Fréttablaðið - 03.05.2014, Page 72
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 40
Brandarar
Magga fór að kaupa skó.
„Hvernig eru þessir?“ spurði skókaupmaðurinn.
„Þeir eru dálítið þröngir,“ sagði Magga.
„Prófaðu að toga tunguna út,“ sagði skókaupmaðurinn.
„Nei, þeið eðu ennþá þðöngið,“ sagði Magga.
Sérstakur hádegisverðarmatseðill:
Kjúklingur eða buff kr. 600
Kalkúnn kr. 550
Börn kr. 300
Í matarveislunni hvíslar mamman að syni sínum:
Hvers vegna lagðir þú engin hnífapör við diskinn hjá Jóa frænda?
Sonurinn segir upphátt:
Ja sko! Ég hélt að Jói þyrfti engin hnífapör. Þú sagðir að hann borðaði
eins og svín!
HANN
ARNAR
VALUR
VALSSON ,
sjö ára,
sendi okkur
þessa mynd
af tveimur
strákum að
tala saman.
Hvað valdir þú að lesa í Stóru
upplestrarkeppninni og af
hverju? „Í fyrstu umferð feng-
um við texta úr bókinni Ertu
guð afi? þannig að við völdum
þá ekki. Í umferð númer tvö
völdum við ljóð úr bæklingi
með tíu ljóðum eftir hana Erlu.
Ég valdi ljóðið Tímaklukkuna
því mér leist best á það. Í þriðju
umferð áttum við að lesa ljóð
að eigin vali. Ég valdi Hudson
Bay eftir Stein Steinarr af því
ég hef spilað lagið við það með
Skólahljómsveit Kópavogs og
þekkti ljóðið nokkuð vel.“
Veistu hversu margir krakkar
tóku þátt í keppninni í Kópa-
vogi? „Ég held þeir hafi verið á
milli 400 og 500.“
Var gaman að vera með? „Já,
mjög, en ég átti alls ekki von
á því að komast í Salinn því
ég var nefnilega varamaður í
keppninni innan míns skóla.“
Hvernig leið þér þegar þú
varst að lesa upp? „Bara nokk-
uð vel, ég var ekkert sérstaklega
stressuð, ekki eins og ég bjóst
við.“
Lestu oft upphátt fyrir foreldr-
ana? „Ekki lengur. Við áttum
alltaf að gera það áður fyrr en
núna er ég alveg hætt því nema
fyrir upplestrarkeppnina, þá
æfði ég mig með því að lesa
upp fyrir mömmu og pabba.“
Hvað er mikilvægast við upp-
lestur? „Að standa kyrr, tala
ekki of hratt, tala skýrt og
greinilega, tala hátt og túlka
lesturinn.“
Ertu mikill lestrarhestur? „Já,
já, ég les þó nokkuð mikið.“
Áttu þér einhverja uppáhalds-
bók? „Já, það eru Harry Potter
og Hungurleikarnir.“
Í hvaða skóla ertu og hvað
finnst þér skemmtilegast að
læra þar? „Ég er í Snælands-
skóla. Ég á mér ekki beint neitt
uppáhaldsfag en mér finnst
íþróttir skemmtilegar.“
Hver eru helstu áhugamálin
þín fyrir utan skólann? „Ég
æfi fótbolta með HK, æfi líka
á tenórsaxófón í Skólahljóm-
sveit Kópavogs og er í B- sveit
þar. Svo finnst mér gaman að
vera með vinum mínum og fara
í sveitina.“
Hvað langar þig að verða
þegar þú verður stór? „Er eig-
inlega bara ekki búin að hugsa
svo langt, kannski arkitekt.“
Mikilvægt að tala hátt
og túlka lesturinn
Rakel Svavarsdóttir bjóst ekki við að sigri í Stóru upplestrarkeppninni í Kópavogi
þar sem á milli fj ögur og fi mm hundruð krakkar tóku þátt en hún lenti í 1. sæti.
SIGURVEGARINN Milli skólalærdóms, fótboltaæfinga og hljómsveitar-
æfinga gefst smá tími til að líta í sögubók. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
94
„Og þú Lísaloppa sem allt veist,“ sagði Kata með þjósti. „Hvaða örvadæmi á þetta nú
að vera.“ „Ég veit nú ekki allt,“ sagði Lísaloppa. „En ég er með gátubókina og hún aftur
á móti veit hvaða örvadæmi þetta er.“ „Jæja þá, lestu,“ sagði Kata. „Hér er spurt,“
las Lísaloppa. „Hver af þessum örvum bendir nákvæmlega á miðju hringsins.“ „Heyrðu
mig nú,“ sagði Kata. „Þetta er ekkert hægt, það er nánast enginn munur á örvunum.“
Konráð horfði á myndina og sagði svo glaður. “Jú, það er munur, ég held meira að segja
að ég sé búinn að sjá hvaða mynd það er.“ Það hnussaði í Kötu. „Jæja þá, best að reyna.“
Getur þú séð hvaða ör það er sem bendir nákvæmlega á miðju hringsins?
A
Svar
B D
E F G
H I J