Fréttablaðið - 20.02.2014, Page 12
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
ÚKRAÍNA Átökin í Kænugarði í
fyrrinótt voru þau mannskæðustu
til þessa og kostuðu að minnsta
kosti 25 manns lífið. Meira en 200
manns særðust.
Viktor Janúkovítsj Úkraínu-
forseti rak yfirmann úkraínska
hersins í gær eftir að fram kom
hörð gagnrýni á alþjóðavettvangi.
Utanríkisráðherrar Evrópu-
sambandsins hafa verið kallað-
ir saman til fundar í Brussel í
dag. Jose Manuel Barroso, for-
seti framkvæmdastjórnar ESB,
sagðist reikna með því að á þess-
um fundi yrði samþykkt að beita
refsiaðgerðum gegn þeim sem
bera ábyrgð á ofbeldinu í Úkraínu.
Barroso fór ekki í grafgötur með
að hann teldi ráðamenn Úkraínu
bera þar höfuðábyrgðina.
Joe Biden, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði Bandaríkin
fordæma ofbeldi allra, sem hlut
eiga að máli, en Úkraínustjórn
bera þó „sérstaka ábyrgð“.
Biden skoraði jafnframt á
Janúkovítsj að draga sérsveitir til
baka og sjá til þess að aðgerðum
verði haldið í hófi.
Þá hefur Navi Pillay, mannrétt-
indafulltrúi Sameinuðu þjóðanna,
kallað eftir því að gerð verði óháð
rannsókn á ofbeldinu í Kænugarði,
til að tryggja að hægt verði að
draga til ábyrgðar þá sem átt hafa
stærstan þátt í því hvernig fór.
Janúkovítsj forseti segir hins
vegar stjórnarandstöðuna bera
alla ábyrgð á dauðsföllunum og
skorar á hana að slíta tengsl sín
við róttæk öfl. Stjórnarandstæð-
ingar hafi gengið of langt þegar
þeir hvöttu menn til að mæta vopn-
aða til mótmælanna í Kænugarði.
Rússnesk stjórnvöld standa þétt
við bakið á Janúkovítsj og hóta því
nú að grípa inn í og binda enda á
átökin.
„Úkraína er vinaríki okkar og
mikilvægur samstarfsaðili, og við
munum beita öllum okkar áhrif-
um til þess að koma á friði og ró,“
sagði í tilkynningu frá utanríkis-
ráðuneyti Rússlands.
gudsteinn@frettabladid.is
Fiskikóngurinn
www.fiskikongurinn.is
NÝ VERSLUN
HÖFÐABAKKI 1
VERIÐ
VELKOMIN
Sogavegi 3
Höfðabakka 1
TILBOÐIÐ GILDIR ALLA VIKUNA
Dýraríki Íslands
teiknað af
Benedikt Gröndal
ÖRN OG ÖRLYGUR
Þann 6. október 1976 minntumst við 150 ára
afmælis náttúrufræðingsins og snillingsins
Benedikts Gröndal og gáfum út þetta höfuðverk
hans í 1500 tölusettum og árituðum eintökum.
Hinn þjóðkunni náttúrufræðingur og skólameistari,
Steindór Steindórsson frá Hlöðum,
ritaði eftirmála um ævi og störf Benedikts,
sem einnig er á ensku í bókinni.
Það talar sínu máli um glæsileik og gildi verksins,
að Vigdís Finnbogadóttir forseti
valdi það sem gjöf til erlendra þjóðhöfðingja.
Meginupplag bókarinnar var fyrir löngu
uppselt en á síðasta ári fundust
nokkrar ónotaðar prentarkir.
Þær voru bundnar inn og settar á markað.
Enn eru eftir 17 eintök af verkinu
og gefst nú almenningi kostur á að eignast þau.
Verð hvers eintaks er kr. 49.500,-
Bókin er seld beint af forlagi.
Nánari upplýsingar í síma 898 6658
og á netfanginu ornogorlygur@gmail.com
ESB íhugar refsiaðgerðir
Átökin í Úkraínu hafa kostað tugi manna lífið frá því á þriðjudag. Leiðtogar Evrópusambandsins og Bandaríkj-
anna eru sammála um að Úkraínustjórn beri höfuðábyrgðina. Sameinuðu þjóðirnar fara fram á óháða rannsókn.
MÓTMÆLENDUR BÚA SIG UNDIR FRAMHALD ÁTAKA Grjóti safnað úr götu-
hleðslum til að nota gegn lögreglunni í Kænugarði. NORDICPHOTOS/AFP
ÓEIRÐALÖGREGLAN Fjölmennt lið lögreglumanna stóð vaktina gegn mótmælend-
um í Kænugarði í fyrrinótt, meðan eldarnir loguðu í kring. NORDICPHOTOS/AFP
VÍGBÚNIR MÓTMÆLENDUR Átökin á Maidan-torgi í Kænugarði í fyrrinótt urðu
þau mannskæðustu frá upphafi mótmælanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÚKRASKÝLI Í KIRKJU Dómkirkjan í Kænugarði hefur verið nýtt sem skýli fyrir
mótmælendur. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
VENESÚELA, AP Leopoldo Lopez,
einn helsti leiðtogi stjórnarand-
stæðinga í Venesúela, gaf sig fram
við lögreglu í fyrrakvöld og var
þegar í stað færður í fangelsi.
Hann hefur verið í felum
undan farna viku og á yfir höfði
sér margvíslegar ákærur, þar á
meðal fyrir hryðjuverk og morð,
allt tengt átökum mótmælenda við
lögreglu og her þegar upp úr sauð
þar í síðustu viku.
Hörð átök brutust út í höfuð-
borginni Caracas í fyrrinótt eftir
að Lopez hafði verið handtekinn.
Sjálfur greip hann gjallarhorn
og sagði mannfjöldanum áður en
hann gaf sig fram að hann óttað-
ist ekki að þurfa að sitja í fang-
elsi, ef það mætti verða til þess að
vekja athygli á því tjóni sem fimm-
tán ára stjórn vinstri alræðisafla
hefur valdið landinu.
Nicolas Maduro forseti tók við
af Hugo Chavez á síðasta ári, en
Chavez hafði þá stjórnað landinu
frá 1999.
Fjölmenn mótmæli hafa verið í
borginni og víðar um land allt frá
því Lopez fór í fararbroddi fjölda-
mótmæla í höfuðborginni þann 12.
febrúar, sem beindust gegn stjórn
og forseta landsins.
- gb
Leiðtogi mótmælenda í Venesúela gaf sig fram:
Lopez handtekinn
LEOPOLDO LOPEZ Hvetur félaga sína til að halda áfram. NORDICPHOTOS/AFP
Úkraína er vinaríki
okkar og mikilvægur
samstarfsaðili, og við
munum beita öllum okkar
áhrifum til þess að koma á
friði og ró.
Úr tilkynningu frá utanríkisráðuneyti
Rússlands
TAÍLAND, AP Dómstóll í Taílandi
kvað í gær upp þann úrskurð
að stjórnvöld mættu ekki brjóta
gegn réttindum mótmælenda,
þrátt fyrir neyðarlög sem sett
voru í síðasta mánuði. Fjölmenn
hreyfing mótmælenda í Taílandi
hefur mánuðum saman krafist
þess að Shinawatra forsætisráð-
herra segi af sér ásamt ríkis-
stjórn sinni.
Sigur hennar í nýlegum kosn-
ingum hefur engu breytt því mót-
mælendur vilja enn að hún segi
af sér. - gb
Dómsúrskurður í Taílandi:
Ekki leyfilegt
að beita ofbeldi