Fréttablaðið - 26.04.2014, Page 73

Fréttablaðið - 26.04.2014, Page 73
LAUGARDAGUR 26. apríl 2014 | TÍMAMÓT | 41 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Þökkum samúð og hlýhug vegna fráfalls elskulegrar konu minnar, mömmu, tengdamömmu, ömmu og langömmu okkar, UNNAR JÓNU JÓNSDÓTTUR. Björn Guðmundsson Margrét Björnsdóttir Einar Hákonarson Sigrún Björnsdóttir Guðrún Björnsdóttir Sigurður Ág. Sigurðsson Jón Axel Björnsson Karen Sigurkarlsdóttir Björn J. Björnsson Vilhelmína Einarsdóttir Unnur Ýr Björnsdóttir Magnús Bogason ömmu- og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELSABET JÓNSDÓTTIR Eskifirði, andaðist fimmtudaginn 24. apríl. Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju föstudaginn 2. maí kl. 14. Jóhanna Kristín Friðgeirsdóttir Ómar Jónsson Steinn Friðgeirsson Liselotte Widing Helga Friðgeirsdóttir Ásmundur Þórisson Drífa Friðgeirsdóttir Einar Jónsson Kristgeir Friðgeirsson Birna Kjartansdóttir Inga Jóna Friðgeirsdóttir Óskar B. Hauksson Brynja Rut Sigurðardóttir Páll Ragnar Þórisson barnabörn og langömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR Vallarbraut 1, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 20. apríl. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 2. maí kl. 13.00. Haraldur Haraldsson Sigrún Haraldsdóttir Páll Elfar Pálsson Þórunn Björg Haraldsdóttir Ingólfur, Haraldur og Jóhannes Páll Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELENA HÁLFDANARDÓTTIR sjúkraliði, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 22. apríl. Útförin verður gerð frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 2. maí kl. 13.00. Baldur Rafnsson Elinóra Kristín Guðjónsdóttir Guðbjörg Linda Rafnsdóttir Stefán Jónann Stefánsson Brynhildur Björk Rafnsdóttir Sigursteinn Magnússon Arnheiður Edda Rafnsdóttir Erling Erlingsson Innilegar þakkir til allra sem sýndu fjölskyldunni samhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SÓLVEIGAR ÁRNADÓTTUR Borgarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar fyrir hlýju og umhyggju. Eggert Margeir Þórðarson Júlíanna Júlíusdóttir Theódór Kristinn Þórðarson María Erla Geirsdóttir Guðrún Þórðardóttir Gylfi Björnsson ömmu- og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI SIGURJÓN SIGURÐSSON hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, áður Smáraflöt 15, Akranesi, andaðist í faðmi fjölskyldu sinnar þriðjudaginn 23. apríl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi. Útförin verður auglýst síðar. Þráinn Elías Gíslason María S. Sigurðardóttir Gunnar Valur Gíslason Hervör Poulsen Jón Bjarni Gíslason María Kristinsdóttir Sigurlaug Gísladóttir Guðmundur Gíslason Guðrún Sigríður Gísladóttir Guðmundur S. Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar INGVELDAR GÍSLADÓTTUR frá Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til Ásgerðar Sverrisdóttur læknis, heimaþjónustu Karitasar og starfsfólks líknar- og krabbameinsdeildar Landspítalans. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Eyjólfur Pétursson Okkar ástkæri GUÐMUNDUR JÓHANN ARASON Langholtsvegi 177, sem lést á heimili sínu miðvikudaginn 9. apríl, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn 29. apríl kl. 13. Vala Sigríður Guðmundsdóttir Yates Rögnvaldur Guðmundsson Ari Hlynur Guðmundsson Anna Hólmfríður Yates Jón Guðni Arason Aðalgeir Arason Margrét Þorbjörg Þorsteinsdóttir Einar Sigurbergur Arason Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTHILDAR TORFADÓTTUR Hvassaleiti 56, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 28. apríl klukkan 13. Hallgerður Arnórsdóttir Helgi Gíslason Björk Inga Arnórsdóttir barnabörn og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG WOODS Kirkjuvegi 41, Keflavík, er látin. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 29. apríl kl. 13.00. Ester Wallace Willie Wallace Guðrún Howard Roger Howard Irene Stephenson Randy Stephenson Carol Smith Michael Smith Christine Jóna Woods Michael Woods Kathryn Woods Brian Woods Yung Chong Joanne Keller Kip Keller barnabörn og barnabarnabörn. „Við fengum flott skjal, þetta er mik- ill heiður,“ segir Sigurlín Sveinbjarn- ardóttir, skólastjóri Hvolsskóla, um viðurkenninguna Varðliðar umhverf- isins sem skólinn fékk fyrir verkefnið Jökulmælingar. Hún tók við þeim í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu fyrir skólans hönd, ásamt Jóni Stef- ánssyni kennara og fulltrúum úr þeim árgöngum sem hafa tekið þátt í verk- efninu síðustu ár. Undanfarin haust hefur 7. bekkur Hvolsskóla farið að Sólheimajökli og mælt hversu mikið hann hafi hopað á árinu og fyrsti árgangurinn sem tók þátt í því verkefni er að ljúka 10. bekk í vor. Frá fyrstu mælingu að þeirri næstu hopaði jökullinn um 43 metra, það næsta um 39 metra en síðastliðið haust hafði hann einungis hopað um 8 metra. „Það var mikil ævintýraferð farin síðasta haust því erfitt var að kom- ast að GPS-punktinum sem þurfti að mæla,“ segir Sigurlín og heldur áfram. „Stórt lón hafði myndast fyrir fram- an jökulsporðinn svo það þurfti að fá björgunarsveitina Dagrenningu til aðstoðar. Hluti hópsins fór í bát en sumir krakkarnir vildu frekar labba og fengu þá viðeigandi búnað til að ganga yfir jökul. Þetta var mjög spennandi.“ Hvolsskóli er eini skólinn á landinu sem hefur tvívegis fengið viðurkenn- inguna Varðliðar umhverfisins því hann hlaut þau líka árið 2010. Stend- ur hann sig svona vel í umhverfismál- um? „Já, skólinn okkar hefur verið með grænfána frá árinu 2008 og er að gera ýmsa góða hluti í þessum efnum. Á þessu svæði eru einstakar náttúru- perlur og fallegir staðir. Það er mikill hvati fyrir okkur því auðvelt er að fyll- ast áhuga á að fara vel með landið og vernda það. Sjálf er Sigurlín uppalin á Torfastöð- um í Fljótshlíð og býr enn í hinni fögru hlíð. Innt í lokin eftir því hversu lengi hún hafi verið skólastjóri Hvolsskóla svarar hún: „Ég hef sinnt því starfi frá árinu 2009 og hef mikinn áhuga á umhverfismálum en kennararnir og krakkarnir eru samt í aðalhlutverki. Ég bara reyni að hvetja þau og styrkja og sjá til þess að fjármálin séu í lagi og ramminn í kringum verkefnin.“ gun@frettabladid.is Varðliðar umhverfi sins fyrir jökulmælingar Hvolsskóli á Hvolsvelli hlaut í gær viðurkenninguna Varðliðar umhverfi sins fyrir jökul- mælingar sínar. Umhverfi s- og auðlindaráðuneytið veitir verðlaunin árlega. VIÐ MÆLINGAR Hluti af 7. bekk Hvolsskóla skólaárið 2013 til 2014 við skyldu- störf nærri Sól- heimajökli, ásamt kennara sínum Jóni Stefánssyni sem jafnframt er verkefnisstjóri Grænfánans við skólann. MYND/ÚR EINKASAFNI ➜ Um samkeppnina Verkefnasamkeppnin Varðliðar um- hverfisins er haldin á meðal grunn- skólabarna í 5. til 10. bekk. Hún var haldin í fyrsta skipti vorið 2007. Það eru umhverfis- og auðlindaráðu- neytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur sem standa að henni. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfis- vernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Nemendum er frjálst að skila inn verkefnum á hvaða formi sem er svo lengi sem þau eru sannarlega unnin af nemendunum sjálfum og um- fjöllunarefni þeirra eru umhverfismál í víðum skilningi þess orðs.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.