Fréttablaðið - 26.04.2014, Qupperneq 24
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Morgunn frumsýn-ingardags er ekki óskatími fyrir leik-ara að mæta í við-tal en Hilmir Snær Guðnason er samt
ljúfmennskan sjálf þegar hann
mætir á Gráa köttinn nývakn-
aður og hræddur um að hann sé
að veikjast, sem verður að teljast
afar óheppileg tímasetning. Er það
kannski frumsýningarskrekkur-
inn sem er að kikka inn? Finnur
hann enn fyrir honum?
„Maður vex aldrei alveg upp úr
honum, en hann verður minni og
minni með tímanum. Maður er þó
alltaf með dálítinn fiðring fyrir
sýningar, ekkert bara frumsýn-
ingar, það er eitthvað sem breyt-
ist aldrei, held ég.“
Hilmir Snær leikur John
Proctor, eitt af aðalhlutverkunum
í Eldrauninni sem hann segir vera
gott hlutverk í velskrifuðu verki
sem eigi alltaf erindi. „Þetta er eitt
af þessum „well made plays“ og
alveg æðislega vel upp byggt. Við
styttum það reyndar mjög mikið
og færum nær okkur í tíma enda
eru nornaveiðar ekki tímabundnar
og skjóta alltaf upp kollinum aftur
og aftur. Manneskjan er nú bara
ekki þroskaðri en það, því miður.“
Hlakkar til að vinna með
„hinum“
Proctor verður síðasta hlutverk
Hilmis Snæs í Þjóðleikhúsinu,
allavega í bili eins og hann orðar
það, því hann hefur skrifað undir
samning við Borgarleikhúsið og
hefur störf þar í ágúst. Hvað olli
því að hann ákvað að skipta um
vinnustað? „Samningar eru gerðir
í eitt ár í senn og það veldur því að
það verður ekki til einhver ævar-
andi hollusta við ákveðna stofnun.
Það eru spennandi verkefni fyrir
mig í Borgarleikhúsinu, bæði í
leik og leikstjórn, og eftir að hafa
skoðað málið og rætt við Tinnu
þjóðleikhússtjóra um hvað væri í
boði fyrir mig þar á næsta leikári
ákvað ég að færa mig yfir. Allt í
besta bróðerni. Það er alltaf gott
að breyta til og ég hlakka mikið
til að fara að vinna með „hinum“
hópnum.“
Hilmir Snær útskrifaðist sem
leikari árið 1994 og hefur síðan
verið í hverju stórhlutverkinu á
fætur öðru, bæði í leikhúsi og bíó-
myndum – hefur hann aldrei orðið
þreyttur á að leika og langað til að
fara að gera eitthvað allt annað?
„Jú, jú, mér hefur oft dottið það í
hug. Og á tímabili fór ég í frí frá
leiklistinni, fór að smíða glugga
og svo aðeins á sjóinn. Var alveg
frá í átta mánuði og það var alveg
nóg til þess að kveikja neistann
aftur. En ég tek mér aftur pásu
ef hann hverfur. Meðan neistinn
lifir í manni er bara svo gaman að
þessu að maður vill ólmur leggja
sitt af mörkum.“
Ágætt að hvíla fólk
Á þessum tuttugu árum eru hlut-
verkin orðin ansi mörg og Hilmir
Snær viðurkennir að hann hafi
ekki tölu á hlutverkunum sem
hann hefur leikið. Hvernig hefur
hann sloppið við að festast í ein-
hverri ákveðinni tegund hlut-
verka? „Ég hef sem betur fer ekki
lent í því, þetta eru allt töluvert
ólík hlutverk, en ég hef samt held-
ur ekki fengið að leika einhverja
mjög óvanalega karaktera. Sum
hlutverkin eru kannski líkari en
önnur en svona heilt yfir hefur
þetta verið mjög fjölbreytt.“
Á tímabili var varla gerð bíó-
mynd á Íslandi án þess að Hilm-
ir Snær léki í henni, en hann segir
mikið hafa dregið úr því í seinni
tíð. „Ég er reyndar í Borgríki II
sem verður frumsýnd í október en
annars hef ég voða lítið verið í bíó-
myndum síðustu árin. Það er líka
bara ágætt að hvíla fólk á manni.
Ég varð stundum var við það í
gamla daga að fólki fannst ég vera
í of mörgum bíómyndum en eftir
þetta hlé fer kannski að koma tími
á það aftur.“
Í stað bíómyndaleiksins hefur
Hilmir Snær snúið sér æ meira
að leikstjórn, leikstýrði nú síð-
ast Pollock? og Spamalot í Þjóð-
leikhúsinu. Var það alltaf draum-
ur að leikstýra jafnframt því að
leika? „Nei, alls ekki, það æxlaðist
bara þannig. Ef ég á að vera alveg
heiðar legur þá hugsaði ég ekki um
sjálfan mig sem leikstjóra í fyrstu
sýningunum sem ég stýrði, ég
hugsaði alltaf um mig sem leikara.
Ég var búinn að setja upp fimm til
sex sýningar þegar ég fór að líta
á mig sem leikstjóra. Núna lít ég
eigin lega á mig sem jafn mikinn
leikstjóra og leikara og langar allt-
af að gera hvort tveggja. Það er
líka mjög lærdómsríkt fyrir mig
sem leikara að vera í leikstjór-
astólnum hinum megin við borðið.
Maður sér galla sína sem leikara
endurspeglast í öðrum og lærir
betur á sjálfan sig.“
Spurður hvort hann langi ekki
að leika aðalhlutverkið í leiksýn-
ingu sem hann leikstýrir sjálfur
skellir Hilmir Snær upp úr. „Nei,
ekki enn þá. Ég held að það sé
mjög erfitt að gera það almenni-
lega og ég held líka að menn sem
gera það séu algjörlega óþolandi.
Að leikstýra heilli leiksýningu út
frá sjálfum sér og raða öðrum leik-
urum sem statistum í kringum sig
held ég að kunni ekki góðri lukku
að stýra. Reyndar fann ég um dag-
inn í gömlum pappírum leikrit sem
ég hafði samið fyrir skólasýningu í
tólf ára bekk og þar var kyrfilega
tilgreint að höfundur, leikstjóri og
leikari væri Hilmir Snær Guðna-
son, þannig að það má kannski
segja að ég hafi tekið þann pakka
út fyrst.“
Hættur að nærast á athyglinni
Eins og þessi saga ber með sér
var Hilmir Snær ákveðinn í því
að verða leikari frá unga aldri
og segir annað eiginlega aldrei
hafa komið til greina. Spurður
hvort hluti af því vali hafi helg-
ast af fíkn í athygli, hummar hann
dálítið en viðurkennir svo að jú,
jú, auðvitað hafi það átt einhvern
þátt í starfsvalinu. Hann sé þó
löngu vaxinn upp úr því að nær-
ast á athygli. „Það er varla hægt
að tala um að fólk sé stjörnur á
Íslandi, fólk þekkir okkur kannski
betur en aðra og einstaka sinnum
hef ég verið beðinn um eiginhand-
aráritun en það er ekkert sem
hefur truflað mig. Á árum áður
gekkst maður kannski upp í því að
vera þekktur en núna er ég alveg
rólegur yfir því þótt ekki sé verið
að hylla mig endalaust og er ekk-
ert mikið að sækjast eftir því. Það
er smá frægðarfíkn í manni þegar
maður er ungur en það er ég ekki
lengur og stjórnast ekki af löngun
í athygli. Nú eru það miklu frekar
verkefnin, hversu krefjandi þau
eru og hverjir eru að vinna með
þér sem skiptir mann máli.“
Einn fylgifiskur frægðarinnar
eru kjaftasögur og Hilmir Snær
hefur ekki farið varhluta af þeim
á þessum tuttugu árum sem hann
hefur verið í sviðsljósinu. Hefur
það ekkert truflað hann? „Nei,
nei, ekki mikið. Þær eru nú sumar
verðskuldaðar þótt aðrar séu auð-
vitað úr lausu lofti gripnar. Og
ég geri mér líka grein fyrir því
að þegar maður er orðinn nokk-
urs konar „þjóðareign“ þá verður
bara að reikna með því að það sé
kjaftað um mann. Ef maður ætlar
ekki að lifa í einhverjum felum þá
er ekkert annað að gera en að taka
því bara. Þetta er eitthvað sem
maður þarf að lifa með og helst
að láta þroska sig. Svona þykist
ég nú vera orðinn fullorðinn og
þroskaður.“
Vaxinn upp úr frægðarfíkninni
Hilmir Snær Guðnason steig á svið í gærkvöldi í sinni síðustu frumsýningu í Þjóðleikhúsinu. Hann leikur John Proctor í
Eldrauninni eftir Arthur Miller, eitt af þremur aðalhlutverkum verksins. Í haust verður hann á sviði Borgarleikhússins, bæði
sem leikari og leikstjóri. Hann segist hættur að sækjast eftir athygli, nú séu það verkin og samstarfsfólkið sem máli skipti.
Eldraunin eftir Arthur Miller er eitt þekktasta leikrit tuttugustu
aldarinnar. Það var frumsýnt á Broadway árið 1953 og hlaut það ár
Tony-verðlaunin sem besta leikrit ársins.
Sögulegur bakgrunnur leikritsins er galdramálin í þorpinu Salem
í Massachussets árið 1692, en Miller skrifaði verkið með hliðsjón
af þeim ofsóknum sem fjöldi fólks í Bandaríkjunum mátti þola á
sjötta áratug síðustu aldar þegar fulltrúar yfirvalda lögðu ofurkapp
á að fletta ofan af starfsemi kommúnista í landinu.
Frumsýnt 25. apríl 2014 á Stóra sviði Þjóðleikhússins.
Eldraunin eftir Arthur Miller
ELDRAUNIN Hilmir Snær og Margrét Vilhjálms-
dóttir leika hjónin John og Elizabeth Proctor.
LIFAÐ MEÐ UMTALINU Þeir sem eru nokkurs konar þjóðareign verða að reikna með því að kjaftað sé um þá. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Aðalfundur Félags Rafeindavirkja verður haldinn
þriðjudaginn 29. apríl 2014 kl.17:30 á Stórhöfða 27,
gengið inn Grafarvogs megin.
Dagskrá:
• Joseph T. Foley aðstoðarprófessor við Háskólann í
Reykjavík kynnir Raspberry Pi örgjörva.
• Venjuleg aðalfundarstörf.
• Lagabreytingar.
• Kosning fulltrúa á ársfund Stafa lífeyrissjóðs.
• Önnur mál.
Reykjavík 8. apríl 2014
Stjórn Félags Rafeindavirkja
AÐALFUNDUR
Félags Rafeindavirkja