Fréttablaðið - 03.05.2014, Síða 47
| ATVINNA |
Íslandsstofa leitar að tveimur verkefnisstjórum á svið ferðaþjónustu og skapandi greina.
Upplýsingar veitir:
Rannveig J. Haraldsdóttir
rannveig@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 11. maí.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Ert þú innblásinn af Íslandi?
Hlutverk Íslandsstofu er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja
samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og
laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Jafnframt veitir
Íslandsstofa fyrirtækjum faglega aðstoð við sölu á vörum, þjónustu
og þekkingu erlendis og styður við kynningu á íslenskri menningu ytra.
Verkefnisstjóri – erlent tengslastarf
og skipulagning viðburða erlendis
Verkefnisstjóri ber ábyrgð á erlendu tengslastarfi og
skipulagningu viðburða erlendis í tengslum við íslenska
ferðaþjónustu.
Ábyrgð og helstu verkefni
• Skipulagning og samskipti vegna viðburða íslenskrar
ferðaþjónustu erlendis.
• Uppbygging og viðhald tengslanets við erlenda söluaðila.
• Yfirsýn yfir þróun ferðaþjónustumarkaðar og
markaðsaðgerðir á viðkomandi markaði.
Kröfur um menntun og hæfni
• Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfinu.
• Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og
markaðssetningu á erlendum mörkuðum.
• Framúrskarandi enskukunnátta auk góðrar kunnáttu í
þýsku og/eða Norðurlandamáli er skilyrði.
• Menningarlæsi, sjálfstæði, frumkvæði, samskiptahæfni,
jákvæðni og hugmyndaauðgi.
Verkefnisstjóri – erlend
almannatengsl og fjölmiðlaferðir
Verkefnisstjóri ber ábyrgð á erlendum almannatengslum,
fjölmiðlaferðum og skipulagi þeirra.
Ábyrgð og helstu verkefni
• Áætlanagerð og yfirsýn verkefna teymis um erlend
almannatengsl og fjölmiðlaferðir.
• Skipulagning fjölmiðlaferða og samskipti við PR skrifstofur.
• Samþætting og uppbygging á áherslum í
markaðssamskiptum.
• Erlent tengslastarf, viðburðir erlendis og sýningar –
skipulagning og samskipti.
• Uppbygging og viðhald erlends tengslanets.
Kröfur um menntun og hæfni
• Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfinu.
• Þekking og reynsla af almannatengslum, verkefnastjórnun
og markaðssetningu á erlendum mörkuðum.
• Framúrskarandi enskukunnátta skilyrði, önnur
tungumálakunnátta kostur.
• Menningarlæsi, sjálfstæði, frumkvæði, samskiptahæfni,
jákvæðni og hugmyndaauðgi.
Sérfræðingur á efnahagssviði
Samtök atvinnulífsins leita að sérfræðingi til starfa á efnahagssviði samtakanna.
Efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins hefur faglegt sjálfstæði innan samtakanna en meginverkefni þess er að annast rannsóknir
og greiningar á þróun efnahagsmála ásamt því að greina einstakar atvinnugreinar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs í síma 591 0080.
www.sa.is
Forysta um samkeppnishæft rekstrarumhverfi
sem stuðlar að arðbæru, fjölbreyttu og ábyrgu
atvinnulífi sem bætir lífskjör allra.
Menntun og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í hagfræði eða önnur sambærileg menntun
• Gott vald á mæltu og rituðu máli
• Hæfileikar til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Helstu verkefni:
• Almennar rannsóknir og greiningar á þróun efnahagsmála
• Greining á einstökum atvinnugreinum
• Greining á stöðu sveitarfélaga og opinberra fyrirtækja
• Þátttaka við uppbyggingu á þjóðhagslíkani til spágerðar
• Aðrar tilfallandi greiningar
Umsóknir berist á skrifstofu SA í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, Reykjavík eða með tölvupósti til asdis@sa.is.
Óskað er eftir ferilskrá ásamt prófskírteini og upplýsingum um námsframvindu úr háskóla. Fullum trúnaði er heitið
og verður öllum umsóknum svarað. Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2014.
Samtök atvinnulífsins eru heildar-
samtök íslensks atvinnu lífs. Innan
SA eru sjö aðildar samtök sem
starfa á grunni atvinnu greina.
Aðild að SA eiga rúm lega 2.000
smá og stór fyrir tæki þar sem
starfa u.þ.b. sjö af hverjum tíu
launa manna á almennum vinnu-
markaði á Íslandi.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
www.hagvangur.is
LAUGARDAGUR 3. maí 2014 7