Fréttablaðið - 15.05.2014, Page 32
8 ÍSLENSKT GRÆNMETIVOR 2014GEYMIÐ BLAÐIÐ
Hjónin Einar Pálsson og Kristjana Jónsdóttir búa á Sólbyrgi á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Þangað fluttu þau frá Vestmannaeyjum árið 2008,
þegar þau keyptu gróðrarstöðina. Einar var sjómaður í
Eyjum, en hann hafði lengi dreymt um að búa í sveit. Þau
hjónin stefndu að því að fara út í hefðbundinn búskap og
höfðu leitað lengi að bújörð. Þegar þeim bauðst að kaupa
Sólbyrgi ákváðu þau að gerast garðyrkjubændur. Staðurinn
heillaði þau og garðyrkjustöðin, sem er á um 10 hektara
landi, er vel í sveit sett og stutt í skóla fyrir börnin.
Einar lauk prófi frá Garðyrkjuskólanum stuttu eftir að
þau hjón fluttu á Sólbyrgi. Þegar hann tók við stöðinni
voru þar nær eingöngu ræktaðar gulrætur. Hann nýtti
sér þekkingu sýna á ræktun og hóf mikla uppbyggingu
og breytingar í samræmi við nýjustu kröfur í ylrækt.
Nú eru aðallega ræktuð jarðarber á Sólbyrgi, en einnig
kirsuberjatómatar, salat, kryddjurtir og er þar nokkur
útirækt.
Jarðarberjaræktin hófst af krafti á Sólbyrgi árið 2013.
Einar segir skilyrði til að rækta jarðarber mjög góða og
þakkar það vatninu, sem hann segir að sé margfalt betra
en þekkist hjá ræktendum erlendis. Hann vill einnig
þakka vatninu það hversu einstaklega bragðgóð íslensku
jarðarberin eru. Húsin eru hituð upp með jarðvarma,
hunangsflugur frjóvga plönturnar og lífrænar varnir eru
notaðar. Einar segist líta svo á að íslenska garðyrkjan sé
sú umhverfisvænsta í heimi því hún skilji ekki eftir sig
kolefnisspor. Þau séu orðin æði mörg þegar grænmeti
og ber séu komin hingað til lands frá suðlægum
löndum.
Á Sólbyrgi eru jarðarberin tínd beint ofan í
öskjurnar og bændur þar leggja mikla áherslu á að
gæta fyllsta hreinlætis og nota hanska við berjatínsluna.
Jarðarberin eru komin á markaðinn aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að þau eru tínd.
Nú eru
aðallega
ræktuð
jarðarber
á Sólbyrgi,
en einnig
kirsuberja-
tómatar, salat,
kryddjurtir
og er þar
nokkur
útirækt.
Sölufélag garðyrkjumanna
kynnir nú nýju tómatvörurnar
sínar með því að stilla þeim
fram í sérstökum stöndum
og gera þær þannig enn
aðgengilegri fyrir neytendur.
JARÐARBER
Sólbyrgi Kleppjárns-
reykjum í Borgarfirði
Kristjana Jónsdóttir og Einar Pálsson Þegar þeim bauðst að kaupa Sólbyrgi ákváðu þau að gerast garðyrkjubændur.
Fylltir konfekttómatar með mozzarella
1 askja konfekt tómatar
1 poki litlar mozzarellakúlur
Gróft sjávarsalt og svartur pipar
(ef þið ætlið að steikja tómatana)
2 greinar rósmarin
Olivuolía
Skerið tómatana í tvennt og kjarnhreinsið
þá. Setjið mozzarellaostinn inn í miðjuna
og stingið tannstöngli í gegnum
tómatinn. Kryddið með salti og pipar.
Einnig er hægt að léttsteikja tómatana á
pönnu upp úr olíu með smá rósmarin á.
Þá bráðnar osturinn smá og það kemur
skemmtilegt bragð að rósmarininu.
Hrefna Sætran
C - vítamín þruma
2 paprikur (rauðar, gular eða appelsínugular)
1 handfylli kirsubjerjatómatar
½ gúrka
safi úr ½ sítrónu
0,3 lítrar kalt vatn
Allt sett í blandara og blandað vel
Margrét Leifsdóttir
Íslenskir fylltir grillsveppir
eru ómótstæðilega góðir.
Frábærir með grillmatnum.
Gott er að grilla sveppina
í álbakkanum á vel heitu
grilli í 3 - 5 mínútur. Svo
getur verið gott að strá smá
salti yfir þegar búið er að
grilla. Ennfremur er hægt
að hita sveppina í ofni
(180°C) eða smörsteykja
þá á pönnu.
Það er okkur mikil ánægja að
kynna fyrir ykkur nýja og endurbætta
heimasíðu okkar, islenskt.is.
Á heimasíðunni er mikill fróðleikur um
garðyrkjubændur og býli þeirra og að
sjálfsögðu um íslenskt grænmeti. Einnig
eru þar úrvalsuppskriftir eftir listakokka
og fallegar myndir af öllum réttum til
að auðvelda eldamennskuna. Þá er þar
einnig að finna ýmsar greinar um lífsstíl
og heilsu.
Síðuna er hægt að skoða jafnt í tölvu,
spjaldtölvu og farsíma.
Yfir 26 þúsund hafa gerst vinir
okkar á facebook og það er mikið
ánægjuefni að vera í góðu sambandi við
viðskiptavini okkar og stuðingsmenn.
Sjón er sögu ríkari.
Islenskt.is