Fréttablaðið - 03.04.2014, Page 60
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 48
SLUPPU VIÐ BÖLVUN
STRÁKASVEITANNA
Flestum meðlimum strákasveita sem reyna fyrir sér sem sólólistamenn eft ir að
sveitirnar hætta hefur mistekist hrapallega og varla náð inn á vinsældalista með tón-
list sína. Nokkur dæmi eru þó um að tónlistarmenn nái að rífa sig úr viðjum stráka-
sveitanna og njóti heimsfrægðar eft ir að hveitibrauðsdögum strákabandanna lýkur.
NOTTING HILL KOM
HONUM Á KORTIÐ
Ronan Keating hefur gefið út fjöl-
margar plötur eftir að strákabandið
Boyzone hætti árið 2000. Ronan
náði athygli heimsbyggðarinnar
þegar lag hans When You Say Noth-
ing at All hljómaði í kvikmyndinni
Notting Hill með Júlíu Roberts og
Hugh Grant í aðalhlutverki. Ronan
hefur selt rúmlega tuttugu milljónir
platna á heimsvísu og muna eflaust
margir eftir því þegar kauði tróð upp
á Þjóðhátíð í Eyjum árið 2012.
SKRAUTLEGUR FERILL
Bobby Brown gerði garðinn frægan
í sveitinni New Edition og sló ekki
slöku við þegar hann hóf sólóferil.
Platan hans Don‘t Be Cruel varð mikill
hittari og innihélt hans helsta smell,
My Prerogative. Bobby var kvæntur
söngkonunni Whitney Houston og var
einkalíf hans oft í forgrunni í fjölmiðlum
en ekki tónlistin. Hann hefur unnið til
Grammy-verðlauna, American-tónlistar-
verðlauna og Soul Train-verðlauna og er
talinn frumkvöðull Jack Swing-tónlistar
sem er sambland af hip hop-i og R&B.
KOMST Í HEIMSMETABÓK
GUINNESS
Robbie Williams hætti í strákasveitinni
Take That árið 1995 og olli miklu upp-
námi árið 1999 þegar hann tróð upp
í Laugardalshöll og hætti í miðjum
tónleikum eftir að plastflösku var hent
í átt til hans á sviðinu. Hann hefur selt
rúmlega sjötíu milljónir platna um heim
allan og er í hópi söluhæstu tónlistar-
manna allra tíma. Hann er söluhæsti
breski sólólistamaður í Bretlandi og árið
2006 fékk hann pláss í Heimsmetabók
Guinness fyrir að selja 1,6 milljónir
miða á tónleikaferðalag sitt Close
Encounters á einum degi. Þá hefur hann
einnig hlotið sautján Brit-verðlaun, fleiri
en nokkur annar listamaður.
ALLTAF Á TOPPNUM
Hljómsveitin Wham! hætti árið
1986 og George Michael og Andrew
Ridgeley fóru hvor í sína áttina.
Andrew gekk ekkert í tónlistinni eftir
það en sama er ekki hægt að segja
um George. Hann hefur selt rúmlega
hundrað milljónir platna á heims-
vísu en fyrsta sólóplata hans, Faith,
seldist í rúmlega tuttugu milljónum
eintaka. Hann hefur komið sjö
smáskífum á topp vinsældalista
í Bretlandi og átta á toppinn á
Billboard Hot 100-listann. Þá hefur
hann unnið til fjölda verðlauna, þar
á meðal tvennra Grammy-verðlauna,
þrennra Brit-verðlauna og fernra
MTV Video Music-verðlauna.
EKKI BARA TÓNLISTARMAÐUR
Verðandi Íslandsvinurinn Justin Tim-
berlake státar af einum farsælasta
sólóferlinum eftir að hljómsveitin ’N
Sync hætti árið 2002. Síðan þá hefur
hann gefið út hvern smellinn á fætur
öðrum, unnið til níu Grammy-verð-
launa og meira að segja gert garðinn
frægan sem leikari í bíómyndum á
borð við The Social Network, Bad
Teacher og Inside Llewyn Davis.
KONUNGUR POPPSINS
Það tæki heila bók að rekja frægðarferil
Michaels Jackson úr Jackson 5 enda er
hann alltaf kallaður konungur poppsins.
Platan hans Thriller frá árinu 1982 er
mest selda plata allra tíma og setti
Michael fjölmörg met áður en hann lést
árið 2009. Hann vann til 26 American
Music-verðlauna, fleiri en nokkur annar
listamaður og náði þrettán smáskífum á
topp vinsældalista í Bandaríkjunum.
FIMM VERSTU
SÓLÓFERLARNIR
ABZ LOVE– 5IVE
Þegar 5ive lagði upp laupana árið
2001 var Abz sá eini sem hóf sólófer-
il og gaf út plötuna Abstract Theory.
Hún náði 29. sæti á vinsældaristum
í Bretlandi.
MARK OWEN– TAKE THAT
Barnslegt andlit hans náði ekki að
selja þær fjórar plötur sem hann
hefur gefið út af neinu viti. Lögin
Child og Clementine eru líklega hvað
þekktust eftir hann.
BRIAN HARVEY– EAST 17
Brian gaf aðeins út eina hræðilega
plötu, Solo, árið 2001 og fékk hún
hræðilega dóma.
BRIAN MCFADDEN– WESTLIFE
Brian dýfði sér í indítónlist en
plöturnar hans fjórar hafa ekki notið
mikillar velgengni.
JOE JONAS– JONAS BROTHERS
Sólóplötunni hans, Fastlife, var
frestað ítrekað en hún kom loksins út
árið 2011 og náði ekki flugi.
Á HVERJUM FIMM SEKÚNDUM...
… er 1.250 lögum hlaðið niður úr verslun iTunes
… selur Amazon vörur fyrir tæplega sjö þúsund dollara,
tæplega átta hundruð þúsund krónur
… eru 35 LEGO-kassar seldir einhvers staðar í heiminum
… eru næstum því tvær Barbie-dúkkur seldar.
… þénar Nike rétt rúmlega þrjú þúsund dollara, rúmlega
þrjú hundruð þúsund krónur
… eru um það bil 3.150 áldósir endurunnar
… eru um það bil 4.656 olíutunnur notaðar
Save the Children á Íslandi
Fræðslusjóður
brunamála
Mannvirkjastofnun auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði
brunamála
Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu
þeirra sem starfa að brunamálum á sviði brunavarna
og slökkviliðsstarfa. Sjóðurinn greiðir styrki til rann-
sóknar- og þróunarverkefna, námskeiðsgjöld, ferða-
og dvalarkostnað, laun á námstíma og styrki vegna
námskeiða og endurmenntunar. Mannvirkjastofnun
annast úthlutun styrkja í samræmi við verklagsreglur
um sjóðinn. Sjóðurinn hefur til umráða 3,5 millj. kr. og
mun 60% til 90% verða ráðstafað til slökkviliða og
til einstakra slökkviliðsmanna. Aðrir aðilar sem vinna
að brunamálum eiga kost á 10% til 40% af ráðstöf-
unarfé sjóðsins.
Umsóknir merktar „Fræðslusjóður brunamála 2014“
skal senda til Mannvirkjastofnunar, Skúlagötu 21, 101
Reykjavík, fyrir 17. apríl 2014 á eyðublöðum sem fást
á mvs.is. Athygli er vakin á því að styrkveiting fellur
úr gildi ef styrkur er ekki nýttur innan tveggja ára frá
veitingu.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Valdimarsson
(petur@mvs.is).
Mannvirkjastofnun
Skúlagata 21
101 Reykjavík
Sími 591 6000
Fax 591 6001
www.mvs.is
Skrifstofan er opin
kl. 8.30-16 virka daga.