Fréttablaðið - 03.05.2014, Page 42

Fréttablaðið - 03.05.2014, Page 42
Starfið: Samgöngustofa óskar eftir að ráða eftirlits- mann á verndardeild á mannvirkja- og leiðsögusvið stofnunarinnar, aðallega á sviði flugverndar en einnig aðstoð við eftirlit á sviði siglingaverndar. Starfið felst einkum í undirbúningi eftirlits, vettvangs- heimsóknum, úttektum, prófunum og skoðunum á framkvæmd flugverndar/siglingaverndar en einnig innleiðingu nýrra krafna og uppfærslu handbóka stofnunarinnar á sviði flugverndar. Leitað er að starfsmanni sem á auðvelt með að setja sig inn í reglur og nýjar aðstæður og er tilbúinn að vinna í öguðu umhverfi. Starfshlutfall er 100%. Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólanám sem nýtist í starfi eða sambærileg menntun • Þekking á flugvernd/siglingavernd er kostur • Reynsla af eftirlitsstörfum • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg sem og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga • Mjög gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli nauðsynleg • Frumkvæði, skipulögð, nákvæm vinnubrögð og sjálfstæði í starfi • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf hjá Samgöngustofu þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Umsóknarfrestur er til 19. maí 2014. Hægt er að sækja um með eftirfarandi hætti: • á vefsvæði Samgöngustofu á síðunni www.samgongustofa.is • senda umsókn (ferilskrá) með tölvupósti á netfangið atvinna@samgongustofa.is eða • senda skriflega umsókn á eftirfarandi heimilisfang: Samgöngustofa Bt. Ólafar Friðriksdóttur Pósthólf 470 202 Kópavogur Nánari upplýsingar veitir Ágústa R. Jónsdóttir, deildarstjóri verndardeildar í síma 480 6000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Samgöngustofa áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála með um 160 starfsmenn. Stofnuninni er ætlað að stuðla að öruggum, sjálfbærum, greiðum og hagkvæmum samgöngum. Samgöngustofa annast eftirlit er varða flug, siglingar, umferð og öryggiseftirlit með samgöngumannvirkjum og leiðsögu. Upplýsingar um Samgöngustofu má finna á heimasíðu www.samgongustofa.is. EFTIRLITSMAÐUR Á VERNDARDEILD www.gardabaer.is Byggingarfulltrúi Garðabæjar hefur yfirumsjón með stjórnsýslu byggingarmála. Byggingarfulltrúi hefur forystu um faglegan undirbúning á sviði byggingamála á hverjum tíma, innleiðingu gæðakerfis og er bæjarráði til ráðgjafar á því sviði. Byggingarfulltrúi ber m.a. ábyrgð á yfirferð byggingarnefndarteikninga, byggingareftirliti, skráningu mannvirkja, eftirliti með viðhaldi, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2014. Sækja þarf um starfið með því að fylla út umsókn á nýjum ráðningarvef Garðabæjar. Umsókninni þarf að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf þar sem umsækjandi gerir sérstaklega grein fyrir hæfni til starfans út frá ofangreindum hæfnikröfum. Menntunar- og hæfniskröfur: byggingarmála sbr. 8 gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er skilyrði. Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum, byggingarreglugerð er æskileg. er æskileg. skipulagshæfni. Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. STARF BYGGINGARFULLTRÚA Garðabær auglýsir eftir einstaklingi til að sinna starfi byggingarfulltrúa. Leitað er eftir einstaklingi með háskólamenntun á sviði byggingarmála og með mikla reynslu á sviði byggingarmála. Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is Tapas barinn óskar eftir atvinnumanni í matargerð Viðkomandi þarf að hafa brennandi ástríðu fyrir mat, vera jákvæður, hafa reynslu af stjórnunarstörfum og eiga gott með að vinna undir álagi og í hóp. YFIRMATREIÐSLUMAÐUR RESTAURANT- BAR Upplýsingar eru veittar í síma 895 7350 frá kl. 13-17 eða á bjarki@tapas.is HRAFNISTA Reykjavík I Kópavogur I Reykjanesbær | ATVINNA | 3. maí 2014 LAUGARDAGUR2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.