Fréttablaðið - 20.02.2014, Page 8

Fréttablaðið - 20.02.2014, Page 8
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 ÞEKKINGIN BEISLUÐ – NÝSKÖPUN OG FRUMKVÆÐI Einstök bók um nýsköpun á Íslandi – útgáfudagur 4. júní 2014 ■ Afmælisrit tileinkað Þorsteini Inga Sigfússyni, prófessor og forstjóra, sextugum. ■ 33 sjálfstæðir bókarkaflar fjalla um hvernig þekking er beisluð og henni veitt í farveg nýsköpunar og stofnunar fyrirtækja. Frumkvöðlar segja sögu nokkurra lykilverkefna í íslensku atvinnulífi auk þess sem sérfræðingar á ákveðnum fagsviðum skrifa um efni þeim hugleikið. ■ Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Viltu skrá þig á heillaóskaskrá (Tabula gratulatoria)? ■ Þeim sem skrá sig á heillaóskaskrána býðst að kaupa verkið á kr. 5.990.– auk póstburðargjalds. Gjaldið verður innheimt í júní 2014 samhliða dreifingu bókarinnar. ■ Hægt er að skrá nafn sitt og allar viðeigandi upplýsingar í gegnum heimasíðu Nýsköpunar - miðstöðvar Íslands: www.nmi.is/nyskopunarbok eða með því að senda upplýsingar á netföngin: nmi@nmi.is | hib@islandia.is Nafn viðkomandi (og maka) eða stofnunar mun birtast á heilla - óskaskrá fremst í ritinu. Þorsteinn Ingi Sigfússon FlexiClog er með sérhannað innlegg sem styður við fótinn og hjálpar þannig til við að halda líkamanum í réttri stöðu. Verð áður kr. 12.900,- Verð nú kr. 10.320,- FLEXI CLOG Hágæða vinnuskór fyrir fagfólk í eldhúsi og á heilbrigðisstofnunum Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Fastus ehf. • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is F A S TU S _H _0 2. 02 .1 4 20% afsláttur Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is MANNRÉTTINDI Yfirfærsla þjón- ustu við fimmtíu hælisleitendur frá Reykjanesbæ til Reykjavíkur hefur gengið vel að sögn mannréttinda- stjóra Reykjavíkurborgar. Um áramót tóku gildi þjónustu- samningar innanríkisráðuneytis- ins við Reykjavíkurborg og Reykjanesbæ um þjónustu við hælisleitendur á meðan mál þeirra eru til meðferðar hér á landi. Í þeim felst að Reykjavík tekur við þjónustunni við fimmtíu einhleypa karlmenn, en í Reykjanesbæ, sem þjónustaði áður alla hælisleitendur, eru nú að því er fram kemur á vef bæjarins 79 manns, aðallega fjöl- skyldufólk, enda eru þar á meðal 20 börn. Þar segir jafnframt að með þessu hafi létt mikið á þjónustuþörf í bæjar félaginu, enda sagði talskona félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ í viðtali við Fréttablaðið síðasta sumar, þegar um 150 hælisleitend- ur voru þar, að bærinn hefði ekki burði til að þjónusta svo marga. Anna Kristinsdóttir, mannrétt- indastjóri Reykjavíkurborgar, seg- ist ánægð með hvernig verkefnið hefur gengið hingað til. „Margir af þessum mönnum hafa verið hér á landi í langan tíma og þessar breytingar hafa gengið nokkuð áreynslulaust.“ Mennirnir búa, að sögn Önnu, í um fimmtán íbúðum sem borgin leigir á almennum markaði með húsgögnum. Flestar íbúðirnar eru miðsvæðis, enda sér þjónustumið- stöð miðborgar og Hlíða um þjón- ustuna við hópinn. Anna segir mennina hafa aðgang að margs konar þjónustu á vegum borgarinnar, til dæmis sundlaug- um, strætisvögnum og öðru. Hún segir að upplifun mannanna af dvöl hér á landi sé öðruvísi í borginni. „Við höfum heyrt af þeim að það sé öðruvísi að vera hér í fjöl- menninu en í fámennara sveitar- félagi, þar sem þú fellur frekar inn í fjöldann hér. Það er ekki svo að almenningur gefi sér hér að um hælisleitendur sé að ræða ef fólk af erlendum uppruna býr í íbúð úti í bæ. Það er kannski helsti mun- urinn og gerir þessa félagslegu aðlögun auðveldari, sem er ein- mitt það sem borgarstjóri lagði upp með í byrjun verkefnisins,“ segir Anna. thorgils@frettabladid.is Falla frekar inn í fjöldann í borginni Fimmtíu hælisleitendur þiggja nú þjónustu frá Reykja- víkurborg. Voru áður í Reykjanesbæ þar sem ekki var hægt að anna öllum hælisleitendum. Falla frekar inn í fjöldann í borginni, sem auðveldar félagslega aðlögun. VIÐ TJÖRNINA Mannréttindastjóri Reykjavíkur segist heyra á þeim hælisleitendum sem flutt hafa til borgarinnar að þeim þyki þeir falla betur inn í mannfjöldann í borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVEITARSTJÓRNIR Golfklúbburinn Oddur, sem rekur golfvöll á landi Oddfellow-reglunnar, á nú í rekstr- arerfiðleikum. Er formaður og framkvæmda- stjóri Odds gengu fyrir íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar upp- lýstu þeir að af 1.150 félagsmönn- um byggi fjórðungur í Garðabæ og um tvö hundruð væru í Odd- fellow. Félagsgjald væri hærra en hjá öðrum en dygði ekki fyrir öðru en leigugjaldi af vellinum til Odd fellow. Stækka þyrfti völlinn og farið var fram á að Garðabær greiddi leiguna af landinu. - gar Erfiðleikar hjá golfklúbbi: Eiga rétt fyrir leigu á landi Í URRIÐAHOLTI Oddur rekur Urriðavöll. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Við höfum heyrt af þeim að það sé öðruvísi að vera hér í fjölmenninu en í fámennara sveitarfélagi, þar sem þú fellur frekar inn í fjöldann hér. Anna Kristinsdóttir mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar BANDARÍKIN Milljón manns gætu misst vinnuna í Bandaríkjunum verði fyrirætlanir Baracks Obama Bandaríkjaforseta um hækkun lágmarkslauna að veruleika. Það er vegna þess að ráðgert er að vinnuveitendur muni bregðast við hærri launakostnaði með því að segja upp starfsfólki. Þetta er niðurstaða skýrslu fjár- lagaskrifstofu bandaríska þings- ins sem var falið að meta áhrif þess ef alríkislögum um lág- markslaun yrði breytt svo að þau myndu hækka úr 7,25 dollurum á klukkustund upp í 10,1 dollara. Repúblikanar segja að fækk- un starfa bitni helst á þeim sem hafa minnsta starfsreynslu, sem sé ungt fólk. Demókratar hafa hins vegar bent á að samkvæmt skýrslunni gæti hækkunin leitt til þess að milljón manns kæmist upp fyrir fátæktarmörk. Margir í röðum demókrata hafa þó kosið að gera sem minnst úr skýrslunni og segja hana vera á skjön við kenn- ingar sumra hagfræðinga sem telja að hækkun lágmarkslauna ýti ekki undir atvinnuleysi. - js Skýrsla um áhrif hækkunar lágmarkslauna kyndir undir deilum vestanhafs: Milljón störf geta farið í súginn BARACK OBAMA Bandaríkjaforseti vill hækka lágmarkslaun með lögum. MYND/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.