Fréttablaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
18
HELENA OG ÞORVALDUR TAKA LAGIÐ
Helena Eyjólfsdóttir heldur tónleika á Græna hattinum á
Akureyri á laugardagskvöldið kl. 21. Þorvaldur Halldórs-
son tekur lagið með Helenu og má búast við miklu fjöri
þegar þau tvö koma saman. Helena hélt sams konar
tónleika síðastliðið haust og þóttu þeir einstaklega
vel heppnaðir.
ÚTSÖLU-
STAÐIR
Flest apótek
og heilsubúðir. Nánari upp-
lýsingar á:
www.gengur-
vel.is.
FYRIR ALLA SEM ÞJÁST AF:
Exemi
Sóríasis
Rósroða
Kláða í húð
Útbrotum
Þurri húð
Ofsakláða
S alcura Derma-Spray inniheldur einstaka náttúru-lega formúlu sem styður viðgerðarferli húðar-innar, kemst djúpt ofan í húðina og nærir hana innan frá og út. Derma-Spray er þægilegt í notk-un, hefur kláðastillandi áhrif, minnkar bólgur og roða. Úðaformið tryggir minni hættu á sýkingum, engan núning og minni óþægindi þegar borið er á húðina.
Salcura DermaSpray Gentle er fyrir börn yngri en 12 mánaða og aðra með viðkvæma húð. Salcura Zeoderm-húðkrem græðir og nærir efstu lög húðar-innar þegar þau eru þurr og/eða sködduð. Það inniheldur kraftmikið andoxunarefni sem ver húðfrumur gegn skaða, öflugt afeitrunarefni sem bindur og eyðir eitur-efnum og róar kláða ogbólgu
HEFUR ÞÚ REYNT ALLT?
GENGUR VEL KYNNIR Salcura DermaSpray er 100% náttúrulegt meðferðar-úr-
ræði í úðaformi sem getur veitt langvarandi bata við m.a. þurrki í húð, exemi
og sóríasis. Frábær árangur, auðvelt í notkun og engar aukaverkanir.
„Ég hef verið að glíma við slæman þurrk á höndunum í allan vetur, húðin var bæði sprungin og blæðandi. Eftir aðeins 3 daga meðferð með Salcura Derma Spray og Zeoderm-kremi greri húðin alveg og þurrkurinn hvarf. Nú nota ég vörurnar eftir þörfum fyrir mig og fjöl-skylduna.“ Magnea Guð-mundsdóttir, 32 ára, tveggjaba
TÆKIFÆRISGJAFIRTILBOÐ - mikið af frábærum boðumtil
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
Hnífaparatöskur – 12 manna
14 tegundirVerð frá kr. 24.990
Sumarpeysurí miklu úrvali
SUMARYFIRHAFNIR Í ÚRVALI
Vertu vinur á
Facebook
Skoðið
laxdal.is/
Yfirhafnir
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
15. maí 2014
113. tölublað 14. árgangur
Misræmi hjá vitnum
Framburður tveggja vitna frá Dúbaí
stangaðist á við aðalmeðferð Aurum-
málsins í héraðsdómi í gær. 6
Mynda bólfélaga án leyfis Dæmi
eru um að vinahópar stundi að dreifa
myndum af bólfélögum sem teknar
eru án þeirra vitundar. 2
Lög sett á verkfall Sett verða lög á
verkfall flugmanna Icelandair í dag og
deilan sett í gerðardóm semjist ekki
fyrir 1. júní. 4
Reiði eftir námuslys Óttast er að
um 350 manns hafi látið lífið þegar
sprenging varð í kolanámu í Tyrk-
landi. Stjórnvöld í landinu eru gagn-
rýnd harðlega vegna málsins. 8
SKOÐUN Fiskeldi skaðar
ekki lífríki Íslands, skrifar
Guðbergur Rúnarsson. 19
MENNING Mattheusar-
passían flutt í Langholts-
kirkju. 26
LÍFIÐ Nemendur í Háskólan-
um í Reykjavík vinna að fram-
leiðslu á paté úr bleikju. 30
SPORT Valskonur tryggðu
sér oddaleik um Íslands-
meistaratitilinn. 34
KÖNNUN Listi fólksins, sem náði
hreinum meirihluta í bæjarstjórn
Akureyrar í sveitarstjórnarkosn-
ingunum 2010, tapar meirihluta
sínum í komandi kosningum sam-
kvæmt skoðanakönnun Frétta-
blaðsins.
Flokkurinn tapar rúmum helm-
ingi fylgisins frá síðustu kosning-
um, mælist með 22,1 prósent og
þrjá bæjarfulltrúa, en fékk sex
bæjarfulltrúa eftir stóran sigur í
kosningunum 2010.
Landið rís hjá Sjálfstæðisflokkn-
um, sem mælist með 23 prósent
atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa, en
er með einn fulltrúa í dag.
Listi Bjartrar framtíðar, sem
býður fram á Akureyri í fyrsta
skipti, er þriðja stærsta framboðið.
Flokkurinn fær samkvæmt könn-
uninni 18,3 prósent atkvæða og tvo
bæjarfulltrúa.
Samfylkingin, Framsóknar-
flokkurinn og Vinstri græn halda
sínum eina bæjarfulltrúa verði
niðurstöður kosninga í takt við
skoðanakönnunina.
Dögun, sem býður fram í fyrsta
skipti á Akureyri, mælist með
tveggja prósenta fylgi og á langt
í land með að ná manni í bæjar-
stjórn.
Verði þetta niðurstaðan er eini
möguleikinn á tveggja flokka
samstarfi stjórn Lista fólksins
og Sjálfstæðisflokksins, sem eru
samanlagt með sex af ellefu bæj-
arfulltrúum. - bj / sjá síðu 12
FLJÓTLEGT OG ÞÆGILEGT
ÍSLENSKT GRÆNMETIGEYMIÐ BLAÐIÐ
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
VOR 2014
Hafa ræktað tómataáVarm l
Pastasósa
Sú besta
í bænum
Gúrkur
Góðar
með
öllu
Sú eina
sanna
ListakokkarHöfundar uppskrifta í blaðinu eru: Nanna Rögnvaldsdóttir,Helga Mogensen, Hrefna Sætran, og Margrét Leifsdóttir.
Sveinn Björnsson „Öll börnin mín fimm hafa hjálpað til við garðyrkjuna en farið svo sínar eigin leiðir, en þau koma oft um háannatímann og leggja hönd á plóg.”
Þar sem
tómatar koma við sögu
Aukablað! Í fyrsta sinn á Íslandi!
ómatvörur T
íslenskumúr
tómötum
SJÓSUNDÆÐI Kvennaskólanemarnir Nils Ólafur Egilsson, Hákon Bjarnason og Unnur Oddný Einarsdóttir stukku í sjóinn í Reykjavíkurhöfn glöð í bragði í gær. Þar með
slógust þau í hóp fj ölmargra ungmenna sem hafa stundað það undanfarið. Varað hefur verið við því að vera lengur en þrjár mínútur í sjónum vegna hættu á krampa. Sömu-
leiðis er ráðlagt að vera alltaf fl eiri saman og með áætlun um hvernig eigi að komast upp úr sjónum ef eitthvað fer úrskeiðis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bolungarvík 4° VNV 5
Akureyri 9° VSV 6
Egilsstaðir 11° VSV 5
Kirkjubæjarkl. 13° VSV 6
Reykjavík 8° VSV 7
Smáskúrir vestanlands en bjart austan
til. Fremur hægur vindur og hiti frá 4
stigum á Vestfjörðum að 13 stigum
suðaustanlands. 4
23,0%
18,3% 11,8%
22,1%13,9%
2,0%
8,2%
Könnun
2014
Listi fólksins tapar meirihluta
Mynda þarf nýjan meirihluta á Akureyri eftir sveitarstjórnarkosningar þar sem Listi fólksins missir hreinan
meirihluta samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Erfitt gæti reynst að mynda tveggja flokka samstarf.
KJARAMÁL Vel miðaði í samninga-
viðræðum grunnskólakennara og
sveitarfélaganna í gær og þegar
blaðið fór í prentun voru líkur
taldar á að samningar tækjust.
Foreldrar grunnskólabarna eru
hvattir til að fylgjast með fréttum
af viðræðunum nú í morgunsárið.
„Við erum komin skrambi langt
í að semja. Meginlínur eru komn-
ar varðandi nýtt vinnumat fyrir
kennara. Launaliðurinn er það sem
sem helst hefur strandað á,“ segir
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara. Samningur
þeirra við sveitarfélögin hefur
verið laus frá því á hlaupársdag
2012. Viðræður um nýjan samning
hafa staðið frá árinu 2011.
Grunnskólakennarar telja sig
hafa dregist aftur úr í launum
miðað við aðrar háskólamenntaðar
stéttir og hafa krafist leiðrétting-
ar á kjörum sínum. Í því sambandi
hafa þeir bent á að launahækkanir
sem samið var um við framhalds-
skólakennara geta numið 29 pró-
sentum á samningstímanum sem
er fram á haustmánuði 2016.
Takist samningar mæta 4.500
kennarar til vinnu í 169 grunn-
skólum í dag þar sem um 43 þús-
und nemendur bíða þeirra. - jme
Samninganefndir sveitarfélaga og kennara á maraþonfundi hjá sáttasemjara:
Samningar við kennara að nást