Fréttablaðið - 03.04.2014, Síða 56
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ 44
FRUMSÝNING
Nymphomaniac:
Part 2
drama
AÐALHLUTVERK: Charlotte
Gainsbourg, Stellan Skarsgård,
Shia LaBeouf, Uma Thurman,
Christian Slater.
Bönnuð innan 12 ára
7,2/10
72/100
69/100
Kvikmyndin Captain America:
The Winter Soldier verður frum-
sýnd á Íslandi á morgun, föstu-
dag. Í henni þarf Captain Amer-
ica, sem heitir réttu nafni Steve
Rogers, að snúa aftur til starfa til
að kljást við sinn öflugasta and-
stæðing til þessa – The Winter
Soldier, fyrrverandi útsendara
Sovétríkjanna.
Sebastian Stan túlkar The Win-
ter Soldier, eða Vetrarhermann-
inn, og undirbjó sig vel fyrir hlut-
verkið. Hann æfði stíft í fimm
mánuði og sökkti sér í sögubæk-
urnar.
„Ég dembdi mér í sögu kalda
stríðsins, ég kannaði KGB. Ég
horfði á alls kyns njósnamyndir
og heimildarmyndir um þennan
tíma og um hvað hann snerist,“
segir Sebastian.
Nýja myndin gerist tveimur
árum eftir atburðina í fyrri
myndinni, Captain America: The
First Avenger, sem frumsýnd
var árið 2011. Leikarinn Chris
Evans snýr aftur í hlutverki kaf-
teinsins og á móti honum leikur
kynbomban Scarlett Johansson.
Þau skrifuðu mörg af samtölun-
um sín á milli í myndinni en áður
en tökur hófust höfðu þau unnið
að þremur myndum saman – The
Perfect Score árið 2004, The
Nanny Diaries árið 2007 og The
Avengers árið 2012.
Jálkurinn Robert Redford
leikur einnig í myndinni en hann
vildi ólmur taka hlutverkið að
sér því afabörnin hans eru aðdá-
endur Marvel-myndasagnanna
og Captain America er eins og
margir vita úr myndasögunum.
Myndinni var afar vel tekið á
frumsýningarhelginni í Banda-
ríkjunum og skilaði áttatíu
milljónum dollara í kassann í
miðasölutekjum, rúmum níu
milljörðum króna. Utan Banda-
ríkjanna þénaði hún 75,2 milljón-
ir dollara fyrstu vikuna, tæplega
átta og hálfan milljarð króna.
Í öðrum hlutverkum eru Frank
Grillo, Samuel L. Jackson, An th-
ony Mackie og Dominic Cooper.
liljakatrin@frettabladid.is
Glímir við fyrrverandi
útsendara Sovétríkjanna
Captain America: The Winter Soldier verður frumsýnd á morgun. Í henni glímir kaft einninn við Vetrarher-
manninn sem Sebastian Stan leikur. Hann undirbjó sig vel fyrir hlutverkið og leit til dæmis yfi r sögu KGB.
ÓGURLEGUR Chris Evans snýr aftur sem Captain America.
Margir aðdáendur Captain America og Chris Evans tóku andköf þegar
blaðið Variety hafði eftir leikaranum að hann ætlaði að hætta að leika og
einbeita sér frekar að leikstjórn.
Chris mætti í þáttinn Good Morning America í vikunni og leiðrétti
þennan misskilning. Sagði hann að snúið hefði verið út úr orðum hans.
„Allt í einu er ég hættur að leika. Ég hef ekki í hyggju að hætta í leiklist.
Þetta er frekar asnaleg staða.“
EKKI HÆTTUR Í LEIKLISTINNI
8,3/10
71/100
92/100
Leikarinn Eddie Murphy er
53 ára í dag
Helstu kvikmyndir: Beverly Hills Cop, Trading
Places, Coming to America og Dreamgirls.
AFMÆLISBARN DAGSINS
„Þessi mynd er í einu orði sagt
stórfengleg. Stuttu eftir að hún
hófst gleymdi ég að um ævaforna
biblíusögu væri að ræða og varð
spennt að vita hvernig sagan færi að
lokum– þótt ég vissi það upp á hár.“
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
★★★★ ★
Noah
Disney-teiknimyndin Frozen hefur
halað hinn 1,072 milljarða dollara
síðan hún var frumsýnd og hampar
því titlinum vinsælasta teiknimynd
allra tíma. Tekur Frozen titilinn af
Toy Story 3 sem halaði inn 1,063
milljarða dollara árið 2010.
Vinsælasta teiknimynd
sögunnar
Bætist í leikarahóp
Taken 3
Leikarinn Jonny Weston hefur bæst
í leikarahóp kvikmyndarinnar Taken
3. Leikarinn Liam Neeson snýr aftur
í hlutverki Bryans Mills og munu
Maggie Grace og Famke Janssen
halda áfram að leika dóttur hans og
konu. Þá leikur Íslandsvinurinn Forest
Whitaker einnig í myndinni.
Jonny leikur kærasta Maggie en
annars hefur ekkert verið gefið
upp um söguþráð þessarar þriðju
Taken-myndar. Luc Besson framleiðir
myndina og Olivier Megaton leik-
stýrir en hann leikstýrði einnig Taken
2 sem var frumsýnd árið 2012.
Tökur í haust
Framhald af kvikmyndinni Magic
Mike, Magic Mike XXL, fer í tökur í
haust. Leikarinn Channing Tatum
skrifar handritið ásamt Reid Carolin
sem skrifaði handritið að fyrstu
myndinni. Steven Soderbergh leik-
stýrði þeirri fyrstu en
ætlar ekki að leikstýra
fleiri myndum og mun
framleiða framhalds-
myndina. Búist er við
því að flestir leikararnir
úr fyrri myndinni
leiki í Magic
Mike XXL.
Magic Mike
var frumsýnd
árið 2012
og lauslega
byggð á ferli
Chann-
ings sem
karl strippari
áður en hann
sló í gegn í
Hollywood.
BÍÓFRÉTTIR
… að leikkonan geðþekka Emma
Stone taldi foreldra sína á að leyfa
sér að byrja í leiklist með því að sýna
þeim Powerpoint-sýningu. Í sýning-
unni listaði hún upp kosti og galla
við bransann. Sem betur fer tókst
þessi brella á Emmu enda er hún ein
eftirsóttasta leikkonan í Hollywood
í dag.
VISSIR ÞÚ...GAGNRÝNI TEIKNIMYNDIN