Fréttablaðið - 03.04.2014, Page 6

Fréttablaðið - 03.04.2014, Page 6
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 VEISTU SVARIÐ? ALLIR GÖNGUSKÓR Á 20% AFSLÆTTI Ertu klár fyrir sumarið? 20% afsláttur Fæst án lyfseðils. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun. MENNTAMÁL Fimmtán ára ungling- ar í Asíulöndum standa sig lang- best við að leysa þrautir að því er fram kemur í nýbirtri PISA-könn- un. Efstu þrjú sætin skipa Singa- púr, Kórea og Japan. Næstu fjög- ur sæti þar á eftir skipa svo ólík svæði Kína, en í áttunda, níunda og tíunda sæti eru svo Kanada, Ástralía og Finn- land. Ísland er hins vegar hvergi að finna í saman- burðinum. „Ég held að þarna séu öll önnur lönd, en um var að ræða skylduþátt í verkefninu,“ segir Almar M. Halldórsson, verk- efnisstjóri PISA-könnunarinn- ar 2012 á Íslandi. „En þetta var skyldupartur á tölvur og tölvufyr- irlögnin kostaði aukalega, bæði í framkvæmd og að vera með, og við höfðum ekki fjármagn til að taka þátt,“ bætir hann við. Ísland hafi því fengið undanþágu frá þeim þáttum PISA-könnunarinnar sem í þessari umferð hafi krafist tölvu- kosts í fyrirlagningunni. Almar segir að í PISA-könn- unum sé að jafnaði líka auka- könnun, sem að þessu sinni snúi að þrautalausn í hóp og Ísland sé með í þeirri könnun. „Við erum að forprófa núna og svo verða aðal- prófin lögð fyrir vorið 2015 og svo fáum við niðurstöðurnar og sam- anburð við önnur lönd í desember 2016.“ Áður en kemur að birtingu þrautalausna í hóp segir Almar að eftir sé að birta könnun á les- skilningi á rafrænan texta. „Þá er textinn allur í svona heimasíðu- formi og krakkarnir þurfa að leita meira að efni líkt og við gerum á netinu.“ Ísland segir hann hins vegar ekki heldur vera með í þess- um hluta PISA-prófanna af sömu ástæðu. „Þetta var náttúrlega lagt fyrir á tölvu líka.“ Þrautalausnir á borð við þær sem nú var verið að birta segir Almar hins vegar að hafi einnig verið lagðar fyrir árið 2003 og þá hafi Ísland tekið þátt. Ólíklegt sé að miklar breytingar hafi orðið á getu barnanna síðan þá og því megi skoða þær niðurstöður til samanburðar. Ísland var í þeirri könnun með 505 stig að jafnaði. Sú niðurstaða í samanburði við könnunina 2012 hefði skilað landinu í 20. sæti, á milli Austurríkis og Noregs. Lönd- in í tíu efstu sætum könnunarinn- ar voru með frá 523 til 562 stiga. Neðstu sætin, frá 41. til 44. sætis, skipa Svartfjallaland, Úrúgvæ, Búlgaría og Kólumbía, með 407 til 399 stig. olikr@frettabladid.is ALMAR M. HALLDÓRSSON Fengum undanþágu vegna peningaskorts Ísland er eina landið sem ekki tók þátt í PISA-könnun á getu unglinga til að leysa þrautir. Niðurstöður voru birtar í byrjun vikunnar. Prófið þurfti að taka í tölvu og ekki var fjármagn fyrir hendi til að leggja það fyrir hér. Erum næst með árið 2015. Sæti Land Stig 1. Singapúr 562 2. Kórea 561 3. Japan 552 4. Makaó– Kína 540 5. Hong Kong– Kína 540 6. Sjanghæ– Kína 536 7. Taípei– Kína 534 8. Kanada 526 9. Ástralía 523 10. Finnland 523 Heimild: OECD, Creative Problem Solving - vol. V, 2014 ÚRLAUSN VERKEFNA 1. Hvað fengi nýtt framboð hægri- manna mikið fylgi samkvæmt könnun MMR? 2. Við hverja hefur NATO slitið öllu samstarfi ? 3. Hvaða fótboltakappi samdi lag um móður sína? SVÖR: KRAKKAR Í PISA-PRÓFINU Ísland tók að þessu sinni bara þátt í PISA-prófum þar sem ekki þurfti að nota tölvu við úrlausn verkefna. Fjárskortur hamlaði, segir verk- efnisstjóri PISA-prófanna 2012 á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG ORKUMÁL T i l raunarekstur hreinsistöðvar Hellisheiðar- virkjunar, sem mun skilja brenni- steinsvetni úr gufuútblæstri einnar af sex vélum virkjunar- innar, er hafinn. Gangi rekst- ur stöðvarinnar eins og vænst er, verður hún stækkuð. Slík ákvörðun verður ekki tekin fyrr en að fenginni eins árs rekstrar- reynslu. Um þróunar- og nýsköpunar- verkefni Orkuveitu Reykjavík- ur er að ræða sem miðar að því að draga úr lyktarmengun frá virkjuninni. Í ljósi þessa hefur Orkuveitan farið fram á undan- þágu frá ákvæðum reglugerðar um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti, sem ganga eiga í gildi í sumar. Reksturinn stenst núgildandi mörk í reglugerðinni. Brennisteinsvetnið, sem skil- ið er frá gufunni, er blandað vinnsluvatni frá virkjuninni áður en því er dælt niður fyrir grunn- vatnsstrauma í berggrunnin- um við virkjunina. Niðurstöður tilrauna gefa til kynna að þar bindist það berglögum sem brennisteinskís, sem betur er þekkt sem glópagull. Vinnslu- vatnið, sem blandað er í, er held- ur kaldara en það sem dælt hefur verið niður fram að þessu. Við þá breytingu telja vísindamenn að tímabundið séu auknar líkur á að jarðskjálftar verði á niður- dælingarsvæðinu. Slíkir jarð- skjálftar gætu náð þeirri stærð að þeir fyndust vel í byggð. - shá Auknar líkur á að við niðurdælingu verði jarðskjálftar af þeirri stærð að þeir geti fundist í byggð: Hreinsun hafin á útblæstri á Hellisheiði HELLISHEIÐARVIRKJUN Veðurstofan og Almannavarnir fá upplýsingar um jarðskjálftahættu vegna niðurdælingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1. 38 prósent. 2. Rússa. 3. Rúrik Gíslason. SVEITARSTJÓRNIR Í Reykjavíkur- borg voru ríflega tvö þúsund inn- flytjendur án ríkisborgararéttar á kjörskrá fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar árið 2010. Mjög líklega hefur orðið fjölg- un í þessum hópi á kjörskrá fyrir kosningar í vor þar sem fleiri hafa náð búsetuviðmiðinu og öðl- ast þar með kosningarétt. Vegna þessa stækkandi hóps stendur teymi um málefni inn- flytjenda fyrir morgunverðar- fundi í næstu viku með frambjóð- endum til borgarstjórnar þar sem þeir verða spurðir hvað þeirra flokkur hyggst gera í málefnum innflytjenda. „Við viljum ná málefnum inn- flytjenda á dagskrá í kosningun- um. Það er ekki til neinn þrýsti- hópur innflytjenda en mörg gífurlega mikilvæg mál snerta þá sérstaklega, eins og atvinnu- mál og menntamál barna þeirra,“ segir Gerður Gestsdóttir, sem er ráðgjafi innflytjenda hjá Vinnu- málastofnun. „Ég hef aldrei séð kosningar- loforð sem snúa beint að inn- flytjendum eða stjórnmálaflokka reyna að höfða til þeirra sem hóps og því köllum við eftir því á þessum fundi,“ segir hún. Á fjölmenningarþingi borgar- innar árið 2012 kom fram að meirihluti þátttakenda á þinginu taldi sig ekki geta fylgst nægi- lega vel með stjórnmálum vegna takmarkaðs aðgangs að upplýs- ingum. Bent var á að þýðingar á vef- síðum stjórnmálaflokka þyrftu að vera betri og endurspegla íslenska textann í stað úrdrátta. - ebg Teymi um málefni innflytjenda rukkar stjórnmálaflokka um stefnu: Eru 2,5 prósent af kjósendum RÁÐGJAFI INNFLYTJENDA Gerður Gestsdóttir situr í teymi um málefni innflytjenda og stendur fyrir málþingi um stefnu stjórnmálaflokka í þessum málaflokki. MYND/AÐSEND

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.