Fréttablaðið - 03.05.2014, Page 32

Fréttablaðið - 03.05.2014, Page 32
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Ísafjarðarbær er stærsta sveitar- félagið á Vestfjörðum. Íbúar í árs- byrjun voru 3.639 og hefur þeim fækkað á kjörtímabilinu um 260 íbúa eða um 7 prósentustig. Vest- firðir hafa í gegnum tíðina búið við viðvarandi fólksfækkun og ekkert sem gefur til kynna að þessi þróun sé að snúast við. Fyrir stuttu bárust fréttir þess efnis að útgerðarfyrirtækið Vísir, sem staðsett var með vinnslu á Þingeyri, ætlaði að hætta störfum í plássinu og flytja alla starfsemi sína til Grindavíkur. Starfsmenn Vísis á Þingeyri eru 50 talsins sam- kvæmt heimasíðu fyrirtækisins. Atvinnuástandið í Ísafjarðarbæ er brothætt að mati oddvita allra þeirra framboða sem hafa tilkynnt framboð til sveitarstjórna. Það sé eitt af meginverkefnum nýrrar bæjarstjórnar að styrkja stoðir atvinnulífs á svæðinu og auka fjöl- breytni í atvinnu. Með því sé hægt að stemma stigu við fólksfækkun á svæðinu. Meirihlutinn fallinn Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er fall- inn samkvæmt könnun Frétta- blaðsins. Núverandi meirihluta- flokkar fá fjóra menn kjörna til sveitarstjórnar. Flokkarnir eru samanlagt með 46,6 prósent fylgi. Í síðustu kosningum fengu sjálf- stæðismenn fjóra bæjarfulltrúa en fá þrjá núna. Í-listinn, sem er einn í minnihluta, fær einnig þrjá menn kjörna. Framsóknarflokkur- inn heldur sínum manni í bæjar- stjórn. Björt framtíð mælist með 18,5 prósenta fylgi og tvo menn kjörna. Þeir taka því einn mann af Í-lista og Sjálfstæðisflokki. Þreifingar hafa átt sér stað innan BF um að mynda lista en ekki tekist. „Ég tel það hæpið, eins og staðan er núna, að Björt framtíð bjóði fram lista til sveitarstjórnar á Ísafirði,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Bjartrar framtíðar. Ef Björt framtíð býður ekki fram lista til sveitarstjórnar er ljóst að mikið rými myndast fyrir hina flokkana þrjá að ná fylgi þeirra til sín. Þessi könnun sýnir svo ekki verður um villst að það er pláss fyrir Bjarta framtíð í hinu pólitíska landslagi Ísafjarðarbæj- ar. Nýr bæjarstjóri eftir kosningar Daníel Jakobsson er oddviti Sjálf- stæðisflokksins í komandi kosn- ingabaráttu. Hann er núverandi bæjarstjóri en ætlar sér að hætta sem bæjarstjóri að loknum kosning- um. Hann er því ekki lengur bæjar- stjóraefni flokksins. „Ég er kominn með aðra vinnu. Það hefur legið fyrir í um eitt ár að ég vil losna. Ég mun hefja störf hjá fjölskyldufyrirtækinu, sem er hótelið á Ísafirði. Mínir hæfileik- ar snúa kannski að umbreytingar- verkefnum og ég tel hafa gengið vel og að tími sé til kominn að nýr aðili taki við keflinu á þessum tímamót- um,“ segir Daníel. Daníel telur að staða sveitar- félagsins sé afar sterk og að bæj- arsjóði sé skilað í mun betra ásig- komulegi en í upphafi kjörtímabils. „Það sem mér finnst hafa verið stóra málið er að hafa náð tökum á rekstri bæjarins. 2012 og 2013 eru metár í rekstri bæjarins og það hefur gengið gríðarlega vel að lækka skuldir. Á sama tíma höfum við náð að lækka gjaldskrár, við vorum með hæstu leikskólagjöldin af 15 stærstu sveitarfélögunum árið 2010. Við höfum ekki hækkað leik- skólagjöld á kjörtímabilinu.“ Daníel telur að samstarfið við minnihluta hafi verið farsælt. „Samstaða allra bæjarfulltrúa hvað þetta varðar hefur skipt miklu máli. Það er mikilvægt að ná víð- tækri samstöðu um þau erfiðu verk- efni sem þurfti að fara í á kjörtíma- bilinu.“ Að mati Daníels er fólksfækkun- in í sveitarfélaginu mikilvægt mál- efni sem þarf að vinna að. Það sé Meirihluti fallinn í Ísafjarðarbæ Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er fallinn samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Björt framtíð mælist með tvo menn kjörna en hæpið er talið að flokkurinn bjóði fram. Atvinnumál munu vega þungt eftir að Vísir ákvað að loka á Þingeyri. 1. sæti Daníel Jakobsson, Ísafirði 2. sæti Jónas Þór Birgisson, Hnífsdal 3. sæti Kristín Hálfdánsdóttir, Ísafirði 4. sæti Martha Kristín Pálmadóttir, Ísafirði 1. sæti Marzellíus Sveinbjörnsson, Ísafirði. 2. sæti Helga Dóra Kristjánsdóttir, Önundarfirði. 3. sæti Sólveig Sigríður Guðnadóttir, Ísafirði. 4. sæti Gísli Jón Kristjánsson, Ísafirði. 1. sæti Arna Lára Jónsdóttir, Ísafirði 2. sæti Kristján Andri Guðjónsson, Ísafirði 3. sæti Nanný Arna Guðmundsdóttir, Ísafirði 4. sæti Sigurður Hreinsson, Ísafirði D Sjálfstæðisflokkurinn B Framsóknarflokkurinn Í Í-listinn Ísafjörður Bolungarvík Súðavík Flateyri Þingeyri Suðureyri Aðferðafræðin Hringt var í 764 manns þar til náðist í 600 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 30. apríl. Svarhlutfallið var 79 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Það er gert í samræmi við aðferðafræði sem þróuð var hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Alls tóku 56,5 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. FRAMBOÐSLISTAR Á ÍSAFIRÐI SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR ÍSAFJÖRÐUR Sveinn Arnarsson sveinn@frettabladid.is Fjöldi bæjarfulltrúa 29,6% 17,0% 3,8% 14,3% 42,2% 39,8% 6,8% 18,5% 28,1% Frjálsir með Framsókn Sjálfstæðisflokkurinn Í-listinn Björt framtíð Annað ÁRIÐ 2010 3.899 bjuggu í Ísafjarðarbæ ÁRIÐ 2014 3.639 bjuggu í Ísafjarðarbæ ÁRIÐ 2011 300 milljóna króna halli ÁRIÐ 2013 302 milljóna króna afgangur FYLGI FLOKKANNA Björt framtíð áformaði að bjóða fram á Ísafirði, en ólíklegt er talið að flokkurinn nái að bjóða fram. hin eilífa barátta og mikið áhyggju- efni. „Það sem við höfum í höndun- um er þá á móti að hafa samkeppn- ishæfa gjaldskrá, fallegan bæ og öflugt atvinnulíf. Atvinnuástand- ið er þannig að það er nóg að gera og skortur á fólki. Auðvitað er tak- markaður fjöldi í ákveðnum grein- um, en ef þú vilt vinnu hérna þá færðu vinnu, það er bara þannig, og það vantar fasteignir á Ísafirði.“ Atvinnu- og fræðslumál á oddinn Arna Lára Jónsdóttir er oddviti Í-list ans. Að framboðinu standa einstaklingar sem vilja vinna að hag og velferð íbúanna. Hún telur fræðslu- og atvinnumál verða ofar- lega í huga kjósenda í kosningun- um í maí. „Fræðslu- og atvinnumál verða stóru málin sem og að halda rekstri bæjarins í jafnvægi. Við höfum loksins náð tökum á rekstrinum eftir ansi erfið ár. Það hefur gerst í góðu samstarfi allra flokka í bæj- arstjórn. Því erum við ekki tilbúin að fórna jafnvæginu, að lofa ein- hverjum stórframkvæmdum sem við getum ekki staðið við,“ segi Arna Lára. „Við höfum að sama skapi verið að skera mikið niður í skólunum síðustu árin og við þurfum að for- gangsraða núna í þágu barnanna okkar. Hlúa þannig að skólunum, bæði leik- og grunnskólum, og menntun barna.“ Arna Lára telur einnig að breyt- ingar í atvinnumálum Ísafjarðar- bæjar verði mikið ræddar. „Atvinnuástandið er mjög við- kvæmt, sérstaklega í ljósi stöð- unnar núna þegar Vísir er að loka á Þingeyri. Það hefur alltaf verið þannig að þegar verið er að búa til atvinnutækifæri, þá kemur eitthvað utanaðkomandi aftan að okkur og fækkar störfum. Við erum of háð einni atvinnugrein, við verðum að auka fjölbreytni og þétta grunninn svo við séum ekki svona viðkvæm gagnvart utanaðkomandi þáttum.“ Staðan á Þingeyri Marzellíus Sveinbjörnsson er nýr oddviti Framsóknarflokks- ins í komandi kosningum. Hann telur, líkt og hinir oddvitarnir, að atvinnumál muni vega þungt í komandi kosningabaráttu. „Atvinnumálin og staðan á Þing- eyri munu verða mikið rædd. Það fyrsta sem við þurfum að gera er að leita til alþingismanna og ráða- manna þjóðarinnar og athuga hvernig þeir geti komið að mál- inu með okkur.“ segir Marzellíus. Þegar hann er spurður út í svör forsætisráðherra varðandi málefni Vísis í þinginu í vikunni vill hann fá frekari svör og aðgerðir frá for- sætisráðherra. Marzellíus telur að fólksfækk- un og atvinnumál verði rædd saman í komandi kosningabar- áttu. „Atvinnumál og byggðaþró- un eru samþætt, auka fjölbreytni og atvinnutækifæri og reyna að fjölga íbúum. Við verðum að skapa ungu fólki tækifæri á að koma til Ísafjarðar. Við þurfum að auka fjölbreytni starfa. Bæjarfélagið er gott og það er gott að ala upp börn á Vestfjörðum en við þurfum að auka tækifæri þeirra til að starfa hér.“ Fræðslumálin verða einnig stórt mál, að mati Marzellíusar. Í Ísafjarðarbæ þarf að skapa góð tækifæri til tómstunda, efla tóm- stundalífið. Skapa betri aðstæður fyrir íþróttaiðkun í bæjarfélaginu. „Okkur vantar til dæmis fjölnota íþróttahús. Ég vil skoða hvort það sé möguleiki á að byggja slíkt hús á kjörtímabilinu. Ég vil ekki lofa að það verði byggt en við þurfum að skoða þessi mál gaumgæfilega,“ segir Marzellíus. „Síðustu fjögur ár hafa gengið afskaplega vel, eftir að hafa tekið á fjárhagsstöðu bæjarfélagsins. Upp- bygging er hafin á mörgum svið- um mannlífs hérna. Til að mynda hættum við sorpbrennslu og fórum í urðun og náðum samningum við ríkið vegna sjúkraflutninga.“ Um áframhaldandi samstarf við Sjálfstæðisflokkinn segir Marz- ellíus að allir gangi óbundnir til kosninga. „Samstarfið hefur geng- ið vel en við þurfum bara að setj- ast niður eftir kosningar og skoða málin. Við teljum okkur reiðubúna að ræða við hvern þann sem setur sveitarfélagið í fyrsta sæti.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.