Fréttablaðið - 26.04.2014, Page 33
FERÐIR
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014
Kynningarblað
Börn á ferðalagi
Primera Air flýgur vikulega til Billund
Íslenskir straumar í New York
Hvaða staði á Íslandi er nauð-
synlegt að sýna börnum?
Helst þá staði sem gera landið
hvað sérstakast. Þar ber hæst þá
staðreynd að hinn eldvirki hluti
Íslands er talinn vera eitt af 40
mestu náttúruundrum ver aldar.
Samspil eldstöðva og jökla,
elds og íss, á sér engan samjöfn-
uð á jörðinni né eins fjölbreytileg
náttúrufyrirbæri sem hafa skap-
ast vegna eldvirkni og þessa sam-
spils. Í stórri handbók um helstu
undur veraldar stendur: „Ísland
er einstætt meðal landa heims“ (e.
„Iceland is a land like no other.“)
Þess vegna er nauðsynlegt að
sýna börnum fyrirbæri sem sanna
þetta.
Lítið dæmi eru Hraunfossar í
Borgarfirði en engir aðrir slíkir
fossar finnast á jörðinni svo kunn-
ugt sé. Fyrir austan Þingvelli eru
móbergshr yggir, Kálfst indar
og Tindaskagi, en það eru gíga-
raðir sem gaus úr undir jökli og er
hvergi hægt að sjá nema á Íslandi.
Skjaldbreiður er dyngja, og hvergi
í heiminum er jafn margar dyngj-
ur að sjá og á Íslandi. Brún Al-
mannagjár er austurbrún megin-
landsfleka Ameríku, en Þingvellir
og Þingvallavatn eru sigdæld, sem
varð til þegar þessi meginlands-
fleki færðist til vesturs, en Evrópu-
flekinn, sem byrjar raunar austur
undir Heklu, er á austurleið. Í milli
er svonefndur Hreppafleki sem er
nokkurs konar „hlutlaust“ land.
Dæmi um slíkt rek meginlanda
og sköpun nýrra landa er hvergi
að sjá á yfirborði jarðar nema á Ís-
landi.
Hvað fá börn út úr því að upp-
lifa áfangastaði úr kennslu-
bókunum af eigin raun?
Það er misjafnt hvað börn fá út
Ísland geymir undur veraldar
Ómar Ragnarsson, fréttamaður og skemmtikraftur, ann íslenskri náttúru. Hann tók börn sín ung með í vinnuferðir um landið og
er nú þakklátur fyrir að koma Láru dóttur sinni að gagni í Ferðastiklum. Ómar segir mikilvægt að kynna börnum land sitt og þjóð.
Ómar Ragnarsson hefur ferðast víða og
oft hafa börn og barnabörn komið með.
NORDICPHOTOS/GETTY