Fréttablaðið - 03.04.2014, Page 70
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 58
„Þessi mynd er um fatlaðan strák
sem tekur þátt í Iron Man-þríþraut-
inni og er byggð á sannsögulegum
atburðum,“ segir tónlistarmaðurinn
Barði Jóhannsson en hann samdi
tónlistina við frönsku kvikmyndina
De Toutes Nos Forces, sem frum-
sýnd var í Frakklandi í síðustu viku.
Á fyrstu fjórum sýningardög-
unum sáu yfir 190.000 manns
myndina, sem gerir hana að fjórðu
aðsóknarmestu kvikmynd Frakk-
lands í síðustu viku.
„Það er ekkert planað eins og er,“
segir Barði spurður út í fleiri kvik-
myndatónlistarverkefni.
Fyrir utan þessa miklu velgengni
í kvikmyndatónlistarheiminum var
Barði að koma heim úr tónleikaferð
um Kína með hljómsveit sinni, Bang
Gang. „Þetta gekk vonum framar
og það var fullt á öllum tónleikum,“
segir Barði aðspurður um tónleika-
ferðalagið. Bang Gang kom fram á
sjö tónleikum í sjö borgum í Kína og
var uppselt á alla tónleika ferðalags-
ins. Barði segir að vinsældir sveit-
arinnar hafi komið skemmtilega á
óvart. „Ég vissi að það væri einhver
hópur sem myndi mæta, en átti ekki
von á að svona mörgum, til dæmis
voru 1.200 manns í Peking,“ segir-
Barði og bætir við: „Þetta var ævin-
týri og Kínverjar eru hressandi.“
Barði vinnur nú hörðum höndum
að því að klára fyrstu plötu Starwal-
ker sem er dúett hans og Jean-Beno-
it Dunckel úr Air. Þá er ný Bang
Gang-plata væntanleg á árinu auk
þess sem Barði er að hefja vinnu við
stórt klassískt verk sem fyrirhugað
er að frumflytja 2015. - glp
190.000 manns sáu myndina á fj órum dögum
Kvikmyndin De Toutes Nos Forces er vinsæl í Frakklandi en Barði Jóhannsson samdi tónlistina.
ALLT FULLT Í KÍNA Barði seldi upp á
alla tónleika sína á tónleikaferðalagi um
Kína. MYND/JEANEEN LUND
Mín uppáhaldsbíómynd í dag er
Hross í oss því hún er falleg, flott
handrit, vel leikin og leikstjórn góð
og myndin er eitthvað svo sönn.
Takk fyrir mig. Áfram Ísland!
Bryndís Ásmundsdóttir, söng- og leikkona.
BÍÓMYNDIN
„Mig langar að hjálpa til við að
opna augu heimsins fyrir íslensk-
um leikurum, leikstjórum og
listafólki,“ segir Gísli Örn Garð-
arsson, en hann hefur gengið frá
samkomulagi við Borgarleikhúsið
um samstarf þar sem markmiðið
er að stuðla að inn- og útflutningi
á leiklist og leiklistarfólki.
„Ég vil leggja mitt af mörkum
við þetta verkefni,“ segir Gísli
Örn en hann mun efla samstarf
um gestaleiki milli íslenskra leik-
húsa og leikhúsa erlendis.
„Ég hef byggt upp ákveðið
tengslanet úti og vildi nýta það til
þess að efla íslenskt leikhússtarf,“
segir Gísli en ásamt því að vera
einn af fjórum föstum leikstjór-
um við Þjóðleikhúsið í Ósló þá
er hann listrænn ráðunautur hjá
Young Vic og Royal Court-leikhús-
inu í London.
„Það er svo mikið af spennandi
hugmyndum í gangi á Íslandi,“
segir Gísli sem er strax byrjaður
að vinna að markmiðinu.
„Það er margt í pípunum.“ - bþ
Flytur íslenskt leikhús út í heim
Gísli Örn Garðarsson vill leggja lóð sín á vogarskálarnar við að kynna íslenskt
leikhúsfólk fyrir heiminum í komandi samstarfi við Borgarleikhúsið.
VILL HJÁLPA TIL Gísli Örn hefur mikla
trú á íslensku leikhúsfólki.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Firði Hafnarfirði Sími 555 6655 - 662 5552 • kokulist@kokulist.is
/Kokulist
„Ég kann mjög vel við mig hérna,“
segir hin 23 ára Sigrún Eva Jóns-
dóttir en hún er búsett í New York
þar sem hún starfar sem fyrir-
sæta. „Það er samt gott að taka
pásur inn á milli til þess að koma
heim til Íslands og ná sér niður
á jörðina,“ segir Sigrún Eva en
hún var einmitt stödd hér á landi
um síðustu helgi þar sem hún tók
þátt í Reykjavík Fashion Festi-
val. „Það var rosalega gaman en
líka rosalega mikil vinna,“ segir
Sigrún Eva sem gekk sýningar-
pallinn fyrir fimm mismunandi
hönnuði.
„Það var ekki mikið sofið,“
segir Sigrún Eva og hlær. „Það
var smá skrítið að koma heim í
svona þunga vinnuferð,“ segir
Sigrún Eva en hún lenti á fimmtu-
deginum og fór strax í mynda-
töku fyrir Smáralindarblaðið og
mátun fyrir RFF.
„Síðan sýndi ég fyrir Hildi
Yeoman á föstudagskvöldinu,“
segir Sigrún Eva. „Á laugardag-
inn sýndi ég síðan fyrir Cinta-
mani, Farmers Market, Magneu
og REY,“ segir Sigrún Eva sem
hafði varla tíma til þess að setj-
ast niður og anda.
Fyrirsætuferill Sigrúnar hófst
óvænt þegar hún var sautján ára
og stödd í New York ásamt for-
eldrum sínum. „Ég var í H&M
þegar það kemur einhver kona
upp að mér og vildi fá mig á
skrá sem fyrirsætu,“ segir Sig-
rún Eva en konan var útsendari
fyrir umboðsskrifstofu Wilhelm-
ina Models þar sem Sigrún Eva
starfar í dag.
„Ég var ennþá í menntaskóla
á þessum tíma þannig að ég var
send í sumarfríinu árið eftir til
Kóreu til þess að byrja að vinna,“
segir Sigrún Eva. „Til þess að
fá vinnuleyfi í Bandaríkjunum
þarf maður víst að safna ákveð-
inni reynslu og hafa starfað áður
sem fyrirsæta,“ segir Sigrún Eva
en hún var send til Kóreu í þeim
tilgangi að sitja fyrir á auglýsing-
um sem birtust í kóreskum tíma-
ritum.
„Þetta var rosalega fyndið,“
segir Sigrún Eva. „Ég vissi voða-
lega lítið um Kóreu,“ segir Sig-
rún Eva en hún þurfti að taka
úr ferðatöskunni á flugvellinum
vegna yfirþyngdar. „Mamma
hafði pakkað svo miklu nesti fyrir
mig,“ segir Sigrún Eva og hlær.
„Ég var þar í 2 mánuði áður en
ég flutti síðan aftur heim til þess
að klára skólann,“ segir Sigrún
Eva sem flutti eftir framhalds-
skólann til New York þar sem hún
hefur búið í næstum því 3 ár.
„New York er algjör suðupottur
af alls kyns fólki, mér finnst það
frábært,“ segir Sigrún Eva sem
heldur samt góðu sambandi við
vini og fjölskyldu á Íslandi.
„Ég tala við mömmu og pabba á
næstum því hverjum degi og held
góðu sambandi við vinkonurnar
heima,“ segir Sigrún Eva.
Varðandi framtíðina segir Sig-
rún Eva hana vera algjörlega
óráðna.
„Ég hef svona verið að gæla við
þá hugmynd að læra leiklist,“ segir
Sigrún Eva sem hefur einnig þann
möguleika að flytja til Evrópu til
þess að vinna. „Líf mitt er einhvern
veginn óskipulagshæft,“ segir Sig-
rún Eva og hlær. „Ég get aldrei
skipulagt neitt lengra en mánuð
fram í tímann.“ baldvin@frettabladid.is
Byrjaði allt í H&M
Sigrún Eva Jónsdóttir vakti mikla athygli á Reykjavík Fashion Festival. Hún
byrjaði óvænt í fyrirsætubransanum og var send til Kóreu í sitt fyrsta verkefni.
STÓRBORGIN HEILLAR Sigrún Eva kann vel við sig í New York. MYND/EINKASAFN
Ég var ennþá í
menntaskóla á þessum
tíma þannig að ég var
send í sumarfríinu árið
eftir til Kóreu til þess að
byrja að vinna.