Fréttablaðið - 26.04.2014, Page 6
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
4
1
1
4
6
Við bjóðum
upp á 6 mánaða
vaxtalausar
léttgreiðslur
Visa og Euro!
*Heimkeyrsla innan höfuðborgarsvæðisins á virkum dögum milli kl. 9–18.
Grillflötur 450x470 mm
2 brennarar
79.900 KR.
CHAR-BROIL GASGRILL
Léttgreiðslur 13.317 KR. í 6 mán.
Grillflötur 670x470 mm
3 brennarar
129.900 KR.
CHAR-BROIL GASGRILL
Léttgreiðslur 21.650 KR. í 6 mán.
GRILLSUMARIÐ
ER HAFIÐ
Verðlaunagrillin frá Char Broil búa yfir nýju TRU-
Infrared tækninni sem gerir þér kleift að grilla í
hvaða veðráttu sem er. Grillin eru afgreidd samsett
og keyrð heim til kaupanda ef óskað er.*
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1
Sími 580 8500
mánud.–föstud. 10–18
laugard. 10–16
ellingsen.is
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3
Sími 460 3630
mánud.–föstud. 10–18
laugard. 10–16
Leitaðu ráða hjá okkur. Hjá Ellingsen starfa sérfræðingar í öllum
deildum. Við veitum faglega og vandaða ráðgjöf og finnum
réttu vörurnar sem uppfylla þínar þarfir. Við seljum eingöngu
þrautreyndar hágæðavörur sem henta fyrir íslenskar aðstæður.
100% JAFN HITISAFARÍKARI
MATUR
BETRI STJÓRN
Á HITA
0:00
STYTTRI
ELDUNARTÍMI
Í ALLRI
VEÐRÁTTU
MINNI
GASNOTKUN
ENGAR
ELDTUNGUR
Grillflötur 790x470 mm
4 brennarar
159.000 KR.
CHAR-BROIL GASGRILL
Léttgreiðslur 26.500 KR. í 6 mán.
MENNING „Við erum spennt eins
og krakkar á jólunum,“ segir Jon
Gunnar Jørgensen. Hann beið þess
spenntur í gær að sjá nýprentaða
norska þýðingu Íslendingasagnanna
í prentsmiðjunni Odda. Sænsk þýð-
ing sagnanna ásamt danskri renn-
ur út úr prentsmiðjunni í kjölfar
þeirrar norsku.
Á mánudag kemur út í fyrsta
skipti heildarútgáfa Íslendingasagn-
anna á norsku, sænsku og dönsku,
en Jon Gunnar er ritstjóri norskrar
útgáfu þýðingarinnar.
„Þetta er dásamleg tilfinning.
Þetta hefur verið stórkostlega
gaman því þegar maður leitar til
fólks til að fá aðstoð við að gera
eitthvað fyrir sögurnar fær maður
svo góð viðbrögð,“ segir Jóhann Sig-
urðsson, útgefandi Íslendingasagn-
anna. Hann hóf undirbúning verk-
efnisins árið 2006.
Jóhann hafði áður gefið út enska
þýðingu Íslendingasagnanna, og
segir að þegar þeirri útgáfu hafi
verið lokið hafi legið beint við að
snúa sér að hinum norðurlandamál-
unum. „Sögurnar hafa skipt miklu
máli á Norðurlöndunum í hundruð
ára, og þær notið virðingar og verið
rannsakaðar af fræðimönnum.“
Undir það tekur Jon Gunnar. „Ég
fann það strax þegar við byrjuðum
að það var mikill áhugi fyrir þessu
verkefni. Fjölmiðlar hafa sýnt þessu
mikinn áhuga, og við höfum fengið
góða styrki til að standa undir
kostnaði við þýðinguna. Sögurnar
hafa haft mikil áhrif á norskt menn-
ingarlíf og fólk þekkir þær, þó fyrst
og fremst Heimskringlu.“
Jon Gunnar segir að þýðendur í
löndunum þremur hafi haft með sér
ákveðið samstarf, þó verkið hafi
verið unnið sjálfstætt í hverju landi.
Þeir hafi glímt við svipuð vandamál.
„Kvæðin eru sérstaklega erfið,
enda eru þau líka torskilin fyrir
Íslendinga. Við þurftum að ákveða
hvort við myndum þýða þau þannig
að þau líktust sem mest uppruna-
legum texta skáldsins, eða hvort
við myndum þýða þau þannig að
nútímafólk gæti skilið þau,“ segir
Jon Gunnar.
Norsku þýðendurnir völdu síðari
leiðina, en þeir dönsku reyndu að
halda sig nær upprunalega textan-
um. Ekki var reynt að þýða sögurn-
ar á finnsku. „Sögurnar hafa ekki
sams konar hefð í Finnlandi og á
hinum Norðurlöndunum,“ segir Jon
Gunnar. Þá bendir hann á að erf-
itt hefði getað verið að finna nægi-
lega mikið af hæfum sérfræðingum
til að þýða sögurnar úr íslensku á
finnsku. brjann@frettabladid.is
Íslendingasögurnar
þýddar í heild sinni
Heildarútgáfur allra Íslendingasagnanna koma út á mánudag á norsku, dönsku og
sænsku. Dásamleg tilfinning segir útgefandinn, sem hefur unnið að verkefninu í
átta ár. Mikill áhugi fyrir þýðingunni í Noregi segir ritstjóri norsku þýðingarinnar.
ÁNÆGÐIR Þeir Jon Gunnar Jørgensen (til vinstri) og Jóhann Sigurðsson fylgdust spenntir með þegar prentun á norsku þýðing-
unni á Íslendingasögunum lauk í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þann 21. maí mun Þórarinn
Eldjárn, sem hefur ort drápu
til Danadrottningar að fornum
hætti, fara í höllina þar sem
drottningin mun taka á móti
okkur og hlýða á drápuna,“ segir
Jóhann Sigurðsson, útgefandi
Íslendingasagnanna.
Hann segir þetta þakklætis-
vott til dönsku þjóðarinnar fyrir
rausnarleg framlög, og að til
standi að flytja konungum
Noregs og Svíþjóðar drápur síðar.
„Það verður stór stund að
endurvekja þúsund ára gamla
hefð. Drápan er algert snilldar-
verk, við erum búnir að sjá
hana,“ segir Jóhann.
Flytur Danadrottn-
ingu drápu
■ Allar Íslendingasögurnar 40, auk 49 þátta, voru þýddar á norsku, dönsku
og sænsku.
■ Prentuð verða 2.000 eintök af sögunum á hverju tungumáli.
■ Útgáfan er um 2.500 síður, en samtals þurfti að þýða um 8.400 blað-
síður fyrir útgáfuna á tungumálunum þremur að öllu meðtöldu.
■ Bækurnar eru prentaðar í Odda, og er þetta eitt viðamesta verkefni
prentsmiðjunnar.
■ Kostnaður við útgáfuna er um 250 milljónir króna. Styrkir hafa fengist
hér á landi, í Noregi, Svíþjóð og Danmörku og er útgáfan að fullu fjár-
mögnuð.
■ Verkefnið hófst hjá Sögu forlagi árið 2006 og lýkur formlega með útgáfu
bókanna þann 28. apríl.
■ Hátt í 100 manns hafa unnið við ritstjórn, þýðingar og yfirlestur.
■ Miklar kröfur voru gerðar til læsileika og nákvæmni þýðinganna, og
voru virt skáld og rithöfundar í löndunum þremur fengin til að lesa yfir og
leggja til breytingar á orðalagi.
■ Þjóðhöfðingjar Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar rita formála í bækurnar.
➜ Styrkir duga fyrir kostnaði við þýðingar
DÓMSMÁL Fyrrverandi starfs-
maður Orkuveitu Reykjavíkur á
rétt á bótum frá tryggingafélagi
fyrirtækisins vegna ristarbrots sem
hann varð fyrir við að landa laxi í
Elliðaánum.
Maðurinn var í frítíma sínum við
veiðar þegar slysið varð í júlí 2010.
Hann setti í lax og var að þreyta
hann þegar hann lenti með vinstri
fótinn ofan í sprungu og rann 70 til
80 sentimetra ofan í hana. „Hann
kvaðst hafa séð þessa sprungu ári
áður, er hann var veiðivörður við
ána, en þá hefði maður fótbrotnað
í henni. Hann hefði þá látið örygg-
isfulltrúa hjá Orkuveitunni vita,“
segir um vitnisburð mannsins.
Manninum, sem ristarbrotnaði
og var óvinnufær í eitt ár, var sagt
upp hjá Orkuveitunni ásamt fleirum
í október 2010. VÍS hafnaði bóta-
rétti. „Ætla verði að jafnvægismiss-
inn megi rekja til hreyfinga stefn-
anda sjálfs og líkamsbeitingar hans
er hann reyndi að landa fiskinum,“
segir í rökum VÍS sem héraðsdómur
hafnaði. - gar
Veiðivörður fær bætur fyrir að falla í sprungu sem hann varaði við sjálfur:
Ristarbrotnaði við að landa laxi
ELLIÐAÁR Vissara er fyrir veiðmenn að
stíga gætilega til jarðar í hita leiksins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA