Fréttablaðið - 26.04.2014, Side 4

Fréttablaðið - 26.04.2014, Side 4
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 börn sækja Andrésar andar leikana í Hlíðarfjalli á Akureyri750 heitt vatn streymdi úr sprungu í Vaðlaheiðargöngum. 52,2 prósent 63,6 milljónir króna 89 prósent 14 milljarða 8 milljarða króna 46 gráða 134 langreyðar voru veiddar hér við land sum- arið 2013 greiðir útgerðin í veiðigjöld á næsta ári voru skuldir Leikfélags Akureyrar í lok janúar 20,7 prósent kjósenda segja mjög eða frekar líklegt að þeir muni kjósa nýtt fram- boð evrópusinnaðra hægrimanna. er aukningin á notkun lyfja við ofvirkni og athyglis- bresti á fjórum árum króna greiðir Fáfnir Offshore fyrir nýtt þjónustuskip fyrir olíuiðnað framhaldsskólakenn- ara og stjórnenda í framhaldsskólum samþykktu nýgerðan kjarasamning VINNUDEILUR Allar líkur benda til að lög verði sett á verkfall flug­ vallarstarfsmanna sem á að hefj­ ast miðvikudaginn 30. apríl, það er ef ekki semst fyrir þann tíma. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands, segir að reynslan sýni að þegar þeir sem vinna við samgöngur hafi farið í verkföll hafi verið sett lög. „Löggjafinn hefur metið það svo að ekki sé hægt að hafa land­ ið einangrað frá umheiminum,“ segir Gylfi Dalmann. „Það lúta ýmis rök að því að flugsamgöngur til og frá landinu varði almannaheill og að laga­ setning geti verið heimil,“ segir Inga Björg Hjaltadóttir lögmaður, en hún er jafnframt fulltrúi ríkis­ ins í Félagsdómi. Inga Björg segir að Hæstirétt­ ur hafi metið það svo í dómum sínum með hliðsjón af Mannrétt­ indasáttmála Evrópu og ýmsum alþjóðasamningum að inngrip löggjafans í vinnudeilur geti verið réttlætanlegt. „Hæstiréttur hefur þannig hvorki talið að ákvæði Mann­ réttindasáttmálans eða alþjóða­ samningar útilokuðu að löggjaf­ anum gæti verið heimilt að grípa inn í einstaka vinnudeilur með lagasetningu, né að löggjafanum væri óheimilt að leggja tímabund­ ið bann við einstaka vinnustöðv­ unum,“ segir Inga Björg en bætir við að það verði að gera strangar kröfur til slíkrar lagasetningar. Isavia og Samtök atvinnu­ lífsins eru fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar að taka saman greinargerð um þann kostnað sem það gæti haft í för með sér fyrir þjóðarbúið ef flugvallar­ starfsmenn fara í ótímabundið verkfall. Í greinargerðinni á jafn­ framt að leggja mat á hvaða áhrif verkfall hefði fyrir ferðaþjón­ ustuna til lengri tíma litið. Þegar VERKFALL Flugvallarstarfsmenn hafa í þrígang boðað til tímabundinna verkfalla sem hafa valdið töfum á flugsamgöngum. Deila þeirra við Isavia virðist í hnút. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lög líklega sett á verkfall Dósent við HÍ segir líkur benda til að lög verði sett á verkfall flugvallarstarfsmanna. Lögmaður segir ýmis rök lúta að því að flugsamgöngur til og frá landinu varði almannaheill. Því sé heimilt að banna verkfall með lögum. 1984 1989 1994 1999 2004 2009 2014 1985 verkfall flugfreyja 1986 verkfall mjólkurfræðinga 1986 far- mannaverkfall 1988 öll verkföll bönnuð frá 20 maí til 10 apríl 1989 í eitt ár 1990 brottfall kjara- samninga BHMR 1993 Vinnustöðvun á ms. Herjólfi 1994 Verkfall sjómanna 1998 verkfall sjómanna 2001 verkfall sjómanna 2004 verkfall grunnskólakennara 2010 verkfall flugvirkja 2014 verkfall undir- manna á Herjólfi LÖG SEM Í GEGNUM TÍÐINA HAFA VERIÐ SETT Á VERKFÖLL greinargerðin verður tilbúin á að kynna hana fyrir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráð­ herra. Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefnd Félags flugmálastarfsmanna ríkisins og Samtaka atvinnulífsins til sátta­ fundar á sunnudag. johanna@frettabladid.is Löggjafinn hefur frá árinu 1985 sett þrettán lög sem banna vinnudeilur. Þar af tengjast þrjár flugstarfsemi. Í grein Gylfa Dalmanns Aðalsteinssonar og Friðriks Friðrikssonar, Lög á verkföll á Íslandi 1985 til 2010, segir að lög á vinnudeilur hafi verið sett ef efnahagslegt vægi þjóðarbúsins og stöðug- leiki á vinnumarkaði eru í húfi, í öðru lagi ef heildarhagsmunir eru í húfi og loks ef lögmæt verkefni og framkvæmd þeirra hjá hinu opinbera eru í húfi. Þrjár ástæður fyrir lagasetningu INGA BJÖRG HJALTADÓTTIR GYLFI DALMANN AÐALSTEINSSON 19.04.2014 ➜ 25.04.2014 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Soffía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá KÓLNAR UM HELGINA Í dag verður yfirleitt fremur hægur vindur og bjart með köflum í flestum landshlutum. Hiti svipaður og í gær en á morgun fer heldur kólnandi, einkum N-til. Á mánudaginn eru horfur á vægu frosti norðanlands. 3° 2 m/s 6° 4 m/s 10° 4 m/s 9° 5 m/s Hæg N-átt eða breytileg átt. Fremur hægur vindur og kólnar í veðri. Gildistími korta er um hádegi 19° 31° 20° 14° 14° 14° 19° 16° 16° 23° 14° 24° 25° 22° 23° 21° 16° 21° 10° 4 m/s 9° 6 m/s 12° 2 m/s 5° 7 m/s 7° 2 m/s 5° 3 m/s 3° 4 m/s 10° 6° 2° 0° 8° 4° 4° -2° 1° -2° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur MÁNUDAGUR Á MORGUN DÓMSMÁL Niðurstaða fæst í mál Hjördísar Svan Aðalheiðardóttur fyrir dómstólum í Horsens í Dan­ mörku í næstu viku. Hjördís er ákærð fyrir að nema þrjú börn sín á brott frá Dan­ mörku. Faðir barnanna hefur fullt forræði yfir þeim. Réttarhöld hafa staðið síðustu daga. Börn Hjördís­ ar eru enn á Íslandi en verða flutt til Danmerkur eftir fjórar vikur samkvæmt dómi héraðsdóms. - ssb Ákærð fyrir brottnám barna: Dóms að vænta í næstu viku FERÐAÞJÓNUSTA Landeigenda­ félag Geysis segir það tvískinn­ ungshátt hjá ríkinu að vera á móti innheimtu aðgangseyris að Geysissvæðinu en standa á sama tíma fyrir innheimtu á aðra ferða­ mannastaði. Í tilkynningu er nefnd Silfra á Þingvöllum. „Rökin fyrir þeirri gjaldheimtu eru þau sömu og við Geysi; vernd­ un svæðisins, aðgangsstýring og uppbygging á aðstöðu fyrir ferða­ menn,“ segir Bjarni Karlsson, for­ maður Landeigendafélagsins. - skó Landeigendafélag ósátt: Segja ríkið sýna tvískinnung KJARADEILUR Félagar í Sjúkraliða­ félagi Íslands og SFR hafa boðað til verkfallsaðgerða í næsta mán­ uði leysist ekki kjaradeila þeirra við Samtök fyrirtækja í velferðar­ þjónustu. Um er ræða starfsmenn á elli­ og hjúkrunarheimilum og hjá SÁÁ. Starfsmenn ætla að leggja niður störf í átta klukku­ stundir milli átta og fjögur 12., 15. og 19. maí. 93,75% félagsmanna SLFÍ og 79,79% félagsmanna SFR svöruðu kosningu um verkfallið játandi. - kóh Meirihluti vildi verkfall: Sjúkraliðar boða verkfall

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.