Fréttablaðið - 03.05.2014, Síða 36
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson
heldur áfram
að rekja sögu
Herúla og
þeirrar
kenningar
að þessi
dularfulla
þjóð hafi
endað
hér uppi
á Íslandi.
Aldrei þessu vant er þessi flækjusaga framhald af greininni frá því fyrir viku. Þá hóf ég að segja frá Herúlakenningunni en hana setti Barði Guð-
mundsson, sagnfræðingur og þjóð-
skjalavörður, fram um og upp úr
miðri síðustu öld. Kenningin gekk
í örstuttu máli út á að þegar Ísland
var numið af norrænum mönnum á
ofanverðri níundu öld, þá hafi ekki
verið á ferð tilfallandi búandkarlar
og uppflosnaðir víkingahöfðingjar
frá Noregi endilöngum, heldur hafi
verið um að ræða sérstaka þjóð sem
tók sig upp og fluttist í heilu lagi
hingað út. Barði nefndi ýmislegt til
sönnunar kenningu sinni, ekki síst
að landnámsmenn hefðu smíðað
sér samfélag sem var að ýmsu leyti
furðu ólíkt samfélagi þeirra Norð-
manna sem eftir urðu. Nefnum bara
menninguna: Af hverju varðveitt-
ist ævaforn norrænn bókmennta- og
söguarfur á Íslandi en ekki Noregi?
Af hverju héldu Íslendingar áfram
að þróa þann bókmenntaarf og end-
aði með bæði Heimskringlu og svo
hinum einstöku Íslendingasögum,
en í Noregi var ekkert nýtt skrifað
svo öldum skipti?
Og þar var komið sögunni að
Barði hafði fundið þjóðina sem hann
taldi að hefði búið í þessum vestur-
fjörðum Noregs á níundu öld en
þá ákveðið af einhverjum dular-
fullum ástæðum að skárra væri að
byggja útsker þetta en hina frjó-
sömu norsku firði. Það voru Her-
úlar, lítil en herská germönsk þjóð
sem þvældist um Evrópu með sverð
á lofti frá þriðju öld og örlítið fram
á þá sjöttu, þegar hún hverfur úr
sögunni. Þá höfðu Herúlar fyrst
farið ránshendi um frægar borg-
ir eins og Aþenu og um leið lagt í
rúst hof Díönu í Efesus, sem var
eitt af sjö undrum fornaldar, síðan
verið í slagtogi með hinum alræmdu
Húnum um langt skeið og loks stofn-
að sitt eigið ríki í Mið-Evrópu sem
skrimti þó ekki nema fáeina áratugi.
Saga Herúla púsluð saman
Fljótlega eftir að Herúlakóngur-
inn Ródolfó féll fyrir Langbörðum
hurfu Herúlar úr evrópskum heim-
ildum eins og jörðin hefði gleypt þá.
Þá var komið fram á sjöttu öld og nú
tóku við verstu flúðirnar sem Barði
Guðmundsson þurfti að vaða með
Herúlakenningu sína. Gat það sem
sé átt sér að einhver hópur Herúla
hefði haldið aftur alla leið til Norð-
urlanda, sest að í Noregi og haldið
þar þjóðarvitund sinni (og varð-
veitt sinn einstaka frumgermanska
menningararf) í hátt í fjórar aldir
og svo rokið út til Íslands seint á
níundu öld?
Og nú fór að vandast málið. Saga
Herúla, eins og hún var púsluð
saman á 19. og 20. öld, er að vísu
ögn flóknari en ég hef hingað til
gefið í skyn. Í fyrsta lagi eru til
heimildir um „Herúla“ sem hafa
flust til Niðurlanda (nú Hollands og
Belgíu) þegar meginhluti þeirra á að
hafa farið í austurveg til Póllands.
Og nokkrum öldum seinna spyrst til
þessa hóps að herja suður á Spáni
eftir að hafa siglt á herskipum frá
Niðurlöndum. Ekki verður betur
séð en þar hafi eins konar frum-vík-
ingar verið á ferð. Það er reyndar
stuðningsmönnum Herúlakenn-
ingarinnar til gleði að oftar en einu
sinni er minnst á dugnað Herúla við
siglingar, þeir komu sér til dæmis
upp flota í Svartahafi og Eyjahafi
þegar þeir voru að herja þar með
Gotum á ofanverðri þriðju öld. Gæti
fortíð Herúla við siglingar, spyrja
menn, ekki bent til þess að þeir
hafi ekkert látið sér vaxa í augum
að leggja út á Atlantshaf um 870 er
þeir ákváðu skyndilega að setjast
að á hinni nýju eyju sem þar hafði
fundist úti í hafi?
Agalausir villimenn
Og þá eru líka til heimildir sem
benda til þess að meðan Herúl-
ar voru á þvælingi sínum langt
suður í Evrópu, þá hafi þeir haldið
tengslum við frændur sína í norðri.
Latneski sagnaritarinn Procopius
greindi frá því: „Herúlarnir sýndu
nú sitt villimannlega og ofsafengna
eðli gagnvart sínum eigin konungi
sem nefndist Ochus. Fyrirvara-
laust drápu þeir hann, án nokkurrar
annarrar ástæðu en að þeir óskuðu
að vera framvegis konungslausir.
Hafa ber í huga að þó að konungur
Herúla hefði konungs nafnbót hafði
hann í reynd nákvæmlega engin for-
réttindi fram yfir aðra þegna. Allir
nutu þess réttar að sitja að snæð-
ingi með honum og atyrða hann ef
þeim svo sýndist, því engir menn
í veröldinni eru síður bundnir sið-
venjum eða agalausari en Herúlar.
Þegar illvirkið hafði verið framið
urðu þeir strax fullir iðrunar. Þeir
áttuðu sig á því að án foringja og
herstjórnanda gætu þeir ekki verið.
Þess vegna varð niðurstaða þeirra
sú, eftir ítarlegar umræður, að best
væri að kalla til konungdóms einn
úr konungsfjölskyldu þeirra frá
Thule [Norðurlöndunum].“
Síðan segir Procopius frá komu
nýs konungs að norðan. Í Svíþjóð
VILJUM VIÐ VERA HERÚLAR?
1 Herúlar búsettir í Danmörku eða Suður-Sví-
þjóð á fyrstu öld e.Kr. Þaðan hröktust þeir
undan Dönum. Einhver hluti Herúla varð þó
eftir í Svíþjóð.
2 Hluti Herúla sest að í Niðurlöndum.
Nokkrum öldum síðar eru þeir sagðir hafa
farið siglandi í ránsferðir allt til Spánar.
3 Flestir Herúlar setjast að í Póllandi og slást í
för með Gotum.
4 Gotar og Herúlar fara í herleiðangur á
Balkanskaga. Þeir koma sér meðal annars
upp flota og ræna árið 267 Aþenu, Spörtu
og borgina Býsans sem nokkrum áratugum
síðar verður ný höfuðborg Konstantíns
mikla. Tveimur árum síðar sigrar Kládíus
keisari II Herúla og Gota við Niš í Suður-
Serbíu.
5 Eftir að hafa hrökklast af Balkanskaga flytjast
Herúlar og Gotar til Úkraínu þar sem Húnar
leggja undir sig ríki þeirra um 370. Næstu
áratugi fylgja Herúlar Húnum, meðal annars
í herferð til Frakklands þar sem Atli Húna-
kóngur tapar mikilvægri orrustu við Chalons
451.
6 Eftir lát Atla 453 gera germanskar þjóðir upp-
reisn gegn Húnum. Herúlar mynda ríki í Mið-
Evrópu en síðasti konungur þeirra, Ródolfó,
tapar fyrir Langbörðum, nýrri germanskri
uppgangsþjóð, um 508. Hluti Herúla fylgir
síðan Langbörðum suður á Ítalíuskaga 568
þar sem þeir hrekja Austur-Gota frá ríkjum.
Annar hluti sest að við Belgrad í Serbíu en
hverfur brátt í þjóðahafið. Enn annar hluti
Herúla gengur í þjónustu austurrómverska
keisarans í Konstantínópel og sinnir þar her-
mennsku næstu áratugi.
7 Allan tímann sem Herúlar voru suður í álfu
misstu þeir aldrei alveg tengslin við frændur
sína á Norðurlöndum. Hluti þjóðarinnar
heldur nú aftur á heimaslóðir og gerist þar
konungsætt Ynglinga. Segir kenningin!
8 Herúlar flytjast til vesturfjarðanna í Noregi.
9 Á 8. öld e.Kr. taka Herúlar sig upp og flytjast
til Íslands, þar sem þeir verða hryggjarstykkið
í landnáminu.
FERÐIR HERÚLA
samkvæmt heimildum og hugmyndum
Herúl-
arnir sýndu
nú sitt villi-
mannlega og
ofsafengna
eðli gagnvart
sínum eigin
konungi sem
nefndist
Ochus. Fyrir-
varalaust
drápu þeir
hann, án
nokkurrar
annarrar
ástæðu en að
þeir óskuðu
að vera
framvegis kon-
ungslausir.
eru til kenningar um að þangað
hafi Herúlar hrökklast eftir að hafa
misst lönd sín í Mið-Evrópu og síð-
ast í kringum Belgrad, og orðið hafi
fagnaðarfundir með þeim og hinum
Herúlunum sem orðið höfðu eftir
á fornum slóðum sænskum. Herúl-
arnir hafi síðan orðið að yfirstétt
í landinu og frá þeim sé komin sú
konungsætt sem lengi á að hafa ríkt
yfir Svíþjóð og kallast hafi Yngling-
ar. Sú kenning er studd vitnisburði
ekki minni manns en Snorra Sturlu-
sonar, því í Heimskringlu hans er
rakin för forfeðra Ynglinga sunn-
an úr álfu og norður til Svíþjóðar.
Og viti menn, það var einmitt eitt
einkenni Ynglinga, hve snöggir þeir
voru stundum að aflífa kónga sína
ef þeir stóðu sig ekki í stykkinu, rétt
eins og Procopius segir um Herúla.
Hér ber svo einnig í framhjá-
hlaupi að geta þess að svipað ferða-
lag sunnan úr álfu rekur Snorri
Sturluson líka í blábyrjun Eddu
sinnar, þar sem upphaf hinna fornu
Ása er rakið suður á Balkanskaga –
en sumir djarflegir túlkendur sög-
unnar vilja halda lengra og finna
þeim stað í Aserbaídsjan, og erum
við þá komin á slóðir Thors Heyer-
dahls og hinna „alternatífu“ kenn-
inga hans um hvaðeina í sögunni.
Þar hafa Herúlar blandast inn í,
og til að sannreyna það ættu fróð-
leiksfúsir að fara á YouTube og slá
inn nafni Freysteins Sigurðssonar.
Hann hefur útbúið snotra fyrir-
lestra um Herúlakenninguna og
rakið hana allt aftur til Heyerdahls
og Ása. En þá er og skylt að geta
þess að flestöllum fræðimönnum
munu þykja vísindi eins og þau sem
Freysteinn boðar eiga meira skylt
við dulræn fræði en mannkynssögu.
Hagmæltir og duglegir
Eins og sjá má á ramma þeim sem
hér fylgir á síðunni, þá er svo loka-
stig Herúlakenningarinnar að frá
Svíþjóð hafi Herúlar flust til Noregs
og hingað út. Því miður fyrir stuðn-
ingsmenn kenningarinnar verður
að viðurkenna að fátt eða ekkert af
nýlegum rannsóknum styður kenn-
ingu Barða og sporgöngumanna
hans, en margt mælir í mót henni.
Nýlegar fornleifarannsóknir benda
til að landnámið hafi tekið lengri
tíma en áður var talið og því hafi
ekki verið um að ræða hina snöggu
landflutninga sem Barði taldi sig
þurfa að skýra, og DNA-rannsókn-
ir benda ekki til þess að sá hluti
landnámsmanna sem kom frá Nor-
egi hafi verið í neinu ólíkir öðrum
Norðmönnum. Þrátt fyrir að ýmsar
spurningar standi eftir (svo sem
eins og af hverju hinn germanski
sagnaarfur varðveittist hér betur
en annars staðar, en því hefur
aldrei verið svarað á viðhlítandi
hátt) þá verðum við því líklega að
leggja Herúlakenninguna á hilluna.
Eða afhenda hana Litháum, nú er
nefnilega risin upp Herúlakenning
í Litháen, þeir eru sagðir forfeð-
ur Samógitíana sem dúkkuðu upp
á strandlengjunni upp af hafnar-
borginni Klaípeda löngu eftir 1000
– prófið að slá inn „heruli“ og „sam-
ogitians“ á Google.
Hér hefur því miður ekki gef-
ist tóm til að ræða spurninguna
um hvort og að hve miklu leyti
hinir fornu Herúlar hafi getað tal-
ist „þjóð“ á nútímavísu, en það er
raunar alveg óvíst, kannski voru
þeir upphaflega stétt úrvalsher-
manna af einhverju tagi eða „her-
úlfar“ frekar en sérstakur ættbálk-
ur. En hverjir sem þeir voru, þá
verðum við að íhuga málið vand-
lega áður en við förum að sækjast
eftir því að tilheyra þeim eða til-
einka okkur arf þeirra. Þeir voru
nefnilega ekki aðeins hagmæltir
og duglegir til manndrápa, heldur
segir og um þá í rómverskum heim-
ildum að Herúlar hafi verið „svik-
ulir, undirförulir, drykkfelldir og
villimenn í kynlífi“.
Og mundum við láta þvíumlíkt
um okkur spyrjast?
1
2 3
6
7
89
5
Chalons
Róm
Niš
Belgrad
Efesus
Klaipeda
Býsans/Konstantínópel
Aþena
Sparta
0 e.Kr.-300 e.Kr., skv.
rómversku heimm ildum.
370-530 e.Kr., skv. róm-
verskum heimildum.
550-870 e.Kr., skv.
Herúlakenningunni
Ísland Noregur
Danmörk
England
Svíþ ój ð
Grikkland
Ítalía 4Balkansk ga i
Litla-Asía
Spánn
Gallía
Germanía
Svarta haf
Úkraína
Litháen
Aserbaídsjan
Miðjarðarhaf
Atlantshaf