Fréttablaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 62
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
„Ég er búinn að senda manna-
nafnanefnd beiðni um að sam-
þykkja nafnið Joð,“ segir
knattspyrnumaðurinn og verk-
fræðineminn Tómas Þorsteinsson
en hann langar að fá millinafnið
Joð samþykkt. Faðir hans, Þor-
steinn J. Vilhjálmsson fjölmiðla-
maður hefur gjarnan verið kall-
aður Þorsteinn Joð en hann heitir
þó Þorsteinn Jens í þjóðskrá.
„Joð-nafnið festist við mig þegar
ég var í barnaskóla til að aðgreina
mig frá öðrum Tómasi. Þá var pabbi
mikið í sviðsljósinu og því Joð kjör-
ið nafn á mig,“ útskýrir Tómas.
Hann segist vera bjartsýnn á
að fá nafnið samþykkt. „Ég er
jákvæður og hef trú á þessu, sér-
staklega því að millinöfn í dag
þurfa ekki endilega að fallbeygj-
ast,“ segir Tómas en segist þó ekk-
ert verða brjálaður ef nafnið verð-
ur ekki samþykkt.
Heldurðu að faðir þinn breyti
Jens-nafninu í Joð ef nafnið verð-
ur samþykkt? „Ég held það sé
alveg mögulegt en hann er samt
svo íhaldssamur,“ segir Tómas
léttur í lundu. Mannanafnanefnd
hittist einu sinni í mánuði og mun
Fréttablaðið að sjálfsögðu fylgjast
grannt með stöðu mála þangað til
niðurstaða fæst í málið. - glp
Reynir að fá nafnið Joð samþykkt
Tómas Þorsteinsson reynir nú að fá mannanafnanefnd til að samþykkja beiðni
hans um að fá millinafnið Joð staðfest. Tómas er bjartsýnn á samþykkið.
VILL NAFNIÐ SAMÞYKKT Tómas berst
nú fyrir því að fá nafnið Joð samþykkt
hjá mannanafnanefnd. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Ég myndi segja að Grótta væri
uppáhaldsbæjarhlutinn minn vegna
náttúrufegurðar, fótabaðsins og
svo á ég yndislegar æskuminningar
þaðan, því Grótta var svo gott sem
bakgarðurinn minn!“
Vigdís Másdóttir, leikkona
BESTI BÆJARHLUTINN
Film in Iceland, verkefni sem
vinnur að því að fá erlendar
kvikmyndir til landsins, var það
eina utan Bandaríkjanna sem
The Location Manager Guild of
America tilnefndi til verðlauna
nú á dögunum, fyrir að þjónusta
kvikmyndina The Secret Life of
Walter Mitty.
„Þetta er vottur um að það hafi
tekist vel hjá okkur undanfarin
ár að laða erlend kvikmyndaverk-
efni til landsins,“ segir Einar
Tómasson, sem hefur stýrt Film
in Iceland síðastliðinn áratug.
„Og að það er ánægja með þau
verkefni sem við höfum stýrt til
landsins.“
Film in Iceland er verkefni
sem rekið er af iðnaðarráðuneyt-
inu innan Íslandsstofu.
„Verkefnin sem hafa komið til
landsins hafa gengið mjög vel og
þess vegna koma erlendir fram-
leiðendur aftur og aftur. Fram-
leiðslufyrirtækið sem skaut
Walter Mitty skaut árið á undan
kvikmyndina Prometheus hér á
landi. Þeim leið nógu og vel til að
koma aftur sem er náttúrulega
frábært,“ heldur hann áfram, en
Einar leggur mikið upp úr því að
þeir kvikmyndaframleiðendur
sem taki upp hér á landi kynni
Ísland samhliða kvikmyndinni.
„Það hefur gengið vel og okkur
hefur tekist að fylgja eftir land-
kynningunni, eins og til dæmis
með Walter Mitty þar sem Ísland
var hluti af auglýsingaherferð-
inni fyrir myndina. Ben Stiller
ræddi Ísland í spjallþáttum og
viðtölum vestan hafs og þar fram
eftir götunum,“ útskýrir Einar.
En Einar segir margt spila inn
í. „Það eru þjónustufyrirtækin
og þeir sem vinna að verkefnun-
um sem láta Film in Iceland líta
vel út og við erum ánægð með
að taka við tilnefningunni fyrir
allan þennan hóp,“ segir hann að
lokum. olof@frettabladid.is
Íslendingar héldu vel
utan um Ben Stiller
Film in Iceland var eina verkefnið utan Bandaríkjanna sem The Location
Manager Guild of America tilnefndi til verðlauna á dögunum.
TILNEFND FYRIR WALTER MITTY Einar Tómasson segir að velgengnin sé þjónustu-
fyrirtækjunum að þakka og þeim sem vinna að verkefnunum.
• Albuquerque Film Commission fyrir þáttaraðirnar „Breaking
Bad“ & „Lone Survivor“
• Film in Iceland fyrir kvikmyndina „Secret Life of Walter Mitty“
• Film LA fyrir þáttaröðina „NCIS: Los Angeles“
• Long Beach Film Commission fyrir „Dexter“
• South Pasadena Film Commission fyrir „Dexter“
Tilnefningar í sama flokki:
Hlutverk Location Manager er yfirleitt mest í byrjun verkefna. Þeir fara þá
og finna hentuga tökustaði en halda svo áfram að stýra öllu því praktíska
í kringum tökurnar. Það kemur til dæmis í hlut Location Manager að fá
ýmis leyfi sem þarf að fá, ræða við stjórnvöld, vera í samskiptum við þjón-
ustufyrirtæki og þar fram eftir götunum.
Hvað er Location Manager?
„Jú, það er auðvitað heiður að þeir hafi haft sam-
band við mig og viljað fá mig í vinnu,“ segir
Hulda Halldóra Tryggvadóttir stílisti sem er
á leiðinni á tískuvikuna í París í næstu viku til
að vinna fyrir tískuhúsið Kenzo.
Hulda var fengin til að stílisera tísku-
þátt fyrir vefsíðu Kenzo síðastliðið haust
sem lagðist svo vel í aðstandendur tísku-
merkisins að þeir buðu henni þetta tæki-
færi í kjölfarið. „Ég verð að vinna við
að klæða fyrirsæturnar baksviðs fyrir
sýninguna sem verður skemmtileg upp-
lifun en þetta er í fyrsta sinn sem ég
fer á tískuvikuna í París. Ég er mikill
aðdáandi Kenzo,“ segir Hulda en sýningin fer fram
2. mars.
Tískuvikan í París er ein sú stærsta í heimi þar
sem mörg frægustu fatamerkin sýna haust- og
vetrartískuna 2014. Kenzo hefur verið á mikilli
uppsveiflu undanfarin misseri eftir að hönn-
unartvíeykið Carol Lim og Humberto Leon
tóku við keflinu sem aðalhönnuðir merkisins.
Hulda starfar sem stílisti og þrátt fyrir að
vera á leiðinni í hringiðu tískubransans heillar
ekki að starfa þar til frambúðar. „Ég stefni á
frekara nám í búningahönnun. Kvikmyndir
og sjónvarp heilla meira en tískuheimurinn í
augnablikinu.“ - áp
Á leið í hringiðuna á tískuvikunni í París
Stílistanum Huldu Halldóru boðið að vinna við sýningu tískuhússins Kenzo.
SPENNANDI TÆKIFÆRI Hulda Halldóra
er að fara að vinna við sýningu Kenzo á
tískuvikunni í París.
– fyrir lifandi heimili –
R e y k j a v í k o g A k u r e y r i
E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s
RIALTO La-Z-boy sjónvarpssófi.
Svart leður á slitflötum. 205 x 90 H:105 cm.
359.990
FULLT VERÐ: 459.990
LA-Z-BOY RIALTO – SJÓNVARPSSÓFI
139.990
FULLT VERÐ: 179.990
69.990
FULLT VERÐ: 79.990
EMPIRE
La-Z-boy stóll.
Fæst í 3 litum litum.
B:80 D:70 H:102 cm.
RIALTO
La-Z-boy stóll.
Fæst í fjórum litum.
B:80 D:90 H:105 cm.
Einnig fáanlegur í áklæði
á tilboði frá kr. 99.990
119.990
FULLT VERÐ: 179.990
STANLEY La-Z-boy stóll. Svart,
hvítt, brúnt og vínrautt leður
á slitflötum. B:81 D:94 H:103 cm.
Einnig fáanlegur í álæði á
tilboðsverði frá kr. 83.990