra á Húsavík, kt. 511298-2969, 1110-15-201156. Jón Magnússon Katrín Hermannsdóttir Margrét Guðný Magnúsdóttir Hreinn Grétarsson Magnús Örn Magnússon Anna Jónasdóttir Valur Magnússon Kristín Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. HJALTI STEFÁNSSON (Hjalti í Vöku) er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Kolbrún og Kristbjörg Hjaltadætur og aðrir aðstandendur. Aðalskrifstofa Matvælastofnunar á Selfossi verður lokuð frá kl. 13.00 í dag, fimmtudaginn 20. febrúar, vegna jarðar farar Sigurðar Guðmundssonar. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, EYRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR Kálfhóli, Skeiðum, verður jarðsungin frá Skálholtskirkju laugardaginn 22. febrúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Ólafsvallakirkjugarði. Elsa Aðalsteinsdóttir Guðmundur Þórðarson Gestur Þórðarson Margrét J. Ólafsdóttir Valgeir Þórðarson Kristín Hjálmarsdóttir Hrafnkell Baldur Þórðarson Siril Iren Sagstad Elín Þórðardóttir Sigurður Guðmundsson Gunnar Már Þórðarson Kolbrún Björnsdóttir Þorbjörg Valgeirsdóttir og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, pabbi, tengdapabbi og afi, VIÐAR MÁR PÉTURSSON Hofgerði 4, Vogum, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi sunnu daginn 9. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Krabba- meinsfélag Íslands njóta þess. Sérstakar þakkir til starfsfólks blóðmeinadeildar og dagdeildar LSH við Hringbraut, gjörgæslu LSH í Fossvogi, Rósu og Dísu hjá Heimahjúkrun Suðurnesja. Sigurbjörg Jónsdóttir Helgi V. Viðarsson Biering Halldóra Steina B. Garðarsdóttir Bjarki Viðarsson Biering Tina Endl Eygló Viðarsdóttir Biering Ian Stuart Stephenson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG JÓHANNA ÞÓRÐARDÓTTIR kennari, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður til heimilis á Þinghólsbraut 72, Kópavogi, lést á Hrafnistu þriðjudaginn 18. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Unnsteinn Þórður Gíslason Magnús Gíslason Kristján Gíslason Guðrún Benedikta Elíasdóttir Gísli Örn Gíslason Birna Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Minn ástkæri eiginmaður, JÓN BRYNJAR GUNNHALLSSON lést sunnudaginn 9. febrúar. Jarðarförin fer fram föstudaginn 21. febrúar í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 11.00. Þórhildur E. Halldórsdóttir, stjúpbörn, barnabörn, systkini og faðir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR GÍSLADÓTTIR HENTTINEN lést 9. febrúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Hannele Henttinen Karl Alvarsson Hans Vihtori Henttinen Ingunn Alda Sigurðardóttir Ívar Esa Henttinen Viktor Hugi Henttinen Egill Kalevi Karlsson Gréta Liisa Karlsdóttir Elín Eva Karlsdóttir Íris Saara Henttinen Karlsdóttir Irma Gná Henttinen Auður Ilona Henttinen Styrmir Eero Henttinen Hekla Toini Henttinen og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og tengdasonur, ÓLAFUR KR. GUÐMUNDSSON framkvæmdastjóri, Lindasmára 4, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 21. febrúar kl. 13.00. Guðný Helgadóttir Guðmundur Pétur Ólafsson Bjarney Anna Bjarnadóttir Rakel Ýr Ólafsdóttir Lloyd Hans McFetridge Helga Kristín Ólafsdóttir afabörn, systkini og aðrir aðstandendur. „Þessi dagur verður meira helg- aður hári karla en kvenna,“ segir Gríma Kristinsdóttir, einn hársker- anna sem verða með sýnikennslu næsta sunnudag í tilefni af 90 ára afmæli Meistarafélags hárskera. „Þeir eru farnir að spá meira í þetta strákarnir,“ segir Gríma. „Það er miklu meiri tíska og tækni komin inn í karlahártísku. Einu sinni létu strákar duga að segja: „Já, minnkaðu á mér hárið.“ Það eru ekki mjög krefjandi fyrirmæli fyrir hárgreiðslumeistara. Núna vilja strákar fá eitthvað smartara. Það þarf að hafa fyrir þeim og það er bara af hinu góða. Það skilar sér í meiri fagmennsku,“ segir Gríma. „Ég fór alveg á sér námskeið í herraklippingu til Danmerkur í fyrra,“ segir Gríma. „Hárið á körlum er klippt öðruvísi en hárið á konum. Það eru harðari línur hjá þeim, en mýkri línur hjá konum.“ Gríma klippir bæði karla og konur, en er líka menntuð í rakaraiðn. „Ég fór að læra rakstur 1978 eða 1979. Þá var byrjað að opnast meira fyrir það að konur lærðu rakaraiðn. Áður var þetta meira karlafag. Í kringum 1980 fór ég að vinna á stofu sem heitir Figaro. Þar var boðið upp á klippingu og rakstur fyrir bæði kynin, en það var nýbreytni á þessum tíma. Ég byrjaði þar um það leyti sem ég útskrifaðist úr hárgreiðslunámi í Ósló,“ segir Gríma. Meistarafélags hárskera hét upphaflega Rakarameistarafjelag Reykjavíkur, og var stofnað í Eim- skipafélagshúsinu árið 1924. Konur stofna hárgreiðslufélag í kringum 1931, en það rennur síðar saman við Meistarafélag hárskera. Hár- greiðslusýning í tilefni af afmæli félagsins verður á sunnudag. Þar verður sýnikennsla í rakstri, skeggsnyrtingu, herraklipping- um auk þess sem boðið verður upp á danssýningu. Hárskerarnir sem taka þátt verða Gríma Krist- insdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Andri Kristleifsson, Jón Halldór Guðmundsson, Guðjón Þór Guð- jónsson og Torfi Geirmundsson. Einnig koma fram nemar úr hár- snyrtideildum skólanna. Dagskrá- in verður frá 14 til 18 og fer fram á Kaffihúsinu í Víkinni, Sjóminja- safninu, Grandagarði. - ue Karlar orðnir smart Meistarafélag hárskera verður 90 ára á þessu ári. Haldið verður upp á það næsta sunnu- dag með hárgreiðslusýningu og sýnikennslu í rakstri og skeggsnyrtingu. HÁR Gríma Kristinsdóttir hársnyrtikona ætlar meðal annars að snyrta skegg á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.