Fréttablaðið - 26.04.2014, Side 84
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 52
BAKÞANKAR
Fanneyjar Birnu
Jónsdóttur
Time Magazine gaf út á fimmtudag-
inn í ellefta sinn árlegan lista yfir
hundrað áhrifamestu einstakling-
ana. Listinn samanstendur aðallega
af listamönnum, sem skipa flest
sæti listans, stjórnmálamönnum og
viðskiptajöfrum.
Tónlistarkonan Beyoncé prýðir
forsíðu blaðsins, en í þetta sinn er
41 kona á listanum, fleiri en nokkru
sinni áður. Meðal kvenna á listan-
um eru Megyn Kelly, fréttakona á
Fox News, Hillary Clinton og Miley
Cyrus. Yngst á listanum er aðgerða-
sinninn Malala Yousafzai, sem er
sextán ára gömul, en elstur er við-
skiptajöfurinn Carl Icahn, 78 ára.
Þá er njósnarinn Edward Snowden
einnig á listanum, tónlistarmað-
urinn Pharrell, forseti Rússlands,
Vladímír Pútín, og körfuboltakapp-
inn Jason Collins, en hann komst í
heimspressuna á árinu þegar hann
kom út úr skápnum. - ósk
100 áhrifamestu í Time Magazine
Time Magazine gefur út listann í 11. sinn, en konur hafa aldrei verið fl eiri en í ár.
FORSÍÐAN
Beyoncé
prýðir
forsíðuna að
þessu sinni.
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
RIO 2 2D ÍSL. TAL
RIO 2 3DÍ SL. TAL
OCULUS
ÝHARR OG HEIMIR
GRAND BUDAPEST HOTEL
KL. 3 - 6 - 9 - 10
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30
KL. 8
KL. 3.45 - 6 - 8 - 10.20
KL. 5.45 - 8 - 10.15
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3DLÚXUS
THE AMAZING SPIDERMAN 2 2D
RIO 2 2DÍSL. TAL
RIO 2 3DÍSL. TAL
OCULUS
ÝHARR OG HEIMIR
KL. 2 - 5 - 8 - 10.50
KL. 2 - 5 - 8 - 10.50
KL. 2 - 5 - 8 - 10.50
KL. 1 - 3.30 - 5.45
KL. 1 - 3.30
KL. 8 - 10.20
KL. 6 - 8 - 10 Miðasala á:
EINVÍGIÐ Í AMAZON
-H.S., MBL
-B.O., DV
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
L.K.G - FBL.
EMPIRE ENTERTAINMENT WEEKLYTOTAL FILM
CHICAGO SUN-TIMES ENTERTAINMENT WEEKLY PORTLAND OREGONIAN
TOTAL FILM EMPIRE
Allir borga barnaverð
SPIDERMAN 2 3D 2, 5, 8, 10, 10:50 P 2, 5, 8, 10, 10:50 P
A HAUNTED HOUSE 2 8, 11 8, 11
RIO 2 2D 2, 5 2, 5
LAU HARRY OG HEIMIR 2, 4, 7, 9 2, 4, 9
Tilboð í bíó. Gildir á allar með rauðu.
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
Tímaritið Time hefur gefið út sinn árlega lista yfir 100 áhrifamestu ein-
staklinga heims. Svona listar eru gefnir
út um hitt og þetta, þá auðugustu, áhrifa-
mestu, fallegustu og svo mætti lengi telja.
Íslendingar hafa ekki farið varhluta af
þessum sið – síðasta tölublað af Séð og
heyrt inniheldur einmitt þann forláta lista
„Topp tíu – lagleg á lausu“.
ÖFUGT við íslenska afbrigðið þá er
listi Time þetta árið nokkuð áhuga-
verður. Ber þar fyrst að nefna að
41 kona er á listanum og hafa þær
aldrei verið fleiri. Það sem vekur
ekki síður athygli er að á listanum
eru hvorki meira né minna en 27
listamenn. Ekkert annað svið eða
atvinnugrein nær jafn mörgum
á listann. Viðskiptajöfrar eru
aðeins átján en næst lista-
mönnunum komast stjórn-
málamenn, sem eru 26. Þar
á meðal eru Vladimir Pútín,
Hillary Clinton, Angela
Merkel og Kim Jong-un.
ÞAÐ hlýtur að segja sína
sögu að áhrifamesti einstaki
hópur heims sé listamenn. En
það ætti kannski ekkert að koma á óvart.
Góð list er spegill á samfélagið – gagnrýn-
in, óvægin og beitt. Og samfélagið okkar
getur vissulega verið íhaldssamt, fordóma-
fullt og ljótt í garð ýmissa hópa eða hug-
mynda – oft án þess að við gerum okkur
grein fyrir því. Þá er spegill nauðsynlegur.
Okkur líkar kannski ekki alltaf það sem
við sjáum, enda stundum erfitt að sjá og
viðurkenna eigin breyskleika. Það breytir
því ekki að fyrsta skrefið í átt að jákvæð-
um breytingum er alltaf að horfast í augu
við vandamálin.
ÞAÐ er áhugavert að á sama tíma og listi
Time birtist snúist umræðan hér heima
nánast eingöngu um réttmæti listamanna-
launa. Í stað þess að fjalla um þau jákvæðu
og gagnrýnu áhrif sem listin hefur í okkar
litla samfélagi þá er einblínt á meint
sníkjulíferni listamanna. Það er erfitt að
lýsa þessu öðruvísi en sem fullkomnu nið-
urrifi. Með þessu er samfélagið að draga
úr kröftum listamanna til að sinna þeirri
frumskyldu sinni að veita okkur hinum
aðhald og gagnrýni. Kannski vegna þess
að við þolum ekki það sem við sjáum í
speglinum. Þetta er sorglegt. Í dag þurfum
við einmitt færri „topp tíu – liðug á lausu“
lista en fleiri spegla. Miklu fleiri spegla.
Fleiri spegla takk